Vísir - 03.02.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 03.02.1978, Blaðsíða 10
10 VISIR utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdarstjóri: Davið Guómundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. Olafur Ragnarsson Ritstjornarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð mundurG. Pétursson. Umsjón með helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jónína Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal. Gylfi Kristjánsson. Ljosmyndir: Jens Alexandersson, Jón Einar Guðjónsson. Utlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglysinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8 simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 1700 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu kr. 90 eintakið. Prentun Blaðaprent h/f. Kröfluvinnubrögð Tveir af þingmönnum Framsóknarf lokksins hafa sett fram all harða gagnrýni á frumvarp ríkisstjórnarinnar um heimild til að virkja Blöndu. Annar þeirra, Páll Pétursson á Höllustöðum, er einn af þröngsýnustu mönnum þingsins og eindreginn andstæðingur allra stór- virkjana og stóriðju. Afstaða hans kemur því ekkiá óvart. Á hinn bóginn er það rétt, sem fram kom í þingræðu Páls Péturssonar í þessari vjku, að ringulreiðina í efna- hagsmálum má að nokkru leyti tekja til iðnaðar- og orkuráðuneytisins. Þar vegur þyngst tíu milljarða króna dauð fjárfesting við Kröflu og önnur eins fjárfesting i hallarekstri jánblendiverksmiðju í Hvalfirði. Fráleitt er með öllu að hafna á þessu stigi virkjun í Blöndu. Ýmislegt bendir til að þar megi gera hagkvæma virkjun. Hitt er annað mál, hvort tímabært sé að veita lagaheimild fyrir virkjun þar. Þórarinn Þórarinsson formaður þingf lokks f ramsóknarmanna.hef ur gagnrýnt frumvarp ríkisstjórnarinnar á þeirri forsendu og fært fyrir því gild rök. Þórarinn Þórarinsson sagði í þingræðu um þetta mál, að sá orðrómur væri sannur, að vinnubrögð þingsins væru í afturför að því leyti, að Alþingi væri mun fúsara nú en áður að veita heimild til ýmissa f ramkvæmda, sem ekki hefði veriðgerð nægjanleg grein fyrir. Þetta er kór- rétt hjá þingflokksformanninum og færi vel á því, að fleiri þingmenn athuguðu stöðu þingsins frá þessu sjón- arhorni. Kröfluvirkjun er frægt dæmi um vinnubrögð af þessu tagi. Þórarinn Þórarinsson sagði í þingræðu sinni, að svo virtist sem núverandi orkuráðherra hefði við flutning heimildarfrumvarps fyrir Blönduvirkjun tekið sér til fyrirmyndar þau vinnubrögð, sem voru viðhöfð, er heimildar til byggingar Kröflu var aflað á þingi. Þetta er réttmætábending. Frumvarpið um heimild til að láta virkja Kröflu var samþykkt á Alþingi að frum- kvæði þáverandi orkuráðherra án þess að fyrir lægju fullnaðarrannsóknir og án þess að í frumvarpinu væri ákvarðað hverjir myndu hafa umsjón með framkvæmd verksins. Engin ákvörðun hafði þá veriðtekin um rekstr- araðila og sú ákvörðun hef ur ekki verið tekin enn, þó að rekstur virkjunarinnar sé hafinn. Engar rekstráráætl- anir voru lagðar f yrir þingið og hafa aldrei verið gerðar. Þar að auki var Kröfluvirkjun byggð allverulega stærri en Alþingi heimilaði og þingið hef ur aldrei gert at- hugasemdir þar við. Nú hefur verið fjárfest i 60 AAW virkjun við Kröf lu og hún er um þessar mundir að hef ja framleiðslu á 5AAW með fleiri vélstjórum en samanlagt starfa við Búrfell og Sigöldu. Þó að næg gufa væri fyrir hendi væri eigi að síður um f járfestingarhneyksli að ræða því að raforkunnar er ekki þörf fyrr en að f jórum árum liðnum í fyrsta lagi. í frumvarpi ríkisstjórnarinnar eru ákvæði um, að fyrirtækið Norðurlandsvirkjun reki væntanlega Blöndu- virkjun. Norðurlandsvirkjun er ekki til og engar líkur á að hún verði stof nuð eins og sakir standa. A þessu leyti er Blönduvirkjunarf rumvarp ríkisstjórnarinnar hrein markleysa. Þetta ákvæði frumvarpsins sýnir glöggt, að þetta mál hangir enn i lausu lofti. Fyrst stjórnvöld vilja ekki taka upp ný vinnubrögð í orkumálum verður Alþingi sjálft að taka í taumana. Það er kjarninn i ádeilu Þórarins Þórarinssonar. Hér er enn einu sinni fenginn prófsteinn á getu þingsins til þess að fara í raun og veru með löggjafarvaldið í landinu og hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu. Á þessu stigi á Alþingi einungis að fela ríkisstjórninni að halda áf ram hönnun Blönduvirkjunar og rannsóknum i því sambandi eins og formaður þingflokks framsókn- armanna hef ur lagt til. Þegar því verki er lokið og fyrir liggja rekstrar- og greiðslu áætlanir og Ijóst er hverjir eiga að byggja virkjunina og reka hana getur Alþingi samþykkt heimildartrumvarp. Föstudagur 3. febrúar 1978 VISIR Prófkjðr hjó Sjólfstœðismönnum um helgina: Hcildci þing- mennirnir sœtum sínum i les- kiördœmi? Prófkjör Sjálfstæðis- manna i Reykjaneskjör- dæmi verður haldið nú um helgina, en þar eru 12 frambjóðendur í kjöri. Búister við mikilli þátttöku, og mikilli keppni um efstu sæti væntanlegs framboðs- lista flokksins við næstu alþingiskosningar. t siðustu alþingiskosningum náði Sjálfstæðisflokkurinn i fyrsta sinn þremur kjördæma- kosnum mönnum i Reykjanes- kjördæmi, og hlaut auk þess einn uppbótaþingmann úr þvi kjör- dæmi. Þeir, sem skipuðu fjögur efstu sætin á framboöslista flokksins þar siöast, sitja þvi núá þingi. brir þeirra gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu, en einn — Axel Jónsson i Kópa vogi — hefur ákveðið að draga sig i hlé. Ljóster, aðýmsir fleiri en þing- mennirnir stefna á -„öruggt sæti” ávæntanlegumframboðslista, og miðað við reynsluna af prófkjör- um að undanförnu er vist best að spá sem minnstu um niðurstöð- una. KOSNINGAR OG STJÓRNFRIÐUR Kosningabaráttan hófst með vissum hætti I sjónvarpsþætti þriðjudaginn 31. janúar, þar sem formenn stjórnmálaflokka mættu til nokkurs skrafs um kosningar. Þátturinn snerist þó samkvæmt venju um efnahagsmál og þann stöðuga vanda, sem steðjar að þjóðinni að sögn stéttahópanna, atvinnuveganna og stjórnmála- mannanna. Rikisstjórnin veltir nú fyrir sér nokkrum kostum vegna stöðu útflutningsatvinnu- veganna, en enn einu sinni hafa mál þróast i það horf að dýrara er oröið aö framleiöa vöruna en söluveröinu nemur. bykja öll teikn benda til þess aö gengisfelling sé á næstu grösum og siðan gengissig fram eftir ár- inu. Þeir hjá Alþýöubandalaginu benda á niðurfærsluleið með lækkun söluskatts og lækkun vöruálagningar, en á þeirri leið eru miklir annmarkar, eins og raunar öðrum leiðum, sem til greina koma, einkum ef haft er i huga að þegar hefur verið stofnað til skuldarinnar. Verðbólguarfurinn hefur reynst hógværri stjórn erfiður Þau litlu og fábrotnu orðaskipti sem fram fóru á milli forustu manna flokkanna um væntanleg- ar kosningar og hugsanlegar stjórnarmyndanir aö þeim lokn- um, benda ekki til mikilla breyt- .inga. Rikisstjórn Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknarflokks- íns hefur um margt verið farsæl og hógvær stjórn, þótt verðbólgu- arfurinn frá siösumarsdögum 1974 hafi reynst henni erfiður úr- lausnar. Rikisstjórnin hefur freistað að draga úr verðbólg- unni.þóttráðstafanir hennar hafi ekki borið árangur sem skyldi, m.a. vegna þess aö óhjákvæmi- legt var orðið aö auka kaupmátt launa en jafnan þegar að þvi kemur gengur erfiölega að hamla gegn verðhækkanaskriðu sem fer Meðonmals rlndriði G. Þorsteinsson segir að núverandi rikisstjórn þurfi annað kjörtimabil til þess að koma við þeim leið- réttingum, sem nauð- synlegt hafi verið að gera á stöðu þjóðar- búsins eftir síðustu vinstri stjórn. eins og logi um allt kerfið. Og enn sem fyrr er það verðbólgan og af- leiðing hennar, sem er helsta við- fangsefni rikisstjórnarinnar og höfuðverkur hennar. Snjallra lausna ekki að vænta Ekki er þess aö vænta að í aö- fara kosninganna bryddi ásnjöll- um lausnum á vandamálum tengdum efnahagslifinu. Lausnir stjórnmálalegs eðlis spretta ekki fram alskapaðar, heldur er eitt vandamáliölátið leiða til annars. 1 munni stjórnmálamannanna heita þetta „gamlar lausnir”. Og alveg siðan i byrjun striðsáranna hafa einmitt þessar „gömlu lausnir” verið notaöar með ár- angri sem segir til sin i dag, þannig aö innan þriggja til fjög- urra ára gætu bflar veriö komnir upp i 10-12 milljónir og dagblööin upp i þrú hundruð krónur eintak- ið. Eitthvað gæti hamlaö á móti þessari þróun að taka visitöluna úr sambandi á innfluttum vörum, en sjálfsagt gengi erfiðlega að fá það samþykkt. Fjárfestingarsjóður hefði sparað margar gengisfellingar Skammtimalán til húsbygginga hafa eflaust verið einhver mesti verðbólguvaldurinn frá upphafi nýbygginga 1945. Asama tima og aðrar þjóðir sem orðið höfðu fyrir þungum búsifjum i striðinu og þurftu aö byggja upp heilar borg- ir, sluppu frá stórfelldri verð- bólgu af þvi þær gerðu sér grein fyrirþvi aðtryggja varð lánsfé til þessarar framkvæmda, eyddum við öllum s jóðum okkar i atvinnu- tæki. Samt var augljóst á árunum i kringum 1945, að fyrir okkur var ámóta ástatt og þjóðum sem orðið höfðu fýrir sprengjuárársum. Við urðum lika að byggja. Og við byggðum hvað sem það kost- aði og liktust þær athafnir engu öðru en skæruhernaði. Lengst af siðan hefur okkur verið i lófa lag- ið að koma upp fjárfestingarsjóði til að sinna lánsfjárþörfinni i byggingariðnaðinum þannig, að lán yrðu minnst til fjörutiu ára með skynsamlegum vöxtum og minni þrýstingi á launamarkaði að sama skapi. Slikur fjárfest- ingarsjóður hefði sparað okkur margar gengisfellingar og mik- inn efnahagsvanda i gegnum tiö- ina. Víxlar og affallabréf Þótt það sé augljóst mál, að engin þjóð hefur efni á þvi að

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.