Vísir - 11.01.1978, Blaðsíða 3
VTSIR Miðvikudagur XI. janúar 1978
3
Heiðrún ÍS:
Nýr skuttogari á Vestfjörðum
„Innlend skipasmiði
sparar dýrmætan
gjaldeyri og veitir
skipasmiðum og öðrum
fagmönnum vinnu”,
sagði Guðmundur Mar-
selliusson, fram-
kvæmdastjóri skipa-
smiðastöðvar M. Bern
harðssonar hf. á ísa-
firði við afhendingu á
m.s. Heiðrúnu ÍS 4. En
eins og sagt var frá i
Visi i gær var skipið af-
hent s.l. laugardag.
Skipasmlðastöðin bauð
starfsfólki stöðvarinnar og fleiri
gestum I siglingu með nýja
skipinu um fipröinn I fallegu
vetrarveðri. Heildarverð skips-
ins, að frádregnum tollum og
vöxtum, er rúmar 611 milljónir.
Vélar, efni, tæki og annar bún-
aður kostaði 390 milljónir, en
Visismynd ÞH
Uestir skoða skipið
Guðfinnur Einarsson, framkvemdastjóri Vöiusteins. VisismyndÞH
vinnulaun voru um 220 milljón-
ir. Samningur um smíði skips-
ins var undirritaöur 30. mars
1974 en smíði hófst I byrjun árs
1975, en talsverðar breytingar
hafa orðiö á samningum síðan.
1 afhendingarræðu lagði Guð-
mundur Marselliusson áherslu á
gildi innlendrar skipasmlði og
nauðsyn þess að góö viðgerð-
ar-og viöhaldsaöstaöa fyrir
fiskiskipaflotann væri fyrir
hendi á hverjum tlma. Taldi
hann að nokkuð vantaði á að
nægileg verkefni lægju fyrir I
nýsmlði I skipasmlðastöðinni en
i vonaöist til að úr rættist fljótlega.
Eigandi Heiörúnar er hlutafé-
lagið Völusteinn I Bolungarvík,
en framkvæmdastjóri þess er
Guöfinnur Einarsson, veitti
skipinu viðtöku. Skipstjórar
verða tveir, Einar Halldórsson
og Jón Eggert Sigurgeirsson.
Heiðrún 1S mun fljótlega halda .
á llnuveiðar.
—KS
Hundrað kúa f jós í Holti:
Félagsbúskapur
hagkvœmasta
rekstrarformið
— segir Agnar Guðnason blaða-
fulltrúi Stéttarsambands bœnda
Hundrað kúa fjós er nýlega ris-
ið á bænum Holti i Stokkseyrar-
hreppi I Arnessýslu Þaö mun vera
eitt stærsta fjós á landinu. Abú-
endur eru Sigurgrimur Jónsson
og þrir synir hans.
Vísir hafði samband við einn
bræðranna, Hörð Sigurgrlmsson,
og sagöi hann að fjós og hlaöa
hefðu verið þrjú ár I smiðum og
heildarkostnaðurinn væru um 40
milljónir. „Fyrirmyndina feng-
um við erlendis frá af búum sem
maður hefur séð þar”, sagði
Hörður, ,,og fyrir okkur vakir að
skapa okkur vinnustað eins og er
hjá öðrum. Við getum skipst á að
sinna þessu verðum ekki eins
bundnir yfir búrekstrinum og
áður.”
Annars sagði Hörður að þeir
væru ekki búnir að fá alla gripina
I fjósið ennþá og þeir gerðu ráð
fyrir þvl að þaö yrði ekki fyrr en
einhverntlma á seinnihluta næsta
árs. Taldi Hörður aö undir venju-
legum kringumstæöum ætti að
vera góður rekstrargrundvöllur
fyrir svona stóru búi.
Vlsir bar hagkvæmni svo stórra
búa undir Agnar Guðnason
blaðafulltrúa Stéttarsambands
bænda. Sagði hann að þau væru
óhagkvæm fyrir einstakling en
ekki fyrir stóra fjölskyldu. Fé-
lagsbú væru reyndar hagkvæm-
asta formið á búrekstri. Reglur
stofnlánadeildar væru aö vlsu
þannig að bændur fengju ekki lán
út á meira en 30 kúa fjós. Hins
vegar færu lánin eftir eignarhluta
hvers og eins i félagsbúi. Svip-
aðar reglur myndu gilda um
kvótareglur við verðlagningu bú-
vara sem hugsanlega yrðu settar
til að hamla gegn offramleiðslu I
landbúnaði.
—KS
Hundarnir hrœdd-
astir af ðllum!
Húsdýrin haga sér allsér- j sér. Hestar stikla um og þeir
kennilega I jarðhræringunum i sem úti eru taka á rás þegar
fyrir norðan. Fréttaritari okkar titringurinn byrjarog hlaupa
i Kelduhverfi Viðar Jóhannsson um allt hvað af tekur.
sagði okkur að sýnilegt væri að Hundarnir virðast þó vera
hræringarnar hefðu mjög mikil hræddastir af öllum. Þeir vilja
áhrif á þau, og aö þau væru helst láta halda á sér, en ef eng-
dauðhrædd. inn fæst til þess troða þeir sér
Sauðfé þjappar sér saman i undir rúm eða stóla og hlma
krónum og lætur fara litiö fvrir þar.
• Eldhr
• Eldhröð prentun
• Leyfilegt er að draga
papplrinn upp með hendinni
• Bæði Ijósaborð og strimill
(mod 2251)
•Stórirog skýrir stafir
• Fullkomin kommusetning
GISLIJ
Vesturgata 45 Reykjavík
sími 27477