Vísir - 06.03.1978, Side 1

Vísir - 06.03.1978, Side 1
Verkalýðsfélögin hafa vlsitöluskerðinguna að engu AUGLÝSA TAXTA ÁM SKERDINGAR Vinnuveif endur segja þetta brot á santningum //Verkalýðsfélögin hafa sent út þá kauptaxta, sem kjarasamningarnir kveða á um, og þeir eru alls ekki ólöglegir, þar sem ekkert bannar mönnum að greiða hærra kaup en þessi lög segja til um",sagði Snorri Jónsson, varaforseti Alþýðusambands Islands, í morgun. Hann var spurður um þá yfirlýsingu frá Vinnu- veitendasambandinu, sem send var út í gær, þar sem félagar í Vinnu- veitendasambandinu voru varaðir við þvi, að verkalýðsfélögin hefðu „gefið út og dreift kaup- töxtum, þar sem tilgreint er hærra kaup en greiða ber samkvæmt kaup- gjaldsútreikningum byggðum á gildandi kjarasamningum, lögum nr. 3 1978 um ráðstafanir i efnahagsmálum og til- kynningu Kauplags- nefndar um verðbætur frá 1. mars til launþega innan Alþýöusambands Islands”. I yfirlýsingu Vinnu- veitendasambandsins segir, að útgáfa slikra kauptaxta sé ,,að sjálf- sögðu ólögmæt, þar sem kjarasamningum hefur ýmist ekki verið sagt upp, eða uppsagnarfrestur þeirra er ekki liðinn. Vinnuveitendasamband Islands beinir þvi til félagsmanna sinna og annarra vinnuveitenda að vera á varðbergi gagn- vart kauptaxtaútgáfu af þessu tagi og áminnir þá um að greiða kaup samkvæmt réttum kaup- töxtum”, segir i yfirlýs- ingunni. ,,Við mótmælum þeim töxtum, sem vinnu- veitendur gefa út og viðurkennum þá ekki”, sagi Snorri i morgun. Hann sagði að verka- lýðsfélögin myndu almennt gefa út kauptaxta miðað við óbreytta samninga, en meðal þeirra félaga, sem þegar hafa gert það, eru stærstu verkalýðsfélögin svo sem Dagsbrún i Reykjavik. „Við munum leggja áherslu á að greitt verði samkvæmt bessum aug- lýstu töxtum, eða þá að atvinnurekendur semji við okkur um annað, sem væri igildi þeirra”, sagöi Snorri. ----ESJ Jón Sigurðsson, ■ forstöðumaður ) Þjóðhagsstofnunar* Gengis- fellingin leysti! ekki svœðis- ! bundinn vanda1 ■ „Það er tvimæla- laust rétt, að gengis- breytingin, og þær 1 breytingar á rekstrar- ■ skilyrðum frystihús- ■ anna, sem samhiiða ■ urðú, leysa ekki hvers B manns vanda i frysti- B iðnaðinum, og yar á- reiðaniega ekki ætiað * það”, sagði Jón Sig- ■ urðsson, forstöðumaður ■ Þjóðhagsstofnunar, við a Visi er hann var spurð- ur hvort gengisfellingin hefði verið of litil tO að 1 leysa vanda frystihús- ■ anna. ■ i viðtalinu við Jón ■ kom fram, að hann taldi a þann vanda, sem eftir ætti að leysa, svæðis- bundinn. Þetta væri ■ by ggðavandi, sem leysa ■ ætti á þeimm vettvangi, ■ sem tii þess væri ætiað- a ur. Viðtalið við Jón birt- ist á blaðsiðu 2. Spenna i spilinu: Það sést framan á Morath, sem er I þungum þönkum, en Göthe snýr baki i myndavélina. Mótspilararnir eru Guðlaugur R. Jónasson, (til hægri) og örn Arn- þórsson. Visismynd: JA. Sænsku gestirnir fóru með sigur af hólmi á stór- móti Bridgefélags Reykja- vikur, sem haldið var um helgina. Sviarnir eru And- ers Morath og Hans Göthe, núverandi Evrópumeistar- ar I sveitakeppni. i öðru sæti urðu ungir spilamenn, Skúli Einarsson og Sigurður Sverrisson. t þriðja sæti urðu Jón Bald- ursson og Sverrir Ár- mannsson. Fyrstu-verðlaun voru kr. 100 þús, önnur kr. 75 þúsund og þriðju kr. 50 þús. Birgir ísleifur Gunnars- son, borgarstjóri, setti mótið með þvi að segja fyrstu sögnina fyrir Svi- ana. —ÓT. Hvaða félks- bílar eru best- ir í snjénum? Þeirri spurningu svarar Ómar Ragnarsson í þaettinum sínum „Bilarnir og við" á siðu 13

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.