Vísir - 03.02.1978, Blaðsíða 24

Vísir - 03.02.1978, Blaðsíða 24
VÍSIR Föstudagur 3. febrúar 1978 Citn il Opiö virka daga Laugardaga kl. 10-12 Sunnudaga kl. 18-22 Smáauglýsing í Vísi er enginQÍ|4óauglýsing Opið virka daga til kl. 22.00 wl ■ lw ODOll Engor nýjar framkvœmdir í nýja miðbœnum á þessu ári Engar framkvæmdir verða i nýja miðbænum á vegum Reykjavikur- borgar á þessu ári. Þar verður þvi engum lóð- um úthlutað og aðeins verður haldið áfram við byggingu Borgar- leikhúss og Húss verslunarinnar- Þetta kom fram I svari Birgis tsleifs Gunnarssonar borgar- stjóra á beinni linu til lesenda Vísis i gærkvöldi. Ragnar Guð- mundsson hringdi og spurði borgarstjóra hvenær þess væri að vænta að fleiri lóðum yrði út- hlutað á þessu svæði. Hann kvaðst hafa sótt þarna um lóö og siðan endurnýjaö umsóknina en ekkert gerðist. Borgarstjóri sagði að vegna fjárhagsástæöna borgarinnar heföi orðiö aö slá ýmsum fram- kvæmdum á frest og þar á meðal i nýja miöbænum. Stefnt væri að frekari framkvæmdum á þessu svæði árið 1979. Ekki væri hægt að uthluta lóöum fyrr en þær væru tilbúnar frá hendi Reykjavikurborgar. —SG Gunnlaugur Stef- ánsson í þriðja sœti „Ég hef ekkert. sérstakt að segja um þennan lista,” sagöi Jón Armann Héðinsson er Vis- ir bar undir hann lista Alþýöu- flokksins I Reykjaneskjör- dæmi.Listinn var birtur i gær. Fimm fyrstu sætin skipa: 1. Kjartan Jóhannsson, Hafnar- firði. 2. Karl Steinar Guðna- son, Keflavik. 3. Gunnlaugur Stefánsson, Hafnarfirði. 4. Ölafur Björnsstm, Keflavik. 5. Guðrún Helga Jónsdóttir, Kópavogi. ,,Um eigiö framboð vil égað svo stöddu ekkert segja. Ég bið og sé framvindu ýmissa mála,” sagöi Jón Armann Héðinsson. __JEG Get ekkí fram- kallað myndir — vegna takmörk- unar á gjaldeyris- yfirfœrslum Starfsemi Myndiðjunnar Astþór h.f., i Réykjavik var stöðvuð 1 gær sökum stöðvun- ar gjaldeyrisafgreiðslu bank- anna á hráefni. Myndiðjan geymir allan framköliunar- pappir I Tollvörugeymslu og stöðvaðist þvi starfsemin og starfsfólk var sent heim. Samkvæmtupplýsingum frá Myndiðjunni segir aö leitað hafi veriö tii gjaldeyrisdeildar bankanna eftir undanþágu, „eöa leyfi til aö „deponera” fyrir pappirnum, ef til hugsanlegrar gengisfellingar kæmi og væri þá hægt að reikna úttektina á nýju gengi. Þessu var synjað án þess að nokkur skýring væri gefin önnur en sú að fulltrúi við- skiptaráöuneytisins á fundin- um neitaði afdráttarlaust að gefa undanþágu eöa leyfi til „deponeringar”. Segir að stöðvunin komi sér einkanlega illa þar sem unniö hefur verið að þvi að byggja upp markaö fyrir framköllun I Danmörku. _ea Filmurnar koma frá Kaupmannahöfn, en ekkert er hægt að kópera á pappir. Roy. Philiips verkstjóri heldur hér á tveimur pokum frá dóttur- fyrirtækinu I Danmörku. INGSHAFINN I ASKRIFENDAGETRAUN n - y Grétar ólafur Jónsson< sjómaður frá Raufarhöfn, ók út úr sýningarsal Wolksvag- enumboðsins siðdegis í gær á nýja Derby-bílnum, sem hann hlaut í vinning í áskrif- endagetraun Vísis. Ánœgður með nýjo bílinn Vinningshafinn I áskrifenda- getraun Visis, ólafur Jónsson á Itaufarhöfn. flaug suður i boði Visis i gær til þess að taka viö fyrsta vinningsbilnum i þessari vinsælu getraun. Þegar ólafur kom ásamt syni sinum, Þráni, til Reykjavikur var búið að skrá nýja Derby-bilinn á hans nafrtsetja á hann negld snjó- dekk og ganga frá tryggingum, þannig að hann gat sest upp i bil- inn i sýningarsal Heklu h.f. viö Laugaveg og ekið beint út i um- ferðina. Þeir feðgar hyggjast halda norður á Raufarhöfn á nýja biln- um á morgun og lýstu mikilli ánægju með gripinn. Nánar verður sagt frá komu þeirra til Reykjavikur og birt viðtal við þennan heppna Raufar- hafnarbúa i VIsi á mánudaginn, en þá verður jafnframt birtur febrúarseðillinn i áskrifendaget- rauninni. Þeir sem enn eru ekki orðnir þátttakendur i getrauninni ættu þvi að kaupa blaðið á mánudag- inn fylla út seðilinn og senda hann sem fyrst til Visis. Það eru tveir glæsilegir bilar eftir enn, Ford Fairmont sem dreginn verður út 1. april, og Simcasem kemur i hlut einhvers áskrifanda Visis 1. júni. Prófkjör í Njarðvík og Eyjum Prófkjör vegna bæjar- stjórnakosninga fara fram á tveimur stöðum um helgina: hjá Alþýðufiokknum I Vest- mannaeyjum og Sjálfstæðis- flokknuin i Njarðvikum. Hjá Alþýöuflokksmönnum I Eyjum eru átta menn I kjöri en kosningin fer fram i fundarsal verkalýðsfélaganna að Miðstræti 11. 1 framboði eru: Agúst Bergsson, hafnarvöröur, 40 ára. Einar Hjartarson, vél- stjóri, 52 ára. Friða Hjálmars- dóttir, læknaritari 42 ára, Guðmundur Þ.B. Ólafsson, húsasmiður, 30 ára. Magnús H. Magnússon, simstöövar- stjóri 55 ára, Skúli Sivertsen, múrari, 52 ára, Tryggvi Jónasson rennismiöur, 48 ára. Unnur Guðjónsdóttir húsfrú, 64 ára. Kjörfundur verður opinn á laugardag og sunnudag kl. 14- 19, og er kosið um skipan 5 efstu sæta á framboðslistan- um við næstu bæjarstjórnar- kosningar. Hjá Sjálfstæðismönnum I Njarðvikum er einnig kosið um fimm efstu sæti væntan- legs framboðslista en þar eru niu menn i kjöri. Flokkurinn fékk fjóra menn kjörna- I siðustu kosningum. Frambjóðendur þar eru: Aki Gránz, málarameistari, Arndis Tómasdóttir, húsfrú, Helga óskarsdóttir, húsfrú, Ingólfur Aðalsteinsson, veður- fræðingur, Ingólfur Bárðarson rafvirkjameistari, Ingvar Jóhannsson, framkvæmda- stjóri, Július Rafnsson, vél- smiður og Karl Sigtryggsson. Kosningin i Njarðvikum fer fram á laugardag og sunnu- dag i Sjálfstæðishúsinu i Njarðvikum á sama tima og prófkjör Sjálfstæðismanna i Reykjaneskjördæmi vegna al- þingiskosninganna. en nánar er sagt frá þvi á blaðsiðum 10- 11 I blaðinu. ESJ Beið bana í árekstri Máður beið bana I um- ferðarslysi á Egiisstöðum i fyrrakvöld. Hann hét Sigur- björn Pétursson. Hafursá i Vaiiahreppi. Rétt við Lagar- fljótsbrú hafði hann farið fram úr bil á bil sinum en skipti ein- hverra hluta vegna ekki um vegarhelming og lenti þá á vörubil sem kom á móti. Sigurbjörn mun hafa iátist samstundis. —EA Fjársvikamál fyrrum deildarstjóra ábyrgðadeildar Landsbankans: UPPHÆÐIN ORÐIN 50MILLJONIR KRONA Haukur Iieiðar hefur játað að hafa um árabil staðiö að stór- felldum fjártökum og misferli ineð skjöl I sambandi við viö- skipti Landsbankans og sjö fyrirtækja. Nemur sú fjárhæö sem komið hefur fram við rann- sóknina um 50 milljónum króna. Þetta kom fram i svörum Landsbanka Islands og Rann- sóknarlögreglu rikisins við fyrirspurnum, sem bornar voru upp við Ólaf Jóhannesson við- skiptaráðherra á Alþingi en ráðherra gerði grein fyrir þess- um svörum á þingi i gær. I bréfi bankastjórnar Lands- bankans kemur fram, að ósam- ræmi var milli færsluskjals I bókhaldi bankans og tilsvarandi færsluskjals i bókhaldi ákveðins viðskiptaaðila. „Þegar endur- skoðunardeild bankans kannaði hvað mismuni þessum ylli, varð ljóst, að Haukur Heiðar myndi hafa útbúið tvenns konar færsluskjöl, önnur sem við- skiptamaðurinn greiddi eftir, hin með lægri upphæð sem gengu til bókhalds bankans, en siðan dregið sér mismuninn... Mismunar af þessu tagi hefur orðið vart i um 25 tilvikum á timabilinu 1970-1977 að báðum árum meðtöldum og lúta þau öll að viðskiptum sama viðskipta- fyrirtækis. Samtals nemur sá mismunur sem um ræðir i þess- um tilvikum, nálega 50 milljón- um króna. __£SJ

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.