Vísir - 11.09.1977, Page 15
15
VISIR
Sunnudagur 11. september 1977
Mælirinn fyllist.
Dr. Crippen virtist algjör and-
stæða þessa fólks. Hann var
hæglátur, hlédrægur og auð-
mjúkur. Og þegar upp i rúm
Cora skreið bandarfskur
skemmtikraftur, Bruce Miller
að nafni, varð læknirinn að
launalausum þjóni i sinu eigin
húsi.
Til þess að standa straum af
kostnaði við leikbúninga- og
hárkollukaup sin leigði Cora út
herbergi til leikhúsfólks af
ýmsu tagi. Þar eð hún var sjálf
of löt til að annast leigjendur
sina og of mikil nánös til að ráða
þjónustustúlku, neyddi hún eig-
inmann sinn til að vakna
snemma á morgnana til að
sinna leigjendunum. Hann
hlýddi orðalaust. Eftir að hafa
séð fyrir morgunverði o.s.frv.
hélt hann sfðan til vinnu sinnar.
Þar naut hann sér til huggunar
og hughreystingar einfaldrar,
kröfulitillar ástar Ethel Le
Neve, sem hann hafði ráðið til
ritara- og bókhaldsstarfa.
Ethel, sem var ógift, var 24
ára, skilningsrik og blið, — sem
sagt andstæða Cora. Þrjú ár liðu
og Crippen og Ethel hittust á
laun i ódýrum hótelherbergjum
til þess að njóta ásta. Cora hélt
ótrauð sinu striki og i leit að
frama á óperusviðinu var hún
bauluð niður á fyrstu og einu
söngskemmtun sinni i Bedford
Music Hall i Camden Town.
Þegar hana vantaði staðgengil
Crippen læknir með nokkra af
skartgripum konu sinnar til
veðlánara og fékk fyrir þá 80
pund. Siðan skrifaði hann Tón-
listarfélagi kvenna, þar sem
Cora var gjaldkeri, og sagði að
húngæti ekki mættá fleiri fundi
þar eð hún væri farin til Banda-
rikjanna að heimsækja veikan
ættingja.
,,Hún lést úr lungna-
bólgu...”
Til að byrja með vakti þetta
enga sérstaka athygli, þótt
grannarnir glenntu upp augun
þegar Ethel Le Neve flutti inn
með Crippen i Hildrop Crescent
og sást i hverfinu iklædd fötum
og pelsum sem Cora átti.
En iraun var frú Crippen ekki
langt i burtu. Holdlegar leifar
hennar a.m.k. voru grafnar i
kjallaranum, vafðar i náttjakka
og þaktar óleskjuðu kalki, en
beinin höfðu verið brennd i mið-
stöðvarofninum, sem Crippen
hafði hreinsað vel og vandlega á
fjórum fótum.
26. mars setti Crippen auglýs-
ingu um andlát konu sinnar i
timaritið Era. ,,Hún lést úr
lungnabólgu”, sagði hann við þá
er vottuðu samúð sina, „hátt i
fjöllum Kaliforniu.”
Menn tóku þetta trúanlegt, og
svo virtist sem Crippen hefði
getað kvænst elskunni sinni og
lifað i lukkunnar velstandi til
æviloka. En það sem siðan gerð-
istverður vart skýrtá rökrænan
Hinsta ósk Crippens var að ljósmynd af Ethel yrði grafin með
honum eftir aftökuna.
fyrir ástmenn sina greip Cora
enn til aumingja Crippens og
þar kom að mælirinn fylltist.
Síðasta kvöldmáltiðin
Hannfórað reyna að draga úr
ástrföum hennar með hyoscine,
-eiturlyfi sem notað var til að
róa taugar og viö dáleiðslu. 17.
janúar 1910 keypti hann dr júgan
skammt af lyfi þessu. Tveimur
vikum siðar bauð hann Paul
Martinetti og konu hans til
kvöldverðar, en þau voru vina-
fólk Cora úr tónlistarlifinu. Kl.
1.30 aðfararnótt 1. febrúar lauk
veislunni, Martinettihjónin
kvöddu Cora, sem haföi verið
upp á sitt besta allt kvöldið,
smjaðrandi fyrir gestunum og
skammandi eiginmanninn.
Martinettihjónin áttu þess
ekki kost að skiptast á leikhús-
slúðri við Cora aftur. Mánuöi
eftir kvöldverðarboð þetta fór
hátt, nema menn liti á gerðir
mannsins i' ljósi Freudiskrar
löngunar i undirmeðvitundinni
til þess að leiða athygli að
glæpnum.
Flóttinn
Hann fór með Ethel á dansleik
i Tónlistarfélagi kvenna. Þar
. bar hún áberandi demants-
br jóstnælu sem siðast hafði sést
á holdmiklum barmi Cora.
Fregnir af þessari „smekk-
leysu” bárust til Scotland Yard,
og i júli heimsótti Dew, lög-
regluforingi Crippen lækni og
heimili hans.
Læknirinn játaði þá lágri, ró-
legri röddu að Cora lægi ekki i
gröf sinni á vesturströnd
Bandarikjanna. Hún hefði
hlaupist á brott með sinum
gamla ástmegi Bruce Miller, og
byggju þau einhvers staðar i
Bandarikjunum. Stolt hans
hefði hins vegar ekki leyft að
skýrt yrði frá þessu opinber-
lega.
Þetta virtist skynsamleg
skýring, en engu að si'ður öskaði
lögreglumaðurinn eftir þvi að fá
að leita i húsinu frá háalofti til
kjallara. Burtséð frá gömlum
fötum fann hann ekkert sem
minnti á Coru, og fór burt við
svo búið.
Crippen lá ekki undir grun af
neinu tagi, og hefði getað dvalið
áfram þar sem hann var án þess
að lögreglan truflaði hann frek-
ar. Hins vegar gat hann ekki
talið sjálfum sér trú um að Dew
hefði trúað sögu sinni. Hann
varð heltekinn óttanum um
handtöku. Hann keypti drengja-
klæðnað handa Ethel og flúði til
Rotterdam meðhenni. A meðan'
þau voru enn i Hollandi kom
Dew, lögregluforingi öðru sinni
til Hilldrop Crescent i þeim til-
gangi að kanna frekar tima-
setningu á flótta Cora og Bruce
Millers, en kom að húsinu auðu.
Handtökuheimild.
Nágrannarnir sögu að ekki
væri búist við Crippen og ,,ráðs-
konu” hans aftur. Dew hóf nýja
rannsókn og lét nú grafa I kjall-
aranum. Þar fundust m.a. karl-
mannsnáttjakki, hlutar úr rass-
kinnum, skinntjásur og vöðva-
bitar, liffæri úr br jósti og maga.
Þótt ekki mætti ráða af þessum
leifum hvort þau væru af karli
eða konu, sýndi vefjastykki að
viðkomandi hafði gengist undir
kviðarholsuppskurð. Þetta kom
heim og saman við það litla sem
vitað var um Cora, og 16. júli
1910 var gefin út handtökuheim-
ild á Crippen og Le Neve.
Fjórum dögum siðar stigu
þau um borð i S.S. Montrose i
Antwerpen og hófu sérkennilegt
en misheppnað ferðalag sitt til
frelsis sem faðir og sonur. Við
komuna til Kanada handtók
Dew þau.
Hinsta óskin.
„Góðan dag, Dr Crippen”,
sagði Dew hressilega þegar þau
hittust I káetu Kendalls skip-
stjóra. ,,Ég er Dew lögreglufor-
ingi frá Scotland Yard. Ég geri
ráð fyrir að þér kannist við
mig”.
Crippen hvitnaði en sagði:
„Góðan dag, hr. Dew”. Er hon-
um var sagt að hann væri hér
með handtekinn fyrir morð og
limlestingar á eiginkonu sinni
svaraði Crippen engu. Þau voru
siðan flutttil Quebec og mánuði
seinna til Englands, þar sem
þau komu fyrirrétt I Old Bailey.
Mál læknisins var tekið fyrir á
undan. Það hófst 18. október
1910 og lauk fimm dögum siðar.
Frá upphafi var ljóst að hann
yrði dæmdur sekur, og hann
virtist engar áhyggjur hafa af
örlögum sinum. Afturámóti hélt
hann þvi statt og stööugt fram
að Ethel væri saklaus og heföi
ekkert vitaö um morö Cora. Er
hann hafði verið lýstur sekur
beið hann i mikilli örvæntingu
eftir dómi Ethel.
ótti hans var ástæðulaus.
Verjandi hennar, snjall lögfræð-
ingur F.E.Smith að nafni skor-
aði á ákæruvaldið aö sanna sekt
hennar, en það tókst ekki. Hún
var sýknuð og slðan sleppt.
Crippen sjálfur óskaði einskis
annars en að fá að deyja, og
honum varð að ósk sinni. Hann
var hengdur 23. nóvember.
Hinsta ösk hans var að ljós-
mynd af Ethel yrði grafin með
honum. Ethel Le Neve hvarf að
réttarhöldum loknum og spurð-
ist ekkert til hennar eftir það.
(AÞ tók saman)
LAIHGAIH
háls?
Algjör óþarfi
Leiktœkin eru í
þœgilegri hœð fyrir
flest alla
\ Leiktæki sem allir
I aldursflokkar geta
1 unaö við.
UNGIRSEM
i AIDNIR
Fjöldinn allur af margs
kyns leiktækjum m.a.:
Q\ — Mörg kúluspil
— Körf uboltaspil
)r 1 — Gjafmildur fíll
ju/M — Sjónvarpsleiktæki
— Byssa
Járnklóin
t)yíy — Djúp Box
/3 - — Boxaratæki
fp'Á — Helkopter
\y f\ 7 — Kappakstursbíll
\\\ (ios & sælgæti
j, Leiktœkjasalurinn |ók«ií
3 GRENSÁSVEG 7
VISIR
smaauqlvsinqar
... og textinn á aó vera svona:
"Glataóur starfskraftur
i boói...''
Allir þeir sem birta smáauglýsingu i VÍSI á meðan
sýningin Heimilió '77 stendur yfir, veróa sjálfkrafa
þátttakendurí smáauglýsingahappdrætti VÍSIS.
Vinningurinn - Philips litsjónvarpstæki - veróur
dreginnút 15-9 -77
____M
Smáauglýsing i VÍSI er engin sma auglýsing
simi 86611