Vísir - 03.02.1978, Side 8

Vísir - 03.02.1978, Side 8
8 Bílasalan Höfóatuni 10 s.18881&18870 iab 96 1972 Kr. 1,0 millj. Rauöur — Ekinn 105 þús. km. Sér- íklega fallcgur bill. Bílasalan Bílagarður Borgartúni 21. Simar 29-7-50 og 29-4-80 Kr. 450 þús. Vinsælasta árger&in i Cortinu fjöl- skvldunni. Galant 1600 — De Luxe. G.L.S. 1974. Kr. 1.450 þús. Skipti óskast á Willvs Wagoneer ’70-’74. Land Rover ölmusumennirnir standa viö kirkjur meö framréttar hendur, gjarnan i tiltlum skýlum eins og á þessari mynd. „Fattiggubbar" — sérstœð finnsk ijósmyndasýning í Norrœna húsinu Finnski ljósmyndarinn og rit- höfundurinn Markus Leppo held- ur mjög sérstæða ljósmyndasýn- ingu i Norræna húsinu nú um heigina, og til 12. febrúar. Sýninguna nefnirhann „Fattig- gubbar”, sem mætti þýöa sem ölmusumenn, eöa fátæklingar. Myndirnar eru af tréskuröar- myndum sem eiga sér enga hlið- stæðu i alþýðulistasögunni. Þessar tréskurðarmyndir, sem er að finna fyrir framan kirkjur i Finnlandi, gegna þvi hlutverki að safna fé handa fátækum og sjúk- um. Uppruna þeirra má rekja til kaþólsku Guðskistunnar, eða ölmusustokkanna, sem voru bannaðir i Finnlandi við siða- skiptin. En árið 1649, skipaði Kristin, drottning, svo fyrir að söfnunar- baukar skyldu settir upp að nýju á opinberum stöðum, en nú án helgimynda. Með timanum tóku þessir bauk- ar á sig mannsmyndir, sem oftast stóðu með útrétta hönd, við kirkjudyr. Þetta voru tréskurðar- myndir, oftast málaðar. Heimild- ir greina frá að minnsta kosti 130 slikum tréskurðarmyndum. Nokkrar hafa glatast á siðustu áratugum, en enn munu vera 118, við finnskar kirkjur. Markus Leppo hefur ljósmynd- að allar þessar styttur og safnað um þær heimildum. Sýningin veröur i bókasafni og anddyri Norræna hússins og jafnframt verða sýndar finnskar kvikmynd- ir og litskyggnur, i samkomusal. — ÓT. Samhljómur blokkflautu og lútu Blokkflauta og lúta hljóma saman I Félagsstofnun stúdenta, viöHringbraut á laugardaginn kl. 17. Þar stilla saman strengi sfna þau Camilla Söderberg, blokk- flautulcikari og Snorri örn Snorrason. A efnisskránni eru renaissance dansar fyrir blokkflautu og lútu eftir Bossinensis, Jacob van Eyck, Caroso og Dowland. Enn- fremur fantasia fyrn- biokk- flautu eftir Teleman og sónata fyrir blokkflautu og gitar, eftir sama. Reykjavíkur- sett ó laugardag Reykjavikurskákmótiö verður settá laugardaginn klukkan 13.45 af menntamálaráöherra og siöan mun borgarstjóri leika fyrsta leikinn. Dregiö verður um töflu- röö á föstudagskvöld. TefIt verður I Kristalssal Hótels Loftleiöa og um helgar fara um- ferðir fram klukkan 14—19 og bi&skákir tefldar klukkan 21—23. Virka daga veröa umferöir tefld- ar klukkan 18—23 og biöskákir 14—16. Aðaldómari er Guö- mundur Arnlaugsson. Aögangseyrir fyrir fulloröna er eitt þúsund krónur og 600 fyrir börn. Hægt er aö kaupa heilmiöa á 10 þúsund krónur. Þetta er sterkasta skákmót sem haldiö hefur verið hér á landi og er Skáksamband tslands eina sambandiö á Nor&urlöndum sem heldur mót af þessari stærö. Er- lendis eru þaö yfirleitt stórfyrir- tæki sem gangast fyrir skákmót- um sem þessu. Kennslutœkja- sýning í Hafnarfirði Kennarafélag Hafnarf jarðar gengst fyrir sýningu á kennslu- tækjum i Viöistaöaskóla nú um helgina. Mörg fyrirtæki sýna þaö sem þau hafa á boðstólum og kynna nýjungar. Leiðbeinendur verða á sýningunni og kynna notkun tækjanna. Sýningin veröur opnuð á morgun, laugardag, kl. 2 meö þvi að Guðbjartur Gunnarsson, for- stööumaöur ke nnsl uga gna - stöövar fræösluskrifstfu Reykja- vikur, flytur erindi um nýsitækni. Sýningin veröur opin á laugar- dag og sunnudag kl. 2 til 6 báöa dagana, og er öllum heimill aö- gangur aö sýningunni Ys og þys og orðsendingar — á málverkasýningu Guðbergs Auðunssonar, að Kjarvalsstöðum Ys og þys stórborganna, má sjá i tuttugu og þremur myndum sem Guöbergur Auðunsson sýnir aö Kjarvalsstöðum frá laugardegin- um 4. febrúar og til þess 15. Listamaðurinn var i sumar i Marokkó og á Spáni, en sækir einnig fyrirmyndir til New York. Honum finnst hraðinn i mannlif- inu nú vera orðinn svo mikill, að skilaboð sem menn fá i dag, lifa ekki til morguns. Hvergi sést þetta betur en á auglýsingaplakötum sem hanga uppi milljónum saman, i stór- borgum heimsins. Þar er „boö- skap” skellt ofan i „boðskap” og veöur og vindar gera sitt til að rugla málið. 1 þetta hefur Guðbergu'r rýnt og gripið sér augnablik úr þessari „þróunarsögu” til að festa á lér- eft. Þetta er fyrsta málverkasýn- ing Guðbergs i Reykjavik, en hann sýndi fyrst i Vestmannaeyj- um siðastliðið vor. — óT.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.