Vísir - 12.08.1977, Blaðsíða 11
11
VISIR Föstudagur 12. ágúst 1977
Hvað gera þingmenn í sumarfríinu?
„Kynni mér
mólef ni sjáv-
arútvegsins"
- segir Guðmundur H. Garðarsson, alþm.
,,Ég hef aðallega not-
að timann til að við-
halda tengslum minum
við sjávarútveginn”,
sagði Guðmundur H.
Garðarsson alþingis-
maður i stuttu spjalli
við Visi i gær.
Guðmundur vann áður hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
og hefur verið þar mest af i
sumarog þvi ekki tekið sér neitt
eiginlegt sumarfri.
„Ég ferðaðist mikið um
Norðurland og Austfirði” segir
Guðmundur ennfremur, ,,og
kynnti mér þar frystihús og
rekstur þeirra. Þá langaði mig
lika til að sjá þann fisk sem ver-
ið hefur að koma að landi, enda
hefur mikið verið talað um
smáfiskadráp undanfarið.”
„Mér virtist hins vegar sem
langmestur hluti aflans væri
þessi svokallaði millifiskur. Og
það sem vakti sérstaklega at-
hygli mina var það hve vel er
farið með aflann, þetta er mest
kassafiskur og mjög vel farið
með vöruna.”
Þá segist Guðmundur einnig
hafa talað við skipstjórnarmenn
á ferð sinni, og segir hann þá
hafa að mörgu leyti aðrar skoð-
anir á fiskverndunarmálum og
nýtingu fiskimiðanna en fiski-
fræðingarnir”.
En hvað með sumarfriið?
„Já, það er ekki annað en
þessi ferð. En þegar farið er i
ferðalag svona um landið er það
sjálfsögðu viss tilbreyting í þvi,
og ekki verra fri en hvað annað.
Við fórum hjónin með strák-
inn okkar og þar sem hann
hefur mikinn áhuga á veiðiskap
stönsuðum við annað slagið til
að renna fyrir silung. Við vorum
frekar heppin með veður,
þannig að ferðalagið tókst ágæt-
lega sem skemmtiferð i bland.
Við veiðarnar stoppuðum við
einu sinni við Grimsá á Héraði,
ogþarfékk strákurinn einn lax.
Það er verið að rækta þessa á
upp, og okkur var sagt að þetta
væri einn fyrsti laxinn sem
veiddist i ánni.”
Eftir að Guðmundur og fjöl-
skylda koma svo heim úr ferða-
laginu segist hann svo hafa
verið við störf sin hjá Sölu-
miðstöðinni.
—AH
Sagt er að Karvel Pálmason sé tískuklæddur mjög I
þingsölum
Nýr flokkur, sem ætlar sér eitthvað,
verður að gæta þess að tryggja fjárhags-
legar undirstöður áöur en farið er af stað,
nema alfarið verði byrjað að kosta
flokkastarfsemina af opinberu fé. Auðvit-
að mundi slik tilhögun breyta mörgu til
batnaöar, þótt ekki létti hún byrðar skatt-
borgarans.
Móðurskip sokkið
Með nýlegriyfirlýsingu er siðari tilraun
til flokksmyndunar fyrir bi. Karvel
Pálmason hefur lýst þvi yfir, að hann
muni bjóða sig fram utanflokka i næstu
þingkosningum. Er þá sokkið það móður-
skip sem haldiö hefur tveimur þingmönn-
um Samtaka vinstri manna og frjáls-
lyndra inni siðasta kjörtimabil.
Samtimis hefur Magnús Torfi formaður
Samtakanna lýst þvi yfir að stefnt verði
að framboðum fyrir flokkinn I öllum kjör-
dæmum. Sú yfirlýsing telst fremur til
virðingarverðrar kokhreysti og seiglu en
raunveruleikans. Enn stendur þó Magn-
úsi Torfa opið að bjóöa upp á kosninga-
bandalag við þann flokk sem Samtaka-
menn kunna að kjósa sér til fylgilags og
má undarlegt heita hvað hann hefur tekið
illa i slika hugmynd.
Enn stendur Magnúsi Torfa opið að bjóöa upp á
kosningabandaiag viö þann fiokk, sem Samtaka-
menn kunna að kjósa sér'til fylgilags, og má undar-
legt heita hvaðhann hefur tekið illa i slika hugmynd
Meðaialdur rfkisstjórnarinnar er 1 iægra lægi vegna
aldursleysis Matthíasar A. Mathiesens og Geirs Hall-
grimssonar.
Best klæddi þingmaðurinn.
Sagt er að Karvel sé tískuklæddur mjög
i þingsölum. Hlýtur að vera gaman fyrir
Vestfiröinga að vita að hann gleöur aug-
að. Varla gleður hann mikið annað —
maður einn á báti i stjórnarandstöðu. Lik-
legt er að Karvel eigi eftir aö hafa áhrif á
framboðstiskuna i næstu kosningum.
Stafar það af vaxandi óánægju með kjör-
dæmaskipulagið og hina mörgu föstu
frambjóðendur á listum flokkanna.
Fjöldi ungra og áhugasamra manna
hugleiðir áreiöanlega þann möguleika að
fara i óháö framboð, enda sjá þeir ekki
fram á þann dag aö rúm veröi fyrir þá á
listum setuliðsins. Akvörðun Karvels gæti
hæglega orðiö til þess að ýta undir aðra
meöþeim afleiðingum aö kjósendur gætu
valið á milli nokkurra óháöra frambjóð-
enda.
Að visu þarf mikið sjálfsálit og mikla
hreysti til að halda út i slikt ævintýri. En
þau gætu vakiö athygli á einstaklingum,
sem annarsyrðu að láta sérnægjaað sitja
langt fram eftir ævi sem nokkurs konar
vonbiölar peningavaldsins i flokkunum —
eða gleymast alveg i skugga hinna elli-
móðu. IÞG
Kosningabandalag við Samtakamenn
gæti orðið ávinningur einstökum flokki i
vissum kjördæmum, en héldi um leið við
þvi blaktandi skari sem Samtökin eru
orðin. Mundi þá enn loga á týrunni um
sinn þótt Karvel hafi kvatt.
,,Já, einmitt Alþýðuflokkur-
inn”
Menn, sem komnir eru á miðjan aldur,
hafa orðið áhorfendur að ýmsum tilraun-
um innan flokkanna til breytinga. Flestar
þessar tilraunir hafi verið hafnar til að
lyfta einstaklingum nokkuð til vegs á
vettvangi stjórnmálanna. Þær hafa yfir-
leittstrandað hafi þærgengið mjög á móti
hagsmunum fjármunavaldsins i flokkun-
um.
Þannig hefur ekki tekist að skilja á milli
hugsjóna og peninga. Og nýjustu flokk-
arnir hafa dáiö úr fjárskorti fremur en
öðrum skorti, þvf að alltaf eru nægir
menn tilað reyna, jafnvel I flokkslegum
andarslitrum eins og nú á sér stað I Al-
þýöuflokknum.Menn hrökkva-kannski við
og segja: Já, einmitt Alþýöuflokkurinn.
Hann er auðvitað að deyja vegna skorts á
fjármunum. Svo er þó ekki.
Alþýöuflokkurinn á miklar eignir. Þeirra
er bara gætt svo vel af gömlu vörðunum i
flokknum að honum nýtist ekki af þeim,
hvorki til flokksstarfseminnar né blaðs-
ins. Má það undarlegt heita ef það á fyrir
Alþýðuflokknum að liggja að lognast út af
mitt I lóðum og fasteignum i borginni.
Karvel sæmilegar settur sem
óháúur
Sé viðbragð Karvels Pálmasonar skoð-
að ögn betur kemur i ljós að hann er ef-
laust sæmilegar settur sem óháður fram-
bjóðandi en þingmannsefni Samtakanna.
Hvorugur kosturinn er auðvitað góöur
eins og nú er komið, en hið óháða framboð
hans sýnir, að hann vill hverfa standandi
af þingi. Þó getur alveg eins farið svo að
hann vinni kosningar bestra einu sinni
enn, og hefur þá svo sannarlega tognað úr
kennaranum frá Bolungarvik.
Þar kemur einnig til að Jón Hannibals-
son og Sighvatur Björgvinsson berjast nú
um efsta sætið á framboðslista Alþýðu-
flokksins, og virðist slik gjá vera á milli
þeirra, að vel getur farið svo að Karvel
hagnist á deilunni.