Vísir - 15.02.1978, Blaðsíða 2

Vísir - 15.02.1978, Blaðsíða 2
 i'ISlK spyr é'' c Á VOPNAFIRÐI “— v------- Hvað finnst þér um veru og vinnslu bræðsluskips- ins Norglobals við strendur íslands? Barfii Gufimundsson, verslunar- stjóri:Mér finnst þaö algjör land- ráö aö leyfa þetta. Viö eigum aö vinna okkar afla sjálfir, enda höf- um viönægan vinnukraftog tækni til þess. Sigurjón Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri: Þaö ætti aö banna þaö að Norglobal kæmi hingað til þess að taka á móti loönu. Aftur á móti ætti að leyfa erlendum skip- um veiöar hér við land, gegn þvi aö þau lönduöu aflanum hér. Einar Helgason, bóndi: Þaö er engin hemja, aö viö látum erlent vinnuafl njóta þessara verkefna, þegar manni skilst aö við séum langt komnir með að ofnýta loðnustofninn. Ég er algerlega ósammála því að leyfa þessuer lenda verksmiðjuskipi loðnu- bræöslu hér viö land. Halldór K. Halldórsson, kaup- félagsstjóri: Þaö er algerlega fat- alt að leyfa þessu skipi aö koma inn i landhelgina og athafna sig hér. Þaðerutil nægar verksmiðj- ur til að taka á móti þvi magni, sem okkur er óhætt að veiöa af loönu. Bragi Dýrfjörö, flugvaUareftir- litsmaöur: Mér finnst þaö fásinna aö leyfa slika vinnslu á sjó hér viö land, þegar geymslurými og verksmiðjukostur er hér fyrir hendi og innlent vinnuafl. Ég vil ekki sjá þessa Utlendu verk- smiöju nálægt landinu. Mifivikudagur 15. febrúar 1978 VTSIR „Ljós" með sýningu að Kjarvals- stððum Ljósmyndaklúbburinn Ljós hefur opnað sína fjórðu sýningu að Kjar- valstöðum. Hún mun standa til 28. febrúar. Gestur sýningarinnar að þessu sinni verður Jón Kaldal, sem hefur rekið stofu i Reykjavik allt frá árinu 1925. Undirbúningur þessarar sýn- ingar hefur staðið yfir i um tvö ár. Fyrri sýningar Ljós hafa verið mjög vel sóttar, en á þá fystu komu um átta þúsund manns, en um fimm þúsund manns á þá siðari. Félagar i Ljós eru nú þrir, þeir Kjartan B. Kristjánsson, Gunnar S. Guðmundsson og Pétur Þ. Maack. —KP ggíM Hfl Norrœna félagið um Norðurlandaferðir sínar: „NAUÐSYNLEGT AÐ TAKA UPP NÝ VINNUBRÖGD" „Norræna félagið vill taka fram að það hefur engan áhuga á að lenda í illdeilum við fyrrverandi gott samstarfsfólk hjá úfsýn, en vill á hinn bóg- inn ekki liggja undir því ámæli að það fari með vísvitandi blekkingar. Þegar formaður Norræna fé- lagsins nefnir að félagið bjóði lægstu fargjöld felst ekki i þvi að aðrir geti ekki boðið jafn lág fargjöld heldur hitt að enginn bjóði lægri fargjöld i almennu flugi”, segir i greinargerð frá Jónasi Eysteinssyni fram- kvæmdastjóra Norræna félags- ins um Norðurlandaferðir þess en þær hafa borið nokkuð á góma i fjölmiðlum undanfarið. Ekki ferðaskrif stof u- rekstur I greinargerðinni segir að nú um allmörg ár hafi Ferðaskrif- stofan Otsýn séð um flutning á farþegum Norræna félagsins og hafi sú samvinna verið hin ánægjulegasta. Farþegafjöldi hafi komist upp i nær þrjú þús- und manns á árinu 1976. Oft hafi verið um það rætt á þessum tima að félagið sjálft tæki að sér að annast þessar ferðir en það hafi ekki viljað fara út i ferða- skrifstofurekstur. Af öllum seldum miðum hafi Norræna fé- lagið fengið sérstakt gjald til að standa undir auknum kostnaði vegna ferðanna. Ný fargjöld ,,A siðasta ári voru kynnt ný fjargjöld einstaklinga. Þessi fargjöld og sú staðreynd aö ýmsa. 'eröaskrifstofur bjóði uppása. konar hópferðagjald og Norræna íélagið urðu til þess að þau fargjöld urðu ódýrari en fargjöld á ferðum N.F. þar sem ferðaskrifstofur lögðu ekki afgreiðslugjald á ferðirnar. Stjórnendur Norræna félagsins sáu að þessa samkeppni gátu þeir ekki unnið og þvi var ákveðið að hluti af hækkuðum árgjöldum skyldi fara til þess að greiða kostnað er hlytist af auknu skrifstofuhaldi vegna ferðanna en farþegar fengju ferðirnar án afgreiðslugjalda.” Mikil fjölgun félaga Ennfremur segir i greinar- gerðinni að félögum Norræna félagsins hafi fjölgað um tæp tiu þúsund á siðustu árum m.a. vegna hinna ódýru ferða er það henur boðið upp á til Norður- landa. Þessum nýju félögum vilji félagið ekki bregðast. Þar sem farþegum á vegum félags- ins fækkaði um helming á sið- asta ári, þrátt fyrir aukinn far- þegafjölda i heild til Norður- landa megi rekja til hinna nýju fargjalda hafi Norræna félagið dregið þann lærdóm af þvi að nú yrði félagið að breyta um vinnu- brögð. —KS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.