Vísir - 24.02.1978, Side 4
Föstudagur 24. febrúar 1978 VISIR
A
Fiskur til Sovét fyrir
liðlega þrjó milljarða
Undirritaðir hafa
verið i Moskvu
samningar um sölu á
9.500 smálestum af
hraðfrystum fiski til
afgreiðslu á þessu ári.
Heildarverðmæti þessa
samnings er um 3.1
milljarður króna á nú-
verandi gengi.
Kaupandi er að vanda V/O
Prodintorg og seljendur eru
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
og Samband isl. samvinnu-
félaga. Þeir Arni Finnbjörnsson
frá SH og Sigurður Markússon
frá sjávarafurðadeild SIS önn-
uðust samningsgerðina af
Islands hálfu.
Um er að ræða sjö þúsund
lestir af flökum og tvö þúsund
og fimm hundruð lestir af heil-
frystum fiski. Þetta er sama
heildarmagn og samið var um.
við Sovétmenn I ársbyrjun 1977
til sölu á þvi ári, en vegna við-
bótarsamninga urðu heildar-
afgreiðslur þá um 12.800 lestir.
—SG.
Var sá íslenski
„svœfður" í Suður-
afrísku flugvélinni?
Halldór Sigurdsson, frétta-
maður danska útvarpsins,
neitar þvi að hafa verið
drukkinn i |lugvélinni.
Einn þekktasti útvarps-
maöur Dana ber hið alís-
lenska nafn Halldór Sig-
urdsson. Er þaö í sjálf u sér
ekkert sérstakt þegar þess
er gætt, að hann er af ís-
lenskum ættum.
Þessi frægi ,,Dani" hef-
ur verið heldur betur í
sviðsljósinu í Danmörku að
undan förnu. Ástæðan er
sú að í blaðinu ,,Rhodesian
Herald" sem gefið er út í
Ródesíu, var sagt á dögun-
um að hann hefði ekki
fengið að koma inn í landið
vegna þess að hann hafi
verið útúrdrukkinn.
Hann hafi verið með hótanir og
skæting i garð starfsfólks vélar-
innar, lent i slagsmálum við einn
farþegann og móðgað bæði Róde-
siu og Suður-Afriku með yfirlýs-
ingum sínum um þjóðirnar.
Halldór sem sendur hafði verið
til Ródesiu á vegum danska út-
varpsins til að safna fréttaefni,
hefur mótmælt þessari frásögn,
og segir hana uppspuna frá rót-
Braust
inn í
ríkið
Brotist var inn i Afengis-
og tóbaksverslun rikisins við
Snorrabraut i nótt. Sá sem
þar var að verki, gat náð sér
i vin en að sögn lögreglunnar
hafði hann þó aðeins með sér
fáar vinflöskur. Lögreglan
gómaði manninn fljótlega
eftir að hann hafði brotist
inn. —EA
um. Segir hann að yfirvöld i Suð-
ur-Afriku hafi fyrst neitað sér um
vegabréfsáritun, en það hafi
Ródesiumenn ekki getað gert, þar
sem landið eigi að vera opið fyrir
ferðamenn.
Til að koma i veg fyrir að hann
gæti unnið sin störf og sagt frá þvi
sem um væri að vera i landinu,
hafi verið gripið til þess ráðs að
gefa honum svefnlyf i drykk, sem
hann hafi pantað i flugvélinni.
Segir Halldór að hann hafi ekki
almennilega vitað af sér fyrr en
hann kom til Salisbury, en þá hafi
sér verið meinuð landganga á
þeim forsendum að hann væri
drukkinn og hefði móðgað far-
þega og áhöifn suður-afrisku
flugvélarinnar.
Bent er á að þetta suður-afriska
flugfélag hafi fyrir tveim árum
verið kært til IATA — Alþjóða-
sambands flugfélaga — fyrir að
leyfa njósnurum stjórnar Suður-
Afriku að starfa um borð i flug-
vélum sinum, sem flugfreyjur
eða flugþjónar. A þann hátt hafi
þeir getað hlustað á samræður
farþeganna og látið vita ef ein-
hver óæskileg persóna væri með-
al þeirra. — klp.
NY SENDING
AF FÓTLAGASKÓM ÚR MJÚKU STERKU ANILIN SKINNI MEÐ
ÞYKKUM ÓSVIKNUM HRÁGÚMMÍSÓLUM.
teg: 3173
dökkbrúnt
no: 37-39
verð frá kr. 5.405
ófóðrað verð frá kr. 5.180
ii ## 5.500
teg: 2371
Ijósbrúnt
no: 28-40 fOðraO ##
ófóðrað og fóðrað til 48 ^
KÚREKASTIGVÉL ►
úr leðri með hrágúmmíbotnum
litur: Ijósbrún
verð kr. 13.570
Vorum að taka upp í gœr nýja sendingu af fótlaga
barnaskóm fró PÍLAR
Vinsœlu kuldaskórnir o.fl. o.fl.
Domus Medica
Kgilsgötu
Sirni 1X519.
PÓSTSENDUM
SAMDÆGURS
teg: 2369 verðfró
llósbrunt
no: 36-46 kr. 5.120
teg: 3338
Ijósbrúnt
no: 33-46 verð fró kr. 4.980
teg: 2372
Ijósbrúnt
no: 34-42
verð fró
kr. 4.935