Tíminn - 01.11.1968, Blaðsíða 16
HLÖÐUBRUNI A SLETTUBOLI
Stjas-Vorsabæ, fimmtudag.
f morgun kom upp eldur í
heyhlöðu á Sléttahóli í Gaul
verjabæjarhreppi Mjólkurbíl-
stjóri frá Selfossi, sem átti
leið frain hjá hlööunni snemma
í morgun varð eldsins fyrst
var, og gerði hann aðvart á
næsta bæ. Sléttaból er í eyði
og allangt frá öðrum hæjum.
Þar eru ekki aðrar byggingar
en þessi eina hlaða. Slökkvilið
ið á Selfossi kom fljótt á vett
vang, og fjöldi manna úr ná-
Framhald a bts Lð
Alþýðubanda-
lagsféflögin
á Húsavík og
í Eyjafirði
senda ekki á
landsfundinn
tékur sæti á Alþingi
Reykjavík, fimmtudag.
í dag tók Kristján Thorlacius
deildarstjóri sæti Þórarins Þórar
inssonar á Alþingi, en Þórarinn
mun dvelja um sinn erlendis í
embættiserindum. Kristján Thorla
cius hefur áður setið á þingi.
OÓ-Reykja\dk, ftmmtudag.
Alþýðubandalagsfélögin á
Húsavík og í Eyjafirði munu
ekki senda fulltrúa á lands-
fund Alþýðubandalagsins, sem
hefst í Reykjavík á morgun,
föstudag. Fundir voru haldnir
í báðum þessum félögum í gær
kvöldi og féllu atkvæði þannig,
að fellt var að senda fulltrúa á
landsfundinn, en þar verður
væntanlega tekin ákvörðun um
hvort gera skuli samtökin að
st j órnm ál aflokki.
í Alþýðubandalagsfélagi Húsa
víkur eru um 50 meðlimir.
Rúmlega tuttugu mættu á fund
inum í gærkvöldi. Umræður
voru í daufara lagi og var að
lokum samþykkt að senda ekki
fulltrúa á landsfund að þessu
sinni. Aðeins tveir fundar-
manna voru því hlyntir að
senda fulltr. Alþýðubandalags-
félag Húsavíkur át.ti rétt á að
senda fjóra fulltrúa á lands
fundinn. Eins og sagt var frá
í blaðinu í gær, felldu félagar
á Akureyri að senda fulltrúa
með 36 atkvæðum gegn 30.
Alþýðubandalagsfél. í Suður
Þingeyjarsýslu hélt fund fyrir
nokkru og var þar samþykkt
að senda fulltrúa á fundinn, en
það félag hefur rétt á að senda
tvo fulltrúa, hvort sem þeir nú
mæta eða ekki, eftir að Hús-
víkingar, Akureyringar og Ey-
firðingar hafa ákveðið að taka
ekki þátt í landsfundinum.
Framhain fi ots 15
Myndin er frá kirkjuþingi.
(Tímamynd GB)
Ellefu mál afgreidd á nýafstöðnu kirkjuþingi.
VERÐA BISKUPARNIR FJORIR?
FB-Reykjavík, fimmtudag.
Sjötta kirkjuþingi lauk á þriðjudaginn. Fyrir þingið voru Iögð 13 mál og hlulu ellefu þeirra afgreiðslu.
Samkvæmt upplýsingum biskupsritara voru meðal málanna, sem afgreidd voru, frumvarp til laga um
þrjú biskupsdæmi á íslandi, þingsályktunartillaga um skipulagt fræðslustarf og umræður um kirkjumál
á opinberum vettvangi, um embættisbústaði þéttbýlispresta og um Ieiðbeiningarstarf í kristnum fræð-
um á skyldunámsstiginu öllu. Þess má geta, að nýlega var skipaður kaþólskur biskup á fslandi, og
verði þjóðkirkjubiskuparnir þrír í framtíðinni, verðahiskupar í landinu fjórir talsins.
Sautján fillltrúar eiga sæt.i á
kirkjuþingi. Sjálfkjörnir eru bisk
upinn og kirkjumálaráðherra, þá
kýs guð'fræðideildin einn full-
trúa. Síðan er landinu skipt í 7
kjördæmi. Prestar kjósa úr sín
um hópi einn úr hverju kjördæmi
og sóknarnefndir og safnaðarfull
trúar í hverju kjördæmi kjósa
ennfremur einn fulltrúa hver.
■jír Fyrsta mál þingsins var frum
varp til laga um biskupsdæmi hinn
ar íslenzku þjóðkirkju, og er
meginefni þess, að biskupsdæmi
kirkjunnar skuli vera þrjú, Reykja
víkur-, Skálholts- og Hólabiskups
dæmi. Þingið samþykkti þétta
frumvarp, sem lengi hefur vcrið
á döfinni og fjallað hefur verið
um á mörgum kirkjuþingum.
-jfr Annað málið var frumvarp um
breytingu á lögum um kirkjuþing
og kirkjuráð íslenzku þjóðkirkj
unnar, og er meginefnið, að við
talningu atkvæða skal reikna
fyrsta manni á kjörseðli eitt at-
kvæði, öðrum manni % og þriðja
mánni Vn. Sá, sem flest atkvæði
hlýtur skal taka sæti á kirkju
þingi, en hinir verða fyrsti og
annar varamaður eftir atkvæða-
magni. Áður var aðalmaður kos
inn sérstaklega og varamaður sér
staklega.
•fo Þriðja málið var tillaga til
þingsályktunar um afgreiðslu mála
á Alþingi, sem kirkjuþing héfur
samþykkt, og þar var skorað á
ríkisstjórn og Alþingi að afgreiða
á því þingi, sem nú stendur yfir,
frumvarp til laga um veitingu
prestakalla og skipan presta
kalla og kristnisjóð, sem áður
hafa verið lögð fyrir Alþingi.
•ár Fjórða málið var þingsályktun
prestar eigi rétt til embættisbú
staða hér eftir sem hingað til, en
þegar prestum fjölgaði hér í
um að kirkjuráð gangist sem fyrst Reykjavík um áramótin 1963, þá
fyrir skipulögðu fræðslustarfí og , voru ekki til embættisbústaðir fyr
umræðum um kirkjumál á opin ir þá og þeir hafa ekki haft emb
berum vettvangi. ættisbústaði siðan.
☆ Fimmta málið var tillaga til
þingsályktunar um embættisbú- Sjötta málið var tillaga til
staði þéttbýlisprésta. Kirkjuþing; þingsályktunar um að kirkjuráð
ályktar að beina þeirri áskorun láti gera athugun á því, hvers
til kirkjumálaráðherra. að hann; kirkja vor verði vandlegast að
beiti sér fyrir því, að þéttbýlis gæta og hvað öruggast að tryggja
varðanÆ samskipti rikis og
kirkju.
Sjöunda málið var tillaga til
þingsálýktunar um guðsþjónustu
og helgihald hjá þjóðkirkjaimi.
Er þar beint tilmælum til presta,
sóknamefnda og safnaðarfulltrúa,
að guðsþjónustuhald kirkjunnar
verði rækt eins ítarlegá og lög og
tilskipanir þar um, mæla fyrir.
■fc Áttunda málið var tillaga til
þingsályktunar um að næsta presta
stefna taki til rækilegrar athugun
ar og umræðu starfsgrundvöll og
verksvið presta þ j óðkirkjugnar
vegna gjörbreyttra þjóðfélágs-
hátta.
Níunda málið var tillaga tfl
þingsályktunar um greiðslu fyrir
aukaverk presta, og var kosin
nefnd til að athuga þetta mál
Framhald á 15. siðu.
SÆKJA ENN UM UNDAN-
ÞÁGU FYRIR FJÁRBORG
FB-Reykjavík, fimmtudag
Fjáreigendafélag Reykja
víkur hefur sent borgar-
yfirvöldúm bréf, þar sem
farið er fram á að veitt
verði leyfi til þess að 600
til 700 fjár fái að vera í
Fjárborg í vetur. Málið var
tekið fyrir á síðasta borgar
ráðsfundi, en ekki afgreitt,
og er nú til athugunar hjá
borgarstjóra.
Að sögn fjáreigenda er hér
um að ræða um 30 einstakl
inga, og er þetta helmingi
færra fé, en var í Fjárborg í
fyrra. Að undanförnu hefur
staðið yfir smölun borgarlands
ins og slátrun fjár, sem ekki
er leyfilegt að hafa í borgar
landinu, en þar mun þó ekki
hafa verið um að ræða fé
Fjárborgarmanna, nema þá að
litlu leyti, heldur aðallega ann
arra fjáreigenda, sem fram til
þessa hafa haft fé sitt heima
við hús, eða annars staðar ut-
an Fjárborgar. 1
Fjáreigendur hafa að undan
förnu verið að leita fyrir sér
um kaup á húsum suður á
Hvassahrauni í Hafnarfirði, en
þau kaup hafa ekki átt sér
stað ennþá.
Þess má að lokum geta, að
fyrir nokkru gekk sendinefnd
úr Árbæjar- og Seláshverfinu
á fund borgarstjóra. Bar hún
fram sterkar óskir um, að fé
yrði ekki aftur hleypt inn í
Fjárborg. Mál þetta er allt í
athugun núna, og verður tek
ið fyrir aftur á næsta borgar
ráðsfundi á priðjudaginn kem-
ur.
Framsóknarvist á Hótel Sögu fimmutd. 7. nóv.
Næsta Framsóknarvist
Framsóknarfélags Reykja-
víkur verður fimmtudag
inn 7. nóv. á Hótel Sögu.
KvöldverSlaun verSa veitt
og ennfremur er spilað um
flugför til útlanda sem
heildarverðlaun í þessari
3ja kvölda keppni.
Steingrímur Hermanns-
son, framkvæmdastjóri.
flytur ávarp, og aS lokum
verður dansaS. — Viss-
ast er að panta miða
sem fyrst í síma 24480. þar
sem þegar eru farnar að
berast oantanir.