Vísir - 12.12.1977, Side 19

Vísir - 12.12.1977, Side 19
Mánudagur 12. desember 1977 19 I •1 //Jö/ eg er að fara heim" ,,Já ég er aö fara heim”, svaraöi ég einhverjum ókunn- ugum Islendingi, sem spuröi m ig þeirrar spurningar hvort ég væri á heímleiö er ég var aö fara upp i flugvélina tð tslands á dögunum” sagöi Tony Knapp, fyrrverandi landsliösþjálfari okkar er viö ræddum viö hann i gær, en Knapp hefur veriö hér „heima” i stuttu frii aö undan- förnu. Knapp hefuri veturunniö sem þjálfari hjá 1. deildarliöi Nor- wich, en er nú kominn i frí frá þvi starfi. Hann hélt utan til Englands i morgun en reiknar meö að koma „heim” aftur um jólin. Siöan heldur kappinn til Noregs þarsem hann tekur viö þjálfun hjá 1. deildarliöi Vikings i Stafangri I jan. Við spurðum Knapp fyrst að þvi hvernig hon- um litist á riðil þann sem Island er i i Evrópukeppni landsliða. — Auðvitað verður þetta erfitt I forkeppni Evrópukeppninnar, en þetta hefur verið erfitt undanfarin ár. Þrátt fyrir það held ég að næsta ár verði mun auðveldara en mörg undanfarin ár” sagði Knapp. Við eigum aö sigra lið Sviss i forkeppninni, þeireruekkimeðgottlið.Þá tel ég að við eigum að hafa góða möguleika gegn A-Þjóöverjum. Þeir eru nú að byggja upp nytt lið hjá sér vegna þess að þeir komust ekki i Urslit HM og ég tel að þeir séu slakari en þeir voru þegar viö tókum af þeim stig i Magdeburg og sigruðum þá hér heima. Þar af leiðandi tel ég að ísland eigi að hafa góöa möguleika gegn þeim. Við tók- um þrjú stig af þeim þegar ég var með liðið, og það á að takast aö sigra þá núna þegar þeir eru með slakara liö en þá, en þið hinsvegar með sterkara lið. Hollendingar verða i sérflokki i þessum riðli og verða varla sigraðir. Þá verða Pólverjar einnig sterkir, en þeir eru á mikilli uppleið. En knattspyrn- an á íslandi er komin á það stig aö islenska landsliðið getur gengið til leiks gegn hvaða þjóð sem er, óhrætt, og menn eru farnir að taka islenska lands- liðið alvarlega. Við höfum undanfarin ár leikið gegn mörg- um sterkustu liðum Evrópu og staðið okkurvel, ogég hef mikla trú á islenskri knattspyrnu. Þaö eru margir ungir góöir leik- menn að koma inn i landsliðið núna, og ég get nefnt nöfn eins ogAtla Eðvaldsson, Janus Guð- laugsson sem ég tel vera mesta efni i islenskri knattspyrnu, Al- bert Guömundsson, Guðmund Þorbjörnsson, Magnús Bergs, Róbert Agnarsson og áfram mætti telja. Hvernig list þér á ráðningu Youri Ilitchev sem landsliös- þjálfara ef af verður? - SAGÐI TONY KNAPP VII) ÍSLENSKAN , FERÐALANG I FLUGVÉLINNI FRÁ GLASGOW TIL ÍSLANDS Á DÖGUNUM — Ég vil fyrstsegja það að sá sem tekur við minu starfi sem landsliösþjálfarier heppinn, þvi þaö er búiö að vinna mikið starf undanfarin f jögur ár, og nú er baraað byggjaofaná, búið er að byggja grunninn ef svo mætti segja. Ég held, að Youri sé besti maðurinn sem KSÍ getur fengið af þeim mönnumsem hafa verið hér á landi undanfarin ár. Hann hefur náö góðum árangri meö Val, en það er aö visu sú spurn- ing fyrir hendi hvort hann geti gert það sama með landsliöið. Vaiur og Akranes stóðu sig illa i Evrópukeppni félagsliða i haust gegn slökum liðum, og islenska landsliöið á fyrir höndum eriíða leiki i Evrópukeppninni. Ég vildi bara segja það að lokum að ég heföi gjarnan viljaö vera hér áfram, framtið is- lenskrar knattspyrnu er björt, og ég mun fylgjast með islenska landsliðinu, þeireru allir saman vinir mínir, strákarnir, og ég vona að þeir standi sig jafnvel i framtiöinni sem hingað til — vonandi betur. gk- 4

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.