Vísir - 15.02.1978, Page 5
Rússar andvígir
banni við kjam-
orku í spútnlcuni
Einn af virtari vis-
indamönnum Sovét-
rikjanna snerist i gær-
kvöldi gegn hvers kon-
ar takmörkunum á
k j ar norku knúnum
gervihnöttum, þegar
slikar hugmyndir bar á
góma á fundi einnar
nefndar Sameinuðu
þjóðanna.
„011 notkun véltækni felur 1
sér einhverja hættu,” sagði
Evgeny Federov úr sovésku
akademiunni, þegar bent var á
Cosmos 954, gervihnöttinn sem
hrapaði niður 1 auðnir Kanada.
„Öttinn við að eitthvað kunni
að fara úrskeiöis má ekki stöðva
menn i viðleitni þeirra til vis-
indalegra afreka,” bætti hann
við.
Federov ávarpaði eina af
undirnefndum Sameinuðu þjóð-
anna sem fjallar um friðsam-
lega notkun geimsins, og taldi
hann, að gildandi al-
þjóðasamningar væru viðhlit-
andi en þeir taka meðal annars
til skaðabóta vegna tjóns af
völdum geimtilrauna.
Fulltrúar aðildarrikja geim-
ráðs Sameinuðu þjóðanna höfðu
lagt til að gert yröi uppkast að
alþjóðareglum sem settu höml-
ur á notkunkjarnorku við geim-
tilraunir vegna hættunnar á
geislaeitrun. — Carter Banda-
rikjaforseti lagði svipað til 31.
janúar s.l.
Fundarmönnum fannst felast
i ræðu Federovs fyrirheit um,
að Kanadamenn mundu fá bætt-
an snaðann sem þeir hlutu við
að leifar Cosmos 954 hröpuðu
niður i Kanada.
Don Jamieson utanrikis-
ráðherra Kanada,skýrði frá þvi
i gær, að kostnaður vegna leitar
að braki sovéska gervi-
hnattarins næmi orðið tveim
milljónum dollara.
Federov sagði á fundinum i
gær að Sovétmenn hefðu boðið
Kanada aðstoð, flugvélar, sér-
fræðinga og nauðsynleg tæki til
þess að leita að og gera óskað-
legar leifar gervihnattarins en
Kanadamenn heföu afþakkað.
Kanadamenn segja aö aðstoð
Sovétmanna hafi verið boðin
siðar en látið hefur verið i veðri
vaka. Þá hafi leit Kanada-
manna sjálfra og varúðar-
ráðstafanir verið komnar vel á
veg.
Söng-
keppni
Euro-
vision
Það horfir til metþátttöku i
hinni árlegu söngkeppni Euro-
vision, sem fram á að fara 22.
april i Paris. Að minnsta kosti
20 þjóðir munu eiga þar full-
trúa.
28 sjónvarpsfyrirtæki, sem
standa i tengslum við Euro-
vision, munu senda keppnina
út.annað hvort beint eða siðar.
Sex austantjaldsstöðvar hafa
pantað útsendingar. Keppnin
mun sjást beint í Hong Kong,
þar eð útsendingunni verður
endurvarpað um gervihnött.
Afturkippur í
barneignum
Fólksfjölgun i heimin-
um hefur náð hátindi
sinum og er byrjuð að
dalaaftur, vegna óvænts
afturkipps i barneignum
þróunarlandanna, eftir
þvi sem sérfræðingar i
þessum efnum halda
fram.
„Þessi afturkippur i frjósem-
inni eru góöar fréttir, einkanlega
fyrir snauðari þjóðir heims,”
sagði dr. Nick Eberstadt við Har-
vard-háskóla á visindaráðstefnu i
Washington i gær. — Harvardhá-
skóli rekur stofnun, sem helgar
sig einungis rannsókn á fólks-
fjölgun i heiminum.
Doktorinn spáði þvi, að líklega
yrði ibúafjöldi jarðar árið 2000
orðinn um 5,5 milljarðar (i stað
4,1 milljarðsi dag). En fyrri spár
byggðará athugunum Sameinuöu
þjóðanna höfðu ætlað, aö ibúar
jarðar yrðu orðnir 6,5 milljarðar
árið 2000.
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sókna þeirra i Harvard náði
fólksfjölgunin hámarki um 1970,
þegar hun var um 1,9% á ári. 1
fyrra hafði hún dalað niður i 1,7%.
Dr. Eberstadt sagöi, að þessi
samdráttur mundi auövelda
mönnum að yfirvinna fátæktina i
SIRANGARI L0G GEGN
HKYDJUVERKAMÖNNUM
Ágreiningur, sem
reis út af nýjum,ströng-
um viðurlögum við
hryðjuverkum i
V-Þýskalandi, virtist
ætla að kljúfa annan
stjórnarflokkinn, en hef-
ui* nú verið jafnaður.
Vinstrivængurinn i sósialdemó-
krataflokknum hafði i hótunum
um að greiða atkvæði gegn
stjórnarfrumvarpi um strangari
viðurlög við hryðjuverkum, en
með málamiðlun tókst að halda
einingu innan flokks Helmuts
Schmidts kanslara.
Það voru átta vinstrisinnaðir
þingmenn flokksins, sem ætluöu
að greiða atkvæði gegn stjórn-
inni, en það hefði þýtt, að frum-
varpið hefði verið fellt meö 2 at-
kvæöa mun. — Fjórir þeirra hafa
nú snúist á sveif með stjórninpi
aftur og ætti það að duga henni.
Kristilegir demókratar höfðu
áður lýst þvi yfir, að þeir mundu
greiða atkvæði gegn frumvarp-
inu, þar sem þeim fyndist hin
nýju lög ekki ganga nógu langt.
Veigamestu breytingarnar,
sem felast i nýja frumvarpinu,
gera ráð fyrir þvi, að verjendur
hryðjuverkamanna fái ekki að
vera viðstaddir réttarhöld i mál-
um skjólstæðinga sinna, ef grun-
ur leikur á þvi, að málflutnings-
mennirnir standi i tengslum við
ólögleg samtök. Gildandi löghafa
gert ráð fyrir, að banna megi
verjendum að vera við réttarhöld
skjólstæðinga sinna ef sannaðist
að þeir styddu slik samtök.
Onnur breyting, sem frum-
varpið felur i sér, er meiri lýmk-
un húsleitarheimildar fyrir lög-
regluna.
Dregið hefur úr
fólksf jölgun
síðan 1970
heiminum. Taldi hann, að þessar
tölur fælu í sér, að þróunin heföi
haldiðinnreið sinahjá barnafólki.
Annar sérfræðingur I fólks-
fjölgunarmálum, Parker Maudl-
in, sagði, að samdráttur barn-
eigna í þróunarlöndunum hefði
verið örari, en menn heföu gert
sér grein fyrir. Sagði hann, að
dregið hefði meira úr barneign-
um á þessum áratug en þrem
næstu áratugunum þar á undan.
Þriðji sérfræðingurinn, dr. Ro-
bert Repetto, vildi setja þennan
samdrátt barneigna i samband
við betri lífskjör fólks i sumum
löndum heldur en á árunum 1950
til 60. Tók hann sem dæmi Kina,
Taiwan, Suður-Kóreu, Malaysiu
og Sri Lanka. — Ekki fylgja
Brasilia og Filippseyjar þeirri
kenningu. Þar hefur litið dregið
úr barneignum, þrátt fyrir betri
afkomu.
Dr. William Peterson frá
Ohio-háskóla sagði, að herferðir
rikisstjórna til takmörkunar
barneigna hefðu litil áhrif haft,
þrátt fyrir milljónir dollara, sem
varið hefði verið til þess. (Svo
sem herferðin i Indlandi.) Taldi
hann, að i sumum hinna snauðari
rikja hefði frjósemin jafnvel auk-
ist, þrátt fyrir þessi tilþrif, eða
kannski einmitt vegna þeirra,
eins og sumir sérfræðingarnir
vildu ætla.
Vill annon
dómara
Lögmaður Roman
Polanskis, leikstjóra,
segir, að skjólstæðing
ur hans kunni að snúa
aftur frá Frakklandi ti
þess að taka afleiðing-
um kynmaka sinna við
þrettán ára stúlku, ef
nýr dómari yrði settur i
mál hans.
Douglas Dalton, verjandi
Polanskis, hélt þvi fram í gær,
að Laurence Rittenband, dóm
ari i máli Polanskis, væri hlut-
drægur og haldinn fordómum
gegn leikstjóranum. Dalton fór
fram á, að nýrdómari yrði sett-
ur yfir málið.
Rittenband dómari brást i
fyrstu reiður við þessum nýja
málatilbúnaði lögmannsins og
neitaði að taka kvörtunina fyrir.
Siðar samþykkti hann, að kæran
skyldi tekin fyrir 24. febrúar.
Hinn 44 ára gamli Polanski
hafði verið 42 daga i fangelsi
vegna geðrannsóknar, áður en
hann flúði til Frakklands. Hann
flúði, þegar hann hafði pata af
þvi, að dómarinn ætlaði að
dæma hann til frekari fangelsis-
vistar, ef hann yrði ekki á brott
úr Bandarikjunum eftir 90 daga
gæslu.vegna geðrannsóknarinn
ar.
Dalton lögmaður flaug til
Parisar i siðustu viku til þess aö
reyna að telja Polanski á að
snúa aftur til Bandarikjanna og
mæta fyrir rétti.
1 kvörtun sinni i gær viður-
kenndi lögmaðurinn, að dómar-
inn hefði upphaflega ætlað að
gefa Polanski þann frest sem
hann þyrfti til þess að ljúka gerð
kvikmyndarinnar „Hurrican” i
Tahiti.Hannsagði,að dómarinn
hefði ekki ámálgað neitt um að
visa Pólanski úr landi. Dalton
sagði, að dómaranum hefði sið-
an snúist hugur, þegar hann sá
fréttamynd af Polanski, um-
kringdan stúlkum á bjórhátið i
Munchen.