Vísir - 04.08.1977, Síða 1
ENN VANTAR HUNDRUD
MILLJÓNA
Enn hafa ekki fengist
greidd þau hundruð
milljóna, sem islenskir
saltfiskframleiðendur
e|ga inni i Zaire.
Hér er um að ræða
greiðslu fyrir um 500
tonn af saltfiski, sem
flutt voru með sérstöku
skipi til Zaire i septem-
FRÁ ZAIRE
ber i fyrra.
„Kaupendur þessarar vöru
hafa f yrir löngu greitt fyrir hana í
heimalandi sinu, en þaö eru viö-
skiptabankar þeirra, sem ekki
hafa fengiö gjaldeyri til aö greiöa
þetta til okkar”, sagöi Friörik
Pólsson, skrifstofustjóri hjá Sölu-
sambandi islenskra fiskframleiö-
enda i morgun.
Hann sagöi, aö athuganir, sem
geröar heföu veriö, heföu sýnt, aö
peningarnir væru fyrir hendi, en
gjaldeyrinn vantaöi.
Þessilangidrátturá greiöslum,
sem nema hundruðum milljóna,
hefur aö sjálfsögöu skapaö um-
talsverð vandamál fyrir hina
islensku framleiöendur.
ESJ.
Timbursmyglið ó
Keflavíkurf lugvelli:
Ríkissaksóknari
krefst frekari
rannsóknar
Rannsókn á timbur- af Keflavikurflugvelli
stuldi og smygli á þvi út stendur enn yfir. Var
málið komið til Rikis-
saksóknara til ákvörð-
unar, en nú hefur það
verið sent aftur til lög-
reglustjóraembættisins
á Keflavlkurflugvelli til
frekari rannsóknar.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
Hannessonar þar, er þess að
vænta að rannsókn ljúki innan
skafnms, og verður málið þá sent
aftur til Rikissaksóknara.
Mál þetta snýst sem kunnugt er
um stuld og smygl á timbri út af
Keflavikurflugvelli. Er talið að
þar hafi verið að verki starfs-
maður við flutningadeild Varnar-
liðsins, og var timbrið flutt á bil
sem notaður hafði verið i öðrum
flutningum þar. Hefur bilstjórinn
boriö að hann hafi ekki vitað um
hvaðhann varað flytja, en starfs-
manni Varnarliðsins var hins
vegar gefinn kostur á að segja
starfi sinu lausu. Hefur hann þvi
látið af störfum fyrir Varnarliðið
samkvæmt upplýsingum sem
Visisr hefur aflað sér.
Ekki er vitað nákvæmlega
hversu mikið magn af timbri hér
um ræðir, en það var notað við að
býggja sumarbústaði austur i
Hreppum.
—AH
Kœrufrestur
rennur út
annað kvöíd
„Kærufresturinn rennur út
annað kvöld og getur fólk
kumið kærum sinum i póst-
kassa okkar til miðnættis”,
sagði Gestur Steinþórsson,
skrifstofustjóri Skattstofu
Reykjavikur, i samtali við
V'isi i morgun.
Talsvert af kærum hafa
þegar borist til Skattstof-
unnar, en Gestur sagði -að
búast mætti við að margir
kæmu siöasta daginn.
A siðasta ári kærðu 3.450
aðilar i Reykjavik álögð
gjöld sin. Það er misjafnt
hve langan tima tekur að
afgreiða þessar kærur,
sumar eru vegna smáræðis
en aðrar fjölþættari. öllum
kærum er svarað skriflega
og svörin rökstudd og af-
greiðsla getur þvi tekið
nokkurn tima. —SG
„Svona ætti að vera hvern einasta dag” er eflaust þaö nafn, sem flestir vildu gefa þessari litmynd Jóns
Þórissonar af sólinni yfir Keykjavík. Nú hafa ibúar suðvesturhorns landsins notið sólar undanfarna tvo
daga og enn var bjartviðri i morgun, þannig að allir ættu aö vera ánægðir.
„Svona œtti að vera..."
,,Ég held að það sé óþarfi að
hafa með sér regnföt i dag, þó
stundum geti það verið
trygging fyrlr sólskini!” Að
■sjálfsögðu eru þessi spámanns-
orð komin frá Páli Bergþórs-
syni, en Visir leitaði i morgun
álits hans á veðurútlitinu.
Nú stendur yfir hringdans
lægðar nokkurrar yfir Græn-
landi og Grænlandshafi. Þau
dansspor fæða af sér norðanátt
á Fróni. A Norðurlandi þýðir
þetta kalsarigningu, en vætan
nær vart suður yfir heiðar. Er
búist við björtu veðri i höfuð-
borginni i dag.
„Við höfum alls ekki yfir
neinu að kvarta”, sagði Páll
Bergþórsson i morgun. „Júli-
mánuður náði nokkurn veginn
hitameðallagi, og þetta hefur
ekki veriðeins slæmtog i fyrra.
Að visu hefur verið mjög sólar-
litið siðan i júni, en það hafa
komið nokkrir mjög góðir
dagar, og mér finnst það betra
en aö dreifa sólskininu inn á
milli”.
—HHH
Rikisútgófuna á
að leggja niður
og fleiri óarðbœr ríkisfyrirtœki
— Sjá grein Vilhjálms Egilssonar
bls. 10-11
Ætlarðutil Akraness
eða um
Borgarfjörðinn?
Þá ættiröu aö notfæra þér kynningu Vísis i
dag á þvi sem þar er að sjá. Þátturinn á
Faraldsfæti er á áttundu og níundu siðu.
Sérann er skoskur,
talar íslensku og
esperanto og vill
búa í sveit hér
— Sjó viðtal bls. 10-11