Vísir - 03.02.1978, Page 20
Pólifísk óvissa
lœkkar gengi
franska
frankans
Franski frankinn féll mjög i
gærdag, þótt það sé ekki mikið
miðað við gengissigið hérlendis.
Dollarinn var skráður á 4,74
franka i fyrradag en i gær var
hann kominn upp i 4,84 franka
fyrir hvern dal. Astæðan er sú
pólitiska óvissa sem nú rikir i
Frakklandi vegna þingkosning-
anna sem fram fara i næsta
mánuði.
Franski þjóðbankinn varð að
selja 100 milljónir dollara i gær-
morgun til að halda frankanum
á 4,80 gagnvart dollar. Seinna
um daginn fór dollarinn samt
upp í 4,82 og þá þurfti bankinn
enn aö gripa til um 100 milljóna
dollara að þvi er fregnir frá
Paris herma. Seint i gær voru
enn geröar ráðstafanir en
skráningin hélst þó áfram i 4.84.
Að öðru leyti var gengi dollar-
ans óbreytt gagnvart öðrum
gjaldmiðlum, en pundið hækk-
aði litiö eitt miðaö við flesta
Vuv\B«sen VÍSIR
tmm\ )
Vif.y GENGIOG GJALDMIÐLAR
gjaldmiðla. Danska krónan seig
örlitið en er samt sem áður á
toppnum innan gjaldeyris-
snáksins.
Gjaldeyrissjóðir Vestur-
Þýskalands efldust mjög og
stækkuðu i janúar eöa um 900
milljónir marka. Þar með hafa
sjóöirnir vaxið um samtals 12
milljarða marka siðan 1. októ-
ber i haust. Fyrstu þrjár vik-
urnar i janúar bættust tveir
milljarðar marka i gjaldeyris-
sjóði landsins en siðustu viku
mánaðarins fór 1,1 inilljarður út
úr sjóöunum.
Privatbanken i Danmörku
hefur gefið út mjög fróðlega
handbók um utanrikisviðskipti.
Þar er að finna allar nauðsyn-
legar upplýsingar fyrir þá sem
stunda verslun og viðskipti við
aðrar þjóðir og er hægt að fá
bókina keypta hjá Privatbanken
og útibúum hans.
— Peter Brixtoftc/— SG
* 11111 ■ ........................................................................................................
GENGISSKRÁNINC
Kaup: Sala: Kaup: Sala:
1 Bandarfkjadollar... 219.00 219.60 219.80 220.40
1 Sterlingspund 426.90 428.10 428.20 429.40
1 Kanadadollar 197.90 198.40 197.70 198.20
100 Danskar krónur .. 3836.55 3847.05 3827.40 3837.90
100 Norskar krónur .... 4 273.40 4285.10 4265.90 4277.50
lOOSænskar krónur .. 4704.80 4717.70 . 4717.70 4730.60
100 Finnsk mörk 5484.60 5499.60 5500.50 5515.50
100 Franskir frankar . 4165.10 4627.80
100 Belg. frankar 669.70 671.70 670.75 672.55
100 Svissn. frankar ... . 11.057.801 1.088.10 11067.50 11097.70
lOOGyllini 9685.55 9712.10 9701.00 9727.50
100 V-þýsk mörk . 10.372.50 10.400.90 10387.50 10515.90
lOOLírur 25.26 25.33 25.35 25.40
100 Austurr. Sch 1446.00 1450.00 1447.50 1451.40
100 Escudos 546.15 547.65 546.45 547.95
lOOPesetar 271.60 272.30 271.80 272.60
100 Ven 90.66 90.91 90.86 91.11
EIMDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
VISIR
Nýkomnir loftlistar,
margar gerðir
Auðveldir í upp-
setningu
j Verðið miög hagstœtt
MÁLARABÚÐIN
Vesturgötu 21 S: 21600
VISIR
1 Bogasal Þjóðminjasafnsins er nú sýning á nokkrum gömlum kirkjumunum. Einn þeirra er altaristafl-
an hér að ofan. Hún er eftir Ófeig Jónsson á Heiðarbæ i Þingvallasveit. Um ófeig má lesa i bók Skúla
Helgasonar, SAGNAÞATTUM II, sem kom út 1971
Einu sinni var biskup sem gaf.
prestum, sem hann vigði jafnan
þetta heilræði i prédikunar-
starfi:
Reyndu að svara i predikun
þinni á sunnudögum þeim
spurningum, sem fólkið er að
velta fyrir sér á hinum rúm-
helgu dögum.”
Ekki fara sögur af þvi hvernig
hinum ungu vigðu mönnum
tókst að fara eftir þessu hollráði
biskupsins.
En samt er ekki úr vegi að
spyrja:
Hvaða spurningar eru efst i
hugum nútimafólks? Eiga svör
við þeim nokkurt erindi upp á
predikunarstóla prestanna?
Ef til vill má um þetta segja
eins og stendur i Hávamálum:
Hugur einn það veit,
er býr hjarta nær.
Einn er hann sér of sefa.
En hitt er þó vist að i okkar
oftnefnda velferðar- og nægta-
þjóðfélagi er fólkið áreiðanlega
að hugsa um það öðru fremur,
hvernig það geti sem best búið
sig undir það og verið sem fær-
ast um það að taka þátt i lifs-
gæðakapphlaupinu svo að það
verði ekki alltof aftarlega i sin-
um riðli.
Hvað þurfum við hjónin að
vinna mikið til þess að geta
staðið i skilum með afborganir
af sfðasta mublusettinu?
Hvernig get ég náð mér i lán
til að komast 2-3 vikur suður i
sólina á þessu ári?
Hvað þarf ég að leggja mikið
fyrir til að kaupa model ’78. og
þannig endurnýjað bilinn minn,
með hæfilegu millibili? Já ekki
er það ótrúlegt að eitthvað sé
það þessu likt sem margur er að
velta fyrir sér þegar hann virðir
fyrir sér lifið og tilveruna, haf-
andi samburð við kunningjana
og nágrannana i huga.
Eiga þessar spurningar eöa
svörin við þessu nokkuð erindi
lega hin eina færa leið hin sanna
lækning hin fullkomna lausn.
Nýlega er þetta haft eftir,
erkibiskupunum i Vin: Ég trúi
þvi að timi sé til þess kominn, að
uppgötva að nýju anda
fagnaðarerindisins og að viö
verðum að hafa hugrekki til að
lifa iþeim anda (Morgunbl. 15/1
1978)
Já vissulega þarf hugrekki til
aðsnúa af þessari braut fánýtr-
ar heimshyggju sem við öll
göngum, meira og minna buguð
af þungum áhyggjum vegna
uppfyllingar gerviþarfanna og
inn á þá braut þar sem á skiltinu
stendur: Verið ekki hugsjúkir
um neitt, heldur gjörið i öilum
hlutum óskir yðar kunnar Guði
með bæn og beiðni ásamt
þakkargjörð (Fil 4.6)
Ef við tækjum þessari fögru
og djörfu uppörfun Páls postula
þá myndi margt breytast til
batnaðar i lifi einstaklingsins og
ástandi þjóðmálanna.
Samkvæmt kristinni kenningu
og lifsskoðun er trúin lifsgrund-
völlur mannsins — trúin á góðan
Guð sem gefur okkur lifið og öll
gæði þess eða öllu heldur gerir
okkur að ráðsmönnum yfir
þeim. Þessar gjafir hans laun-
um við með þvi einu að verja
þeim á réttan hátt — skipta
þeim með okkur af rétt-
læti bróðurkærleikans, verja
þeim með hófsemi stillingarinn-
ar og njóta þeirra i fögnuði hins
þakkláta hjarta.
Ef við reynum af fremsta
megni og góðum vilja að gera
þetta með Guðs hjálp, þá mun
spurningum dagsins fækka og
áhyggjur lifsins verða létt-
bærari.
Vist ávallt þeim vana halt
vinna lesa iðja.
En umfram allt þó ætið skalt
elska Guð og biðja.
inn i venjulega predikun? Er
þar að vænta nokkurra svara
við þeim? Nei ekki beinlinis.
En kirkjan — boðberi kristin-
dómsins —á þó að geta leiöbeint
mönnunum i daglegum vanda-
málum lifsins — einnig i vel-
ferðarþjóðfélaginu. Er hún ekki
fulltrúi hans flytur hún ekki
boðskap hans — sem sagði: Ég
er vegurinn, ég er sannleikurinn
ég er lífið. Og hér má lika i
stystu máli fullyrða það að ef
við göngum á þeim vegi þá
hverfa vandamálin þá losnum
við sjálfkrafa við þær hinar
mörgu nærgöngulu spurningar,
sem gerviþarfnirnar vekja i
hugum okkar og við gerum að
svo erfiðum vandamálum og
viðfangsefnum i lifi okkar
hverja nótt og nýtan dag.
Hvernig eigum við að hljóta
þessa lausn? Hvernig eigum við
að koma auga á þennan veg og
öðlast fúsleik til að fara hann?
Slfkt væri óneitanlega mikil
og róttæk lifernisbreyting. En
hvað sem um það er, þá er hún
najðsynleg, já hið eina nauðsyn-
C
Séra Gisli
son skrifar
Brynjólfs-
j
SPURNING DAGSINS
SNÆÐA VILLIBRÁÐ OG
BJÓDA UPP LISTAVERK
Lionsklúbburinn Fjölnir efnir
til villibráðaráts og listaverka-
uppboðs i Atthagasal Hótels Sögu
föstudaginn 3. febrúar klukkan
19.
Eru þar allir velkomnir, Lions-
félagar sem aðrir, til að smakka
gæsir, endur, lunda, svartfugl,
rjúpu og hreindýrakjöt meðan
nokkur biti er eftir. Til að tryggja
aðekki verði skortur villifanga er
mönnum bent á að panta miða i
simum 72852, 13501 eða 83869 ekki
seinna en i kvöld, fimmtudag.
Einnig veröur uppboð lista-
verka veftir kunna listamenn.
Veislustjóri verður Richard
Hannesson, aðalræðumaöur Pét-
ur Guðjónssonog Ómar Ragnars-
son skemmtir. Formaður Fjölnis
er Birgir Jóhannsson tannlæknir.
Samkoman er haldin tfl að afla
fjár sem klúbburinn notar til
styrktar vistheimilinu i Viöinesi
sem klúbburinn hefur veitt stuðn-
ing um árabil.
— SG