Vísir - 09.12.1977, Side 27
VISTR
Föstudagur 9. desember 1977
C
31
Hringiðisíma 86611 milli klukkan 13 og 15 eða skrifið til Vísis Síðumúla 14, Reykjavík.
)
Enginn meistarí
■enginn ábyrgur?
Hreinn Þorvaldsson, byggingastjóri Mosfellshrepps skrifar:
Meistaraskyldan ekki
afnumin
Það var einnig minnst á hið
nýja frumvarp að byggingarlög
um, þar sem gert er ráð fyrir
starfi byggingarstjóra viö mann-
virkjagerð. Mosfellshreppur hef-
ur tekið þetta upp og það fyrir
nokkrum árum. Það hefur ein-
ungis verið notað við byggingar
hreppsins. Þá eru meistarar
ráðnir hver i sinu fagi. Starf
byggingastjórans er að samræma
allar framkvæmdir og
skipuleggja starfið við bygging-
una frá grunni til loka verksins.
Hreppurinn hefur lokið tveimur
stórframkvæmdum þ.á.m.
iþróttahúsi, á þennan hátt og báð-
ar hafa reynst langt undir kostn-
aðaráætlun. Það er minn skiln-
ingur, að ekki sé ætlunin með
þessu nýja frumvarpi, að afnema
meistaraskylduna, enda séu
meistarar ábyrgir hver fyrir sin-
um verkþætti. Ég álit þvi, að
byggingastjóra ætti að ráða við
öll stærri mannvirki en ekki við
byggingu ibúðarhúsa. Þar yrði
þeim ofaukið og meistaraskyldan
nægði. Það er þvi langt frá þvi, aö
hinu nýja frumvarpi til bygg-
ingarlaga sé ætlað að afnema
meistaraskylduna.
Hreinn Þorvaldsson.
Eg get ekki orða bundist eftir
að hafa lesið grein þá sem birtist
i Visi i gær og bar heitið: Hat-
römm deila i Mosfellssveit,
Byggingameistararnir snið-
gengnir.
Eg tel mig vera kunnugan mál-
inu þar eð ég var byggingafulltrúi
i hreppnum um 10 ára skeið eða
til ársins 1974, er ég varö bygg-
ingastjóri hreppsins.
Fúskarar fæddu af sér
byggingarfélög
Aðdragandi þessa máls er sá,
að á árunum fram til 1970 var litiö
um nýbyggingar i Mosfells-
hreppi. Mjög fáir meistarar I
byggingaiðnaði áttu hér heima og
byggjendur höfðu ekki tök á þvi
að ráða sér meistara annars stað-
ar frá. Þvi má segja að starf
mitt á þessum árum hafi verið
ráðgjafastarf öðru fremur, jafn-
framt þvi að annast úttektir járna
o.fl. sem felst i starfi bygginga-
fulltrúa hreppsins. Þar af leiddi,
að ekki þótti ástæða til þess að
hafa meistara á húsum, fremur
en i öðrum sveitum og þorpum.
Eftir 1970 varð gifurleg aukning
byggingaframkvæmda. Hrepps-
nefnd úthlutaði fjölda lóða bygg
ingamenn og braskarar fengu byr
undir báða vængi. Engin meist-
araskylda var á staðnum, hver
sem var gat byggt. Sumir fengu
margar lóðir jafnvel 10-20 hver.
Fúskarar fæddu af sér bygginga-
félög og hús gengu kaupum og
sölum. Hugleiðið aðstöðu bygg-
ingafulltrúa sem kemur á stað-
inn, enginn meistari, enginn
ábyrgur.
Engin tilviljun að
Sæberg sé á móti meist-
araskyldu
1 áðurnefndri grein er þvi hald-
ið fram, að með núverandi fyrir-
komulagi, þ.e. engin meistara-
skylda, sparist geysilegar fjár-
hæðir allt að 40% af kostnaðar-
verði húss. Mér er það til efs, að
þessi útreikningur sé réttur, þar
eð meistaraþóknun reiknast
aðeins á vinnulaun, sem lauslega
má áætla u.þ.b. helming kostn-
aðar fullgerðs húss.
Þar sem meistaraskylda er
ekki i Mosfellshreppi, er þá ekki
Til hóbor-
innar
skammar
Pétur skrifar:
Það er nú til háborinnar
skammar að sýna aðra eins
biómynd og sýnd var laugar-
daginn þann 3.12. Þessi mynd
var i alla staði frámunalega
leiöinleg og óskemmtileg og
þar að auki var hún mjög
sundurlaus. Ef sjónvarpið
getur ekki valið skárri myndir
en þessa til sýninga, þá er það
illa á vegi statt.
Og iþróttaþættirnir mættu
lika vera fjölbreyttari, t.d.
sýna meira um bila og mótor-
hjól. Ég verð þó að fagna þvi
að myndaseríurnar sem koma
frá Sænska sjónvarpinu skulu
komnar aftur þvi þær eru
ljómandi skemmtilegar.
eðlilegt aö álita að verö húsa þar
sé 30-40% lægra en annars staðar
á Stór-Reykjavikursvæðinu þar
sem meistaraskylda er i fram-
kvæmd. Jú vissulega væri það
rökrétt ályktun, en svo er ekki.
Hver sem er getur sannreynt það,
með þvi að bera saman verð hjá
fasteignasölum.
Þvi spyr ég, hvert fara þessi
30-40%? Hver hagnast á því að
meistaraskyldan hefur ekki kom-
ist á? Eru þaö þeir sem byggja og
selja? Það er engin tilviljun aö
Sæberg Þórðarson einn hrepps-
nefndarmanna sem vitnað er til i
áðurnefndri grein, sé á móti
meistaraskyldu i Mosfellshreppi.
Hann hefur um árabil staðið að
byggingafélagi sem fengið hefur
hverja lóðina af annarri og byggt
og selt án meistarasamþykktar.
Ég læt þetta nægja um þennan
hluta greinarinnar en vonast til,
að hreppsnefnd endurskoði af-
stöðu sina.
Bifreiðaeigendur
athugið
Við lagfærum hemla á öllum gerðum bif-
reiða. 17 ára starfsreynsla tryggir yður
góða þjónustu. Framkvæmum ennfremur
almennar viðgerðir, ef óskað er. Höfum
ávallt fyrirliggjandi hemlahluti i allar
gerðir ameriskra bifreiða á mjög hag-
stæðu verði.
STILLJNG HF.“n
31340-82740
TtCavpmenn-
OCaupJélöq
jólaumbúöapappír
í 40 CM OG 57 CM BREEÐUM
ROLLUM ER FYRIRLIGGJANDI.
'Fclaqsprcntsmidjan
SPÍTALASTÍG 10, SÍMI 11640
JSnilínprent
HOFI, SELTJARNARNESI,
SÍMI 15976.
MONSIEUR LANVIN
Herrasnyrtivörur
Rakorostofan
FIGARO
Póstsendum
Iðnaðarhúsinu
Hallveigastig 1. Simi 15434.