Vísir - 05.01.1978, Blaðsíða 23

Vísir - 05.01.1978, Blaðsíða 23
Útsala + Tollalœkkun = STÓRLÆKKUN UTAVER— LiTAVER — LiTAVER — LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER LITAVER Rannsóknarlogreglan ó að hafa frumkvœðið Maður á Grettisgötunni, hringdi: Við erum hér nokkrir félagarn- ir sem vorum aö ræöa Lands- bankamálið svonefnda. Okkur finnst skrýtið, að Landsbankinn sjálfur sé að safna gögnum í hendur Rannsóknarlögreglunnar. Okkur finnst, að þegar svona stórmál kemur upp og varðar hagsmuni svo margra að Rann- sóknarlögreglan ætti að hafa frumkvæðið i þessu máli. HUn á að fara i bankann og sækja þau gögn sem nauðsynleg eru vegna rannsóknar málsins. Landsbank- innsem hefurorðið uppvis að slæ- legu eftirliti á ekki að skammta þeim upplýsingar. Það er alltaf svo þegar einhver slík mál verða uppvís, aö yfir þeim hvílir mikil leynd og menn fá sjaldan aö vita um lyktir en við viljum fá aö vita hver beri ábyrgð á sllkum málum. Eru þaö ein- stakir starfsmenn, bankastjórar eða bankaráð? „HOFUM EKKERT NEMA SJOPPUNA Þrjár stelpur Ur Garðabæ hringdu: Við erum hér þrjár stelpur úr Garðarbæ sem langar að koma á framfæri athuga- semd til bæjarstjórnarinnar, hvort ekki væri hægt að koma upp einhverju húsnæöi I bænum, sem unglingar gætu komið sam- an I, t.d. eins og Fellahelli I Breiöholti. Mikið hefur verið rætt um skrílslæti I Garðabæ, en við telj- um aðalástæðuna fyrir því vera þá, að við höfum engan stað til að hittast á nema sjoppuna. Við biðjum því bæjarstjórnina aö taka þetta til athugunar, og óskurr, eftir svari frá henni. vism Fimmtudagur 5. janúar 1978 * Hringið í síma 86611 múla 14, Reykjavík. Hvernig er eftirliti 111 ....................m 'ii.-' __ hóttað Guömundur Helgason, hringdi: Ég vinn á stórum vinnustaö og þar eru menn að velta Lands- bankamálinu fyrir sér. Mönnum finnst alveg furðulegt, aö slíkt mál skuli geta komið upp. Er ekk- ert eftirlit með starfsemi ein- stakra deilda innan bankans? Er starfsfólki heimilt að ráöskast meö peninga viöskiptavina bank- ans að eigin vild. Við viljum að þessu verði komið á framfæri og vonumst til að svona hneyksli verði ekki látin liggja I láginni og framvegis verði almenningi gerð betri grein en hingað til fyrir starfsemi peningastofnana I land- inu. „Landsbankinn sem hefur orðið uppvfs að slælegu eftirliti á ekki að skammta þeim upplýsingar” Fellahellir: stelpurnar vilja sambærilega aðstöðu I Garðabæ. TEPPI ER EKKI LENGUR LÚXUS Veggfóður, geysilegt órval 25% afsláttur Fillt teppi, ótrúlegt verð frá kr. 900 pr.m2 Gólfdúkur, stórkostleg Itekkun, frá kr.1200 pr.m2 Kork gólfflísar, Litaversverð kr. 3.475 pr. m2 Kork loftplötur, Litavers verð kr. 2.970 pr. m2 Málning 15% staðgreiðsluafsláttur. Upplágt að byrgja sig upp fyrir sumarið 4m breið nylon gólfteppi frá kr. 2000 pr. m2. Á Litavers útsölu er algjör markaðsstemning Sími 82444

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.