Vísir - 06.01.1978, Síða 1

Vísir - 06.01.1978, Síða 1
Upphaf Landsbankamálsins: Hrein tilviljun að athyglin beindist að ábyrgðagreiðsluin Rannsókn fjársvika i ábyrgðadeild Lands- bankans beinist nú i ýmsar áttir, enda notaði Haukur Heiðar margar aðferðir til að ná út fé. Það má segja að upp hafi komist um fjár- málamisferlið fyrir til- viljun. Fyrirtæki sem óskaði eftir vissum upplýsingum frá ábyrgðadeildinni fékk þá i hendur skjöl sem ekki vörðuðu beint um- beðið mál en leiddu hins vegar til athugun- ar á greiddum ábyrgð- til Landsbankans. um Endurskoðandi þess fyrir- tækis vinnur nú baki brotnu við að kanna greiddar ábyrgðir til Landsbankans nokkuf ár aftur i timann ogóvist hve langan tima það tekur. Viðskipti fyrrverandi deildar- stjóra við nokkur fyrirtæki eru meðal þeirra þátta sem sérstak lega eru til rannsóknar. Þegar Visir ræddi við Erlu Jónsdóttur deildarstjóra Rannsóknarlög- reglunnar i morgun sagði hiin, að nöfn þessara fyrirtækja yrðu gefin upp strax og það væri óhætt rannsóknarinnar vegna. Stöðugt er unnið að bókhalds- rannsóknum og annarri gagna- öflun og sagði Erla að rann- sókninni miðaði vel áleiðis. Aö öðru leyti varðist hún allra frétta og kvað rannsóknina mundu leiða i ljós hvaðan fé það sem talið er að svikið hafi veriö út,væri komið. —SG Verður gripið til gömiu úr- rœðanna ó ný? Sjá fréttauka Vísis, sem Elías Snœland Jónsson blaðamaður skrifará bls. 10 og 11 Loðnuvertíðin: VEÐUR HAMLAR VEIÐUM Loðnuvertiðin fer heldur hægt af stað. Veðrið á miðun- um fyrir austan hefur verið slæmt að undanförnu og þvi litill friður við veiðarnar. í gærkvöldi tilkynntu sjö skip um afla — samtals 1400 tonn. en flotinn varð þá að hætta veiðum vegna veðurs. 1 fyrrinótt var ekkert hægt að veiða vegna veðurs en nóttina þar áður tilkynntu átta bátar að þeir hefðu fengið einhvern slatta. Samkvæmt upplýsingum loðnunefndar voru 26 skip komin á miðin i gær og reiknað er með að fleiri bætist i hópinn i dag og næstu daga. —klp— Þrumur og eldingar! Rafmagnstruflanir þær sem vart hefur orðið að undan- förnu stafa að sögn Lands- virkjunar aðallega af vondu veðri fyrir austan fjall. Ljósblikk af ýmsu tagi hefur verið áberandi og þaö stafar mestmegnis af þvi að elding- um slær niður i rafmagnslin- una austan frá Búrfelli. Auk þess hafa verið bilanir i Sig- öldu og norðurlina er ein- hversstaðar biluð samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkj- un. —GA p| Hollandsprins sótti hingað íslens!ia suðurskautsfara Bernharð Hollandsprins_ kom hingað til lands í gær til að sækja hjónin Sigrúnu Laxdal og dr. Sturlu Friðriksson, en þeim hefur hann ásamt öðrum boðið í ferð til Suðurskautslandsins. Á þessari mynd sem tekin er á Kef lavikurf lugvelli i gær má sjá Bernharð prins á miðri mynd í litríkum jakka. Vinstra megin við hann er Sigrún Laxdal en hægra megin þeir dr. Sturla og Haukur Helgason frá Utan- rikisráðuneytinu. Fyrir aftan má sjá Árna Kristjánsson, aðalræðismann Hol- lands hér á landi, eiginkonu hans Kristine E. Kristjánsson og son þeirra Hans Kristján Árnason, sem komu til að taka á móti prinsinum og fylgdarliði hans. Myndina tók Ijósmyndari Vísis i Keflavík, Heiðar Baldursson. — klp. Indriði skrifar um Eystein og hina Sjá neðanmáls bls. 10 og 11 Myndasagan um ABBA er á bls. 20 r--------------N Hefur þú reynt að selja eitt- hvað með aðstoö smáauglýs- inga Visis? Þeir sem hafa reynt það undanfarin 67 ár eru á einu máli um að smá- auglýsing i Visi sé engin SMA-augiýsing. v_________________________/

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.