Tíminn - 06.11.1968, Blaðsíða 7
MIBVIKUDAGUR 6. nóvember 1968.
f HUÓMLEIKASAL
TiMINN
Sinfóníuhljómleikar
Á þriðju tónleikum Siníón
íuhljómsveitar íslands, var stj.
Sverre Bruland, en einleikari
Pétur Serkin, sonur hins vel-
þekkta píanóleikara Rudolf
Serkin, sem svo oft átti lei'ð til
íslanda hér áður fyrr. Eru
bœði einleikskonsertar Serk-
ins og einnig þeir er liann hélt
me'ð tengdaföður sínum Adolf
Busch, mörgum íslendingum
eitt með því minnisstæðasta í
músíktúlkun á árunum eftir
styrjöldina síðari. — Pétur
Serkin er okkur hér nokkuð
kunnur af ágætum leik sínum
hér fyrir tveim árum. — En
ungt fólk á hans aldri er í
stöðugri mótun og deiglu. —
List hins unga manns hefir öðl
azt sjálfstæðari túlkun og
mótast leikur hanns allur nú
af meira sjálfstæði og öryggi.
— Túlkun hans á hinum til-
tölulega sjaldspilaða píanókon
sert Beethovens nr. 2 var bor
inn uppi af innri skilningi, sem
sýnir ótvíræða en jafnframt fá-
gæta hæfileika. — Næmleiki
listamannsins og hin sterka inn
lifun hans, sem virðist ná
hverju hljó'ðfæri hljómsveitar
innar, er vafalaust engin upp-
gerð, en ósjálfrátt tekur fram
koina hins unga manns, við
hljóðfærið talsverðan toll af
hlustanda, og er það illa farið
um svo góðan listamann. —
Hljómsveitarverk á þessum tón
ieikum voru Divcrtimento fyrir
strengi eftir Béla Bartok, og
D-dúr sinfónían eftir Brahms.
— Það má segja að hjá Bartolc
sé aldrei komið áð tómum kof
anum. í hans smæstu verkum
liggja duldir töfrar, og í liinu
stóra formi getur hann orðið
á borð við vísindamann, en allt
af þó með ljóðrænan undirtón.
Divertimenlo hans fyrir strcngi
er flókið og mikið unnið verk,
sem hijómsveitin lagði sig fram
um áð Je.vsa sem allra bezt og
átti adagio þáttUrinn þar einna
fallegastar línur. — D-dúr sin
fónía Brahms, er aðgangshörð
í túlkun og heimtar þess utan
fjölmennari hljómsveit en við
höfum á að skipa, — með tilliti
til }>cssa má segja að oft hafi
leiftrað af hinum, þéltu svip
myndum sem reka hver aðra,
og þá jafnbezt í öörum þætti
verksins. Undir ágætri stjórn
Sverre Bruland voru þessir tón
leikar að efnivali og útfærslu
á margan hátt til ánægju.
Einleikara og stjórnanda var
mjög vol íagnað.
Uninir Arnórsdóttir.
Píanótónleikar
Ung listakona, áð nafni Ha-
dessa Sehwimmer, frá ísrael,
hélt píanótónleika á vegum Tón
listarfélagsins í byrjun vikunn
ar. — Hadessa Schwimmer, hef
ir aðallega hlotið menntun sína
í Belgíu en síðan stundaö fram
haldsnám hjá ýmsum þekktustu
kennurum Evrópu, og er hún
nú starfandi bæði, sem kenn
ari og píanóleikari. — IIún|hef
ur til að bera marga kosti nins
góða píanóleikara svo sem þétt
an og góðan áslátt, haldgóða
tækni og ber túlkun hennar
vott um mjög_ vandvirknisleg
vinnubi’ögð. — í þrem sónötum
sem listakonan lék eftir Haydn,
Chopin og Bartok, var túlkun
hennar á Haydn, mjög.fáguð og
sannfærandi og í Bartok sýndi
hún hnitmi'ðaðan og lifandi leik.
í b-moll sónötu Ohopin, má
segja að listakonan sýndi snyrti
legt yfirbragð, en sú dulmagn
aða ólga sem undir býr var
henni fjarlæg. Túlkun hennar
á hæga kaflanum (sorgarmars
inum) var mjög til fyrirmyndar.
Um Paganini — eííidur
Liszt's má segja að þær séu
algjör „virtuosa“ - verk þótt
sá eiginleiki þeirra eigi meira
að skynjast en heyrast. Hadessa
Schwimmer lék margar þess
ar etúdur af mikilli vandvirkni
og oft af leikni en náði tæpast
hinu stóra flugi.
Listakonunni var vel íagnað
og lék hún aukalag, þótt áheyr
endur væru tiltakanlega fálið
aðir.
Uiinur Arnórsdóttir.
Góð bújörð
á Su'ður- eða Suðvesturlandi óskast til kaups, eða
leigu frá 1. apríl eða síðar.
Uppl. í síma 40546 milli kl 7—8 á kvöldin.
Tilb. leggist inn á afgr. blaðsins fyrir 15. nóv.
merkt: ,,Bújörð“.
SS’EGILLIN'M
EFNI M.A:
'ÓLI GAUKUR
FJALLKONUÚIÐT.
T)ÝRE> DROTTIMS
VALUR-BENFICA
SAMTÍÐARMENN
STOÖRNUSPÁ
HVERTANN KÓIUMBU5?
TÁNlKIGAÞÁTTUft
OGMARGTFLEIRA.
KVÖLDVAKA
verður að BORG í Grímsnesi föstudaginn 8. nóv-
ember kl. 21,30.
Björn Th. Björnsson iistfræðingur ræðir um
myndlist og sýnir lit-skuggamyndir.
Vala Kristjánsson syngur lög úr vinsælum söng-
, leikjum.
Þórkatla Hólmgeirsdóttir les ljóð.
Myndagetraun og fleira.
Kvöldvökunefnd.
FYRIR IIEIMIU OC, SERIESTOFUR
DE
EUXE
■ FRÁB.F.R gæði
■ FRÍTT STANDANDI
■ STÆRÐ: SOXlfiO SM
■ VIÐUR: TliAK
■ FOI.ÍOSKÚFFA
■ ÚTDRAGSPLATA MEÐ
GLERI A
■ SKÚFFUR ÚR EIK ■
HÚSGAGNAVERZLUN
REYK J AVÍKUR
BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 11940
TSL
SÖLU
Notaðar hurðir til sölu.
Uppl. 1 síma 37666.
'BÚNAÐARBANKINN
cr lianlíi irillisiiis
ALAFOSS
GÓLFTEPPI
Kirkjukórasamband
Reykjavíkurprófastsdæmis
minnist 20 ára afmælis síns
með hófi að Hótel Borg föstudaginn 8. nóv.'1968,
er hefst kl. 8,30 e.h.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Kórfélagar, og aðrir veiunnarar kirkju og kirkju-
söngs, fjölmennið.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Undirbúningsnefndin.
RAFSUÐUTÆKI
S
handhæg og ódýr
Þyngd 18 kg.
Sjóða vír 2,5—3,0—3,25 mm
RAFSUDUÞRÁÐUR,
RAFSUÐUTANGIR,
RAFSUÐUHJÁLMAR,
RAFSUÐUKAPLAR,
góðar teg. og úrval.
S M Y R I L L
Ármúla 7. Sim 12260.
Erlinqur Bertelsson
liéraðsdómslögniaður.
Kirkjutorgi 6,
sími 1-55-45.
Vörubílar - !
Þungavinnuvélar:
Höfum mikið úrval af vöru
bflum og öðrum þunga-
vinnutækjum. Látið okkur
sjá um söluna.
Bíla- og búvélasalan
v/Miklatorg-
Sími 23136. heima 24109
SKIPAIÍTGCRB RlhlSINS
M/s Herjólfur
fer til Vestmannaeyja, Horffla-
fjarðar og Djúpavogs 7. þ.m.
Vörumóttaka í dag.
M.s. Herðubreið
fer austur um land í hringferð
13. þ.m. Vörumóttaka miðviku
dag, fimmtudag og föstudag
til Breiðdalsvíkur Stöðvar-
fjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Reyð
anfjarðar, Eskifjarðar, Norð-
fjarðar, Mjóafjarðar, Seyðis-
fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna
fjarðar, Bakkafjarðar, Þórs-
hafnar, Raufarhafnar og Kópa
skers.
Hemlaviðgerðir
Rennum bremsuskálar. —
slípum bremsudælur.
Límum á bremsuborða og
aðrar almennar viðgerðiT
HEMLASTILLING H.F.
Súðarvogi 14 Sími 30135
I