Vísir - 01.02.1978, Blaðsíða 5
HVER BORGAR
IEITINA AÐ
NJÓSNAHNETT-
INUM?
hnattarins en grunur leikur á
v aðhann hafi komið þar niður
og einhverjar leifar þessara 45
kilógramma af úranium 235
sem um borð i honum voru.
Leitin að leifum
sovéska njósna-
hnattarins hefur nú
staðið á aðra viku og
eru stjórnmálamenn i
Kanada farnir að
spyrja hver standa
skuli straum af
kostnaði hennar.
Til leitarinnar hefur þurft
fjölda af flugvélum af ýmsum
gerðum, sem sumar hafa flogið
hundruð klukkustunda. Nokkur
hundruð sérfræöingar, borgara-
legir og frá hernum, hafa lagt
lið við leitina og fengnir hafa
verið um 100 bandariskir sér-
fræðingar til aðstoðar.
Leitinhefur uppskorið málm-
brot, sem grafið hafði sig niður i
freðna jörðina i norðvestur
hluta Kanada. Um 320 km frá
þeim stað er leitað í Stóra
þrælavatni að kjarnaofni
Barney Danson varnarmála-
ráðherra Kanada, sagði, að
kostnaðurinn af leitinni væri
orðinn „umtalsverður”. — All-
an MacEachen, aðstoðarfor-
sætisráðherra, sagðist ekki viss
um, hvort unnt væri samkvæmt
gildandi alþjóðalögum að sækja
Sovétríkin til bóta fyrir leitina.
Alþjóðasamingar gera ráð fyrir
að eigendur gervihnatta greiði
allan skaða af völdum þeirra.
Til þessa sjást þó engin merki
um skaða af völdum Cosmos
954.
fékk 4 verðlaun
Gamanmynd Neil Simon, „The
Goodbye Girl”, vann til fjögurra
verðlauna hjá samtökum er-
lendra fréttamanna i Hollywood,
en verðlaunaathöfn samtakanna
fór fram um helgina.
Aörar myndir, sem fengu
„Golden Globes”-verðlaun, voru
„Júlla”, „The Turning Point” og
„Equus”.
Höfundurinn, Neil Simon, og
kona hans, Marsha Mason, sem
lék hlutverk stúlkunnar, sem
helstsvo illa á kærustunum, hlutu
verðlaun. Richard Dreyfuss, sem
lék á móti Mason, fékk sömuleiöis
verðlaun og siöan kvikmyndin
sjálf.
Richard Burton, nýkominn frá
Afriku, var fagnað gifurlega,
þegar hann kom til verðlaunaat*-
hafnarinnar. Risu áhorfendur úr
sætum og klöppuðu honum óspart
lof 1 lófa. Hann fékk verðlaun sem
besti dramatiski leikarinn fyrir
túlkunina á sálfræðingnum i
„Equus”. Meöleikari hans, Peter
Firth, fékk viðurkenningu sem
besti aukaleikari.
Venessa Redgrave fékk viður-
kenningu fyrir besta aukahlut-
verk kvenna.
KANADISKI DÓMSMALA-
RÁÐHERRANN
FALSAÐI UNDIRSKRIFT
Pierre Trudeau, for-
sætisráöherra Kanada,
skýröi frá þvi í morgun, að
það hefði verið að beiðni
hans, sem Francis Fox að-
stoða rdómsmá la ráðherra
sagði af sér í gær.
Kvaðst Trudeau hafa oröið þess
áskynja að Fox hefði aðstoðað
ástkonu sina við aö fá leyfi til
fóstureyðingar með þvi aö falsa
undirskrift eiginmanns hennar
undir leyfisumsóknina.
Trudeau sagðist hafa fengið
upplýsingarnar frá óbreyttum
borgara, en vildi ekki tilgreina
þann nánar. Lá hann Fox á hálsi
fyrir að hafa ekki sagt sér frá
vandamálum sinum áður en Tru-
deau valdi hann i ráðherraem-
embættið fyrir sextán mánuðum.
Fox tilkynnti afsögn sina i neöri
málstofunni i gær, og játaði fyrir
þingmönnum, að ástæðan væri
ástamál hans og afleiðingar
þeirra.
Nokkur styrr hefur staöiö um
Fox aö undanförnu vegna per-
sónunjósna kanadisku riddara-
lögreglunnar, en dómsmálaráð-
herrann er æðsti yfirmaður
hennar. Hefur Fox haldið uppi
vörnum fyrir lögregluna og þykir
hafa staðiö af sér atlöguna, svo
að afsögn hans núna kom mjög á
óvart.
ANDSTÆÐINGAR
SADATS ÞINGA
í ALSÍR
Fjórir utanríkisráðherr-
ar Araba og einn af leið-
togum Palestínuaraba
leggja að líkindum fram í
dag á fundi þeirra í Alsír
drög að nýjum yfirlýsing-
um gegn friðarviðleitni
Israels og Egyptalands.
Alsir, Sýrland, Libia, Suður-
Yemen og PLO mvnduðu á fund-
inum i Tripóli (5. desember)
bandalag, sem þeir stofnuöu
beinlinis tii fjandskapar viö frið-
arstefnu Sadats Egyptalandsfor-
seta.
Abdul Moshin Rabu Maizer,
einn af leiðtogum PLO, gaf til
kynna fyrir utanrikisráöherra-
fundinn i gærkvöldi, að ræddar
yrðu að þessu sinni hugsanlegar
aðgerðir, sem ganga mundu
lengra en yfirlýsingarnar á fund-
inum i Tripóli.
1 Tripóli urðu þessir aöilar
sammála um að rifta samband-
inu við Egyptaland og gera með
sér varnarbandalag.
Kvennamorðinginn í
Los Angeles douður
Lögreglan i Los Angeles segir,
að hugsanlega sé morðinginn,
sem ieitað hefur veriö hvað mest
þar vegna dauða tólf ungra
kvenna, nú sjálfur dauður.
Konur i Los Angeles hafa vart
þorað út fyrir dyr eftir þessi tólf
hryllilegu morð á siðasta ári, en
morðinginn haföi i flestum tilvik-
um misþyrmt fórnardýrum sin-
um kynferðislega og skilið siðan
við likin nakin i hliðunum uppi af
Los Angeles.
Lögreglan hefur leitað tveggja
manna og lýst eftir þeim, en ann-
ar þessara manna fannst stung-
inn til bana.
Kvennamoröinginn i Los
Ángeles ‘lét siðast að sér kveða
14. desember.
BASKAR SETJA
HARÐA KOSTI
Svo virðist sem Spánn
verði að kaupa f rið í hinum
róstusömu Baskahéruðum
á N-Spáni dýru verði.
Hryðjuverkamenn að-
skiInaðarsinna setja að
skilyrði fyrir þvi að hætta
20 ára löngu stríði sínu við
þjóðvarðliðið að Baska-
héruðin fái sjálfstjórn.
Rodolfo Martin Villa, innan-
rikisráðherra, sagöi opinberlega i
gærkvöldi, að hann efaðist um að
þessi fjögur héruð á N-Spáni gætu
nokkurn tima aftur tekið eölileg-
an þátt i stjórnmálalifi Spánar.
Kvað hann of miklar hindranir
vera i veg fyrir þvi.
Hryðjuverkamenn að-
skilnaðarhreyfingar Baska
(ETA) kröfðust þess i gær, að
þjóövarðliðið og herinn yrðu á
brott úr Baskahéruðunum og
heimastjórn Baska fengi umráð
herstöövanna. Þeir gerðu sömu-
leiðis að skilyrði fyrir friði að öll-
um pólitiskum föngum (Baska)
yrði sleppt úr fangelsum.
Martin Villa sagði i gærkvöldi,
aö það kæmi ekki til fleiri náðana.
Spænska sjónvarpið haföi viðtal
við innanrikisráðherrann i tilefni
almennrar gremju, sem vaknaö
hefur vegna upplausnarástands
sem rikir i spænskur fangelsum,
þar sem allt logar i strokutilraun-
um og uppreisnum. Þar að auki
hefur glæpum fjölgað mjög og
hryðjuverkamenn fært sig upp á
skaftiö.
Skömmu áður en viðtaliö við
Martin Villa var birt, gerðu
hryðjuverkamenn einmitt skot-
árás á heimili fyrirrennara hans I
Madrid. Manuel Fraga Iribarne
var ekki heima og lögreglu-
mennirnir tveir, sem vöktuðu
húsiö sluppu ómeiddir.
Fraga hefur gagnrýnt harðlega
linkind yfirvalda við að halda
uppi lögum og reglu.
fáametia
dömubindin
sem þú getur
treyst
2
^ Heildsölubirgöir
Smurbrauðstofan
BJQRNINN
Njálsgötu 49 — Simi 15105