Tíminn - 01.11.1968, Blaðsíða 8
8
TIMINN
FÖSTUDAGUR 1. nóvember 1968.
HEIMA OG HEIMAN
ÞAU ERU ORÐIN LEID Á
AUÐIOG ALLSNÆGTUM
Þekkt leikkona og eiginmaður hennar, auðugur forstjóri, segja skilið
við samkvæmislíf Lundúna og flytja til ísrael.
Leikkonan Dallia Penn og
eiginmaður hennar Dr. Alec
Lerner lifa í munaði. Þau
aka í Rolls-Royce bifreið, og
hafa í sinni þjónustu bílstjóra,
barnfóstru, bryta og þjón. Dr.
Lerner er fimmtugur að aldri
og hefur á þriðju milljón ísl.
kr. í tekjur á ári, og á auk
þess dálaglegan skilding í
hlutabréfum. Hin fagra kona
hans Dallia er þekkt leikkona
í Englandi og víðar. Eitt af
síðustu hlutverkunum, sem hún
hefur leikið var í sjónvarps
myndinni „Forsyte-Saga“, sem
gerð var á vegum brezka sjón
v’arpsins og verið er að sýna
hér nú.
En einmitt þessa dagana eru
þau hjónin að segja skilið við
það Ij-úfa lif, s©m þau hafa
lifað í London síðustu árin.
Þau eru að selja íbúðina sína
og bílinn, og segja upp þjón-
ustufólkinu. Dr. Lerner hefur
sagt upp stöðu sinni sem einn
forstjóri hins stóra vefnaðar
vörufyrirtækis Marks & Spenc
er, sem hefur 157 verzlanir um
allt England. Og eiginkona
hans ætlar að hætta að starfa
sem leikkona, því að þau eru
ætla að byrja nýtt líf.
Hvers vegna tekur fólk upp á
því af fúsum og frjálsum vilja
að fórna lífi í auði og alls
nægtum líf þar sem óvissan
tekur við?
Dr. Alec Lerner segir: „Við
Dallia ætlum að byrja nýtt
líf í ísrael. Ég veit ekki enn
hvað ég mun starfa. En í landi
eins og ísrael er allstaðar þörf
fyrir fólk. Við flytjum af því
að allsnægtalíf er leiðinlegt
þegar til lengdar lætur og
það krefst einskis af manni.
Hver dagur er öðrum líkur,
maður veit í dag hvað verður
á morgun, í næstu viku, eftir
mánuð, að ári.“
Dr. Alec Lerner fæddist í
Winnipeg í Kanada og kom
til Englands með kanadíska
hernum 1940. Hann er læknir
að mennt. f Englandi kynntist
hann Hönnu dóttur Marks
lávarðar eiganda fyrirtækisins
Marks & Spencer árið 1941.
Þau giftust sama ár. Eftir stríð
ið varð Lerner einn af forstjór
um stórfyrirtækis tengdafólks
síns.
Þau hjónin skildu 1959 en
Lerner starfaði áfram sem einn
af forstjórum fyrirtækisins.
Hann fór oft tii ísrael á veg
um þess, en fyrirtækið rak mik
il viðskipti við ísraelska aðila.
Árið 1964 hafði Dallia Penn
getið sér gott orð í Tel Aviv
sem dansmey og leikkona. Hún
er fædd í ísrael en var í skóla
í Englandi. Herskyldu leysti
hún af hendi við störf í her-
málaráðuneytinu. Er þau Dallia
og Alec Lerner höfðu þekkzt
í nokkra mánuði giftust þau og
fluttu síðan til Lundúna.
Dallia Lerner segir, að þau
hafi fyrst farið að langa til að
hefja nýtt líf fyrir um einu
ári.“ Það var þegar deilur Ar-
aba og ísraelsmanna stóðu
sem hæst. Viku áður en stríð
ið brauzt út tók Alec sér frí
og við flugum til ísraels. Alec
fannst að návist okkar gæti
e.t.v. orðið vinum okkar til sið-
ferðilegs stuðnings, og að
hann gæti komið að gagni sem
læknir og framkvæmdamaður
ef til stríðs kæmi.“
Þegar stríðið brauzt út hóf
Dallia þegar að nýju upp sitt
gamla starf í hernum við her-
málaráðuneytið. En Dr. Lern
er sá um að auka og bæta
lyfjakost ísraelska hersins.
„Er stríðinu lauk viku
seinna, óg við flugum aftur til
Englands, strönd ísraels var
að hverfa við sjóndeildarhring
inn, varð okkur allt í einu ljóst
hvar við áttum heima — í
ísrael. Þegar Alec ákvað nokkr
um dögum síðar, að við skyld
um segja skilið við allt og
byrja nýtt líf í ísrael, varð ég
náttúrulega himinlifandi. Brott
förin hefur'' frestazt mánuð af
mánuði, en nú förum við eftir
nokkrar vikur“. segir Dallia.
Hún hristir svart, sítt hárið,
þegar hún er spurð hvort hún
muni ekki sakns auðæfanna,
veizluhalda og starfs síns sem
leikkona. „Nei“. segir hún,
„kainmski söknum við vina
okkar í Endandi. En við
getum farið til Englands þeg
ar við viljum, og við eigum
líka marga vini í ísrael. Við
erum ekki að fara inn í eyði-
mörkina op ekki heldur á sam-
yrkjubúgarð."
Þau hafa leigt sér hús í Tel
Aviv, en hyggjast byggja sér
hús síðar meir. Dallia kveðst
ekki sakna leikstarfsins og ætl
ar einkum að vinna að því að
semja og þýða leikrit fyrir
sjónvarp og leikhús.
Eignir sínar, sem eru allmikl
ir verða þau að skilja eftir í
Englandi. Gjaldeyrislöggjöfin
brezka leyfir aðeins að þau
taki með sér sem svarar á
sjötta hundrað þúsunda ís-
lenzkra króna úr landi. Hinn
hluta eigna sinna geta þau að-
eins notfært sér í Englandi.
Aðrir forstjórar Marks &Spenc
er sakna Dr. Lerners mjög er
hann hverfur frá fyrirtækinu.
„En ég hef sagt þeim, hvað
ég vil og þeir hafa verið afar
hjálpsamir og nkilningsríkir",
segir Dr. Lernej
Einn munað koma Lerner
hjónin til með að geta veitt sér
áfram í ísrael og það er að
hafa eigin bflstjóra. Banks bfl
stjórinn sem hefur starfað hjá
Lemer í 12 ár og er í þann
veginn að komast á eftirlaun,
getur ekki hugsað sér að skilja
við fjölskylduna. Hann á enga
nákomna að í Englandi og get
ur ekki hugsað til þess að búa
í London eftir að þau eru far-
in. Fyrir skömmu herti hann
upp hugann og spurði hvort
hann mætti ekki koma með
þeim, þótt hann hefði aldrei
komið til fsrael áður, hann
hefði eftirlaunin sín og yrði
þeim ekki til byrði. Og var sú
beiðni fúslega samþykkt
Ein af þeim lystisemdum, sem brátt mun heyra fortíð þeirra
til er Rolls-Royce bifreiðin þeirra. „Líf í munaði gerir engar
kröfur til fólks segja þau.
Tóbaksframfeiðsla og tóbaks
neyzla hafa aukizt mikið um
heim allan á síðustu árum, þrátt
fyrir að læknar telji reykingar
skaðlegar og vari við þeim. Og
í skýrslu sem FAO, Matvæla og
hjálparstofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur nýlega sent frá
sér, má búast v'ð að tóbaks-
framileiðsla og neyzla aukist
enn meir.
Skýrsla þessi var samin af
nefnd, sem í eiga sæti fulltrú
ar 34 þjóða. og samkvæmt henni
var sígarettuframleiðslan kom-
in upp í 2.800 þúsundir millj
óna á ári 1966, og fer vaxand'.
Tóbaksneyzla jókst um 50% í
þróunarlöndunum og í sósíalísk
um löndum, en um 40% í
þróuðum löndum. Þrír fjórðu
hlutar alls þess tóbaks, sem
neytt er í heiminum nú, eru
sígarettur.
Skýrslur lækna, sem birtar
hafa verið í Bandarfkjunum,
Tébaksneyzlan eykststöðugt
þrátt fyrír skaisemi hennar
Bretlandi og öðrum Evrópulönd
um, og brýna fyrir mönnum
skaðsemi reykinga fyrir heils-
una, hafa ekki haft minnkandi
áhrif á tóbaksneyzlu. Áhrif
þeirra hafa fremur verið þau,
að sala filtersísarettna hefur
aukizt að miklum mun einkum
í þróuðum löndum, en þar nema
þær helmingi af heildarsölunni,
að því er segir í skýrslunni,
Þá hafa aðvaranir lækna haft
annað atriði í för með sér lít
ið nikótínmagn og lítið tjöru-
magn í ýmsum sígarettutegund
um í Bandaríkjunum. Kanada
og allmörgum Evró^ulöndum.
Þessar sígarettur hafa öðlazt
vinsældir og margir framleiðend
ur leggja áherzlu á að hafa
þær á boðstólum.
Þörfin fyrir tóbakslauf jókst
ekki að sama skapi og sigar
ettuframleiðslan, því að hrá-
efnið nýtist nú betur en áður
vegna tæknilegra framfara í
tóbaksiðnaði. Einnig hefur auk
in sala ffltersígaretta áhrif !
sömu átt Upp á móti þessu
vóg hins vegar að reykingar-
fólki fjölgaði og tóbaksneyzla
hvers einstaklings jókst miðað
við heildina. Búizt er við að
eftirspurn eftir tóbakslaufi auk
izt um 2—3% á ári á næstunni,
og einkum veröi sótzt eftir mjög
góðu tóbakslaufi með lágu nikó
tíninnihaWi.
Tóbak er mikilvægur liður
í akuryrkiuframleiðslu heimsins
og verðmæti heildarframleiðsl-
unnar nemur 1100 milljónum
dollara Nær allar þjóðir heims
flytja inn tóbaksvörur og tekj
ur af tóbaksútflutningi eru þýð
ingarmikill liður í þjóðartekjum
margra þróunarlanda, t. d. Ind
lands, Brasilíu, Filippseyja og
Ródesíu (fyrir refsiaðgerðirn-
ar), Malawi, Indónesíu, Dómíni
kanska lýðveldisins, Paraguy og
Madagaskar.
Bandaríkin framleiða mest af
tóbaki og tóbaksvörum eða um
900.000 tonn og flytja þær til
um 113 landa. Ródesía var ann
að mesta tóbaksframleiðsluland
heims fram til 1965 er verzlunar
bannið gekk í gildi.
Eftir 1965 fóru önnur lönd
að taka aukinn bátt í tóbaks
verzluninni einkum Asíulönd,
en tóbaksbirgðir hafa safnazt
fyrir í Ródesíu.
Algegnt er að ríkiseinkasölur
annist tóbakssölu og háir tollar
eru á tóbaki í flestum löndum.
Aðeins mjög fá lönd selja
tóbak á frjálsum markaði. seg
ir í skýrslum Matvælastofnunar
innar.