Vísir - 12.12.1977, Page 14
14
vísm
Krökkt af efni
■ v o-
fyrir krak la
Skrímslið á Langa-Sanga-Skaga
I jóiablaði Þjóöviljans birtist „ævintýri fyrir alla f jölskylduna",
börnin ekki síður en fullorðna. Sagan með þessu nafni er eftir
Guðjón Sveinsson frá Breiðdalsvik, en hann er kunnur af skrif-
um sínum fyrir börn. Sögunni fylgja margar skemmtilegar
teikningar eftir Árna Ingólfsson.
Gullfiskarnir
I jólablaði Þjóðviljans birtist stutt saga fyrir börn eftir Hauk
Matthiasson og nefnist hún Gullfiskarnir. Sögunni fylgja gull-
fallegar teikningar eftir Sólrúnu Jónsdóttur.
„Barnakompa”
I jólablaði Þ jóðviljans er að sjálfsögðu barnaþáttur Þjóðviljans í
umsjá Vilborgar Dagbjartsdóttur. Að þessu sinni er „kompan"
heilar fjórar siður með margvíslegu efni.
Fróðleikur
Ágúst Vigfússon og Einar Kristjánsson skrifa þætti um þjóðieg-
an fróöleik í jólablað Þjóðviljans.
Jólablað Þjóðviíjans 1977 er fjölbreytt blað sem flytur efni við
hæfi allra i fjölskyldunni.
Jólablað Þjóðviljans 1977 verður 44 síður, og kemur út 14. desem-
ber.