Vísir - 03.02.1978, Blaðsíða 3
vism Föstudagur 3. febrúar 1978
Baldvin Tryggvason afhendir Ágústi milljónirnar tvær.
veita þau. Rikisstjórnin mun sjá
safninu fyrir sérstöku húsnæði og
fimm milljónum á þessu ári og
siðan ákveðinni fjárhæð árlega.
Or kvikmyndasjóðnum yrðu
kvikmyndagerðarmönnum veitt
lán og eða hrein fjárframlög til
kvikmyndagerðar. 1 frumvarpinu
er gert ráð fyrir að stofnfjárhæðin
verði 30 milljónir króna.
Þá gat menntamálaráðherra
þess að börn Lofts Guðmundsson-
ar eins af frumkvöðlum islenskr-
ar kvikmyndagerðar, hefðu
ákveðið að afhenda væntanlegu
kvikm y ndasafni frumgerö
mynda Lofts til varðveislu.
Baldvin Tryggvason kom siðan
fram og afhenti Agústi Guð-
mundssyni styrk menntamála-
ráðs til kvikmyndagerðarmanna
fyrir árið 1978.
Alls sóttu 7 um styrkinn i ár, en
hann nemur sem svarar tveim
milljónum. Samþykkt var ein-
róma að Agúst fengi styrkinn til
að vinna að frumsamdri mynd:
„Litil þúfa”.
Að lokum tók Wim Wenders til
máls og fór hlýjum orðum um
hátiðina og þá ákvörðun mennta-
málaráðherra að leggja fram
frumvarp um kvikmyndalög.
Nefndi hann sem dæmi að það
heföi ekki verið fyrr en þýska rik-
ið tók að styrkja kvikmyndaiönað
þar i landi að hann varð að þvi
sem hann er i dag, — almennt
viðurkenndur sem einn sá sterk-
asti i heimi. —GA
„Þetta var skemmtilegt”, varð Halldóri Laxness aft orfti eftir aft hafa
horft á mynd Wenders „Amerfska vininn”. A myndinni er hann meft
konu sinni, Auði Laxness og einnig má sjá Andrés Björnsson. Visis-
myndir BP.
Átti fisk-
verð að hœkka
um 9%?
Ákvörðun almenns
fiskverðs drógst nokk-
uð á langinn uns verðið
var hækkað um 13%
með atkvæðum selj-
enda og oddamanns i
yfirnefnd Verðlags-
ráðs.
Visir hefur það eftir áreiðan-
legum heimildum að meöan á
verðákvörðun stóð i yfirnefnd
stóð það til að fiskverð yrði
hækkað um 9% meö atkvæðum
fiskkaupenda og oddamanns.
Var þá gert ráð fýrir þvi að við-
miöunarverð i Verðjöfnunar-
sjóði yrði hækkað um 20%. Hins
vegar heföi oddamaður aö ósk
ríkisstjórnarinnar snúist á sveif
með fiskseljendum og fisk-
verðshækkunin ákveðin 13%
eins og fyrr segir.
Visir bar þetta undir Jón Sig-
urðsson forstööumanns Þjóð-
hagsstofnunar en hann var
oddamaður i yfirnefnd Verð-
lagsráðs. „Ég tel þetta ekki
vera rétta frásögn”, sagði Jón.
Að ööru leyti vildi hann ekkert
segja til um þaö að hve miklu
hún væri ekki rétt.
Þá bar blaðiö þetta einnig
undir Arna Benediktsson for-
mann Sambands frystihúsa.
„Ég hef heyrt þetta sagt en ég
kom ekki inn f yfirnefndina
fyrr en á siðasta stigi þannig að
ég get litið um það sagt”, sagði
Arni
—KS
BSRB mótmœlir skerðingu
nýgerðra kiarasamninga
„Stjórn BSRB mótmælir harð-
lega öllum hugmyndum um að
skerða nýgerða kjarasamninga
opinberra starfsmanna eða af-
nema visitöluákvæði samning-
anna”, segir i yfirlýsingu, sem
samþykkt var einróma og með
öllum atkvæðum á stjórnarfundi
BSRB á þriöjudaginn.
1 ályktuninni segir, að megin-
hluti hækkunar á kauptöxtum fé-
lagsmanna BSRB séu verðlags-
bætur vegna hinnar stórfelldu
dýrtiðar hér á landi og auki þvi
alls ekki kaupmátt launa.
Grunnkaupshækkun sú, sem
BSRB og bæjarstarfsmannafé-
lögin sömdu um við fjármálaráö-
herra og sveitarstjórnir miðaði
að þvi að bæta opinberum starfs-
mönnum þá glfurlegu kjara-
skerðingu, sem þeir urðu fyrir á
árunum 1974-1977, svo og að leið-
rétta launakjör opinberra starfs-
manna miðað við sambærilega
starfshópa.
Kaupmáttaraukning opinberra
starfsmanna i siðustu kjara-
samningum er síst meiri en aukn-
ing þjóðartekna og þjóðarfram-
leiðslu undanfarin ár, segir stjórn
BSRB.
—ESJ
HVER ER MAÐURINN
Á RAUÐA BÍLNUM?
Það eru vinsamleg
tilmæli rannsóknarlög-
reglunnar i Hafnarfirði
að maðurinn á rauða
bilnum, sem ók utan i
grindverk i Engidal við
Álftanesveg gefi sig
fram.
Þetta mun hafa gerst á mánu-
dagskvöld eða aðfaranótt
þriðjudags og er girðingin
nokkuð mikið skemmd eftir.
Billinn hefur greinilega fariö út
Olsenflokkurinn í
Vísisbíói ó morgun
Kvikmyndin sem sýnd
verður i Visisbióinu á morg-
un, laugardag er ekki af
verri endanum. Það er hin
bráðskemmtilega danska
grínmynd um Olsen-flokk-
inn. Sýningin er að venju i
Laugarásbió, og hefst kl. 15.
af veginum og lent á grind-
verkinu en komist síöan upp á
veginn aftur.
—EA
Kílóið af
hassi ó
1,5-2 milliónir
Fimm menn eru nú l gæslu-
varðhaldi vegna rar ókna á
fikniefnamálum. Var sjómað-
ur á fiskibáti fyrir norftan
handtekinn i gær og úrskurö-
aður i allt aft fimm daga
gæsluvarðhald, og siðan flutt-
ur til Reykjavikur. Upplýsing-
ar um magn sem hér um ræftir
efta upphæðir er ekki hægt að
gefa á þessu stigi málsins, en
málið er umfangsmikið. Þess
má geta að eitt kiló af hassi
kostarnú 1,5 til tvær milljónir
i smásölu.
— EA
NY SENDING
AF FÓTLAGASKÓM
úr mjúku sterku
anílinskinni
með
ósviknum
NViMNl'llMN
Verð fró
kr. 5.180
Litur: Ijósbrúnt
No: 28-40 ófóðraðir
No: 28-48 fóðraðir
Ennfremur margar
aðrar gerðir
Póstsendum samdægurs
Domus Medica
Egilsgötu 3
Simi 18519.