Vísir - 06.03.1978, Blaðsíða 3

Vísir - 06.03.1978, Blaðsíða 3
y >* vism Mánudagur 6. mars 1978 Það er gaman að leika sér þegar mamma og pabbi eru að versla. Það er víða orðið algengt að hafa uppi leiktæki i verslunum, sérstaklega í þeim stærri, og í þeim una krakkarnir glaðir á meðan foreldrar þeirra ganga um og versla. Þetta er nú að ryðja sér nokkuð til rúms hér á landi, og myndin hér að ofan er tekin í Glæsibæ, og ekki er annað að sjá en unga stúlkan uni sér glöð á baki „Pluto". Vísismynd Jens. Enn ekki ráðið í stöðu rannsóknarlögreglumanns Enn hefur ekki verið ráðið i stöðu rannsóknarlögreglumanns i Keflavik, en umsóknarfrestur rann út i byrjun febrúar. Sam- kvæmt upplýsingum Jóns Ey- steinssonar, bæjarfógeta i Kefla- vik, sóttu þrir um stöðuna, þar af tveir starfandi innan lögreglunn- ar. Eins og komið hefur fram er Ilaukur Guðmundsson þriöji maðurinn sem sótti um. — EA Þjóðleikhúsið: Hœtt við upp- sagnir leikara öllum leikurum á svo- nefndum B-samningi viö Þjóðleikhúsið var sagt upp störfum bréflega um mánaðamótin. Þeir fengu á fimmtudaginn uppsagnar- bréf, dagsett 1. mars. Þar sem nú hefur komið i ljós, að það var 1-2 dögum of seint. miðaö viö samningsákvæðL hafa uppsagnirnar verið dregnar til baka. „Þessar uppsagnir koma verkfallsaðgcrðum siðustu daga ekkert við”, sagði Sveinn Einarsson, þjóðleik- hússtjóri, er Visir spurði hann um máliö. Hann sagði, að B-leikararnir væru á árs- samningi og væri uppsagnar- frestur sex mánuðir fyrir 1. september. „Ég leit þvi á þessar upp- sagnir sem formsatriöi”, sagði hann. Fulltrúar Starfsmanna- félagsrikisstofnana áttu við- ræður við bjóðleikhússtjóra i gær og bentu á, að upp- sagnirnar væru þvl aðeins gildar aö þær bærust i hend- ur leikaranna sex mánuðum fyrir 1. september. Til þess að svo hefði orðið, hefðu leikararnir þurft að fá upp- sagnarbréfiö fyrir 1. mars. Félls þjóðleikhússtjóri á að draga uppsagnirnar til baka af þessum sökum. —ESJ. Þorrablótið orðið að Góugleði Stöðug snjókoma og bylur hefur staðið yfir á Hvamms- tanga i rúma heila viku, eða frá þvi siðdegis síðastliðinn föstudag. Ófært hefur verið frá þorp- inu allan timann, en 1 fyrra- dag munu þó snjósleði og snjóbill hafa frelsaö nokkra aðkcmumenn úr prisundinni. Þorrablóti slysavarnar- félagsins sem halda átti á Tjörn á Vatnsnesi hefur verið breytt i góugleði vegna ófærðarinnar og ef ekki linn- ir látunum eru horfur á að það endist framá einmánuð. Skaflar i kringum Hvammstanga eru sumir hverjir þriggja metra djúpir. Vöruskortur hefur ekki gert vartviðsigá Hvammstanga. — SHÞ, Hvammstanga/GA. Hagstœður jcfnuöur í janúar Vöruskiptajöfnuður is- lendinga var hagstæður i janúar um rúma tvo rnillj- arða króna, en var óhag- stæður I sama mánuði i fyrra um 1.7 milljarö. Hagstofa islands bendir á að við samanburð á þessum tölum verði að hafa I huga, að meðalgengi islcnsku krónunnar var 18% lægra nú í janúar en á sama tima i fyrra. ESJ. nr~7 3 „Kjaranefnd handbendi fjármálaráðherro" — segir Oddur Gústafsson formaður launanefndar Starfsmannafélags sjónvarpsins „Úrskurður kjaranefndar er langt frá okkar kröfum, það langt, að það er nánast ekki neitt sem kemur I okkar hlut”, sagöi Oddur Gústafsson, for- maður launanefndar Starfs- mannafélags sjónvarps. i sam- tali við Visi. Frá niðurstöðum nefndarinnar var skýrt i Vísi fyrir helgina. „Við stóðum i þeirri trú að það ætti að koma til móts viö okkur á grundvelli niðurstöðu þcirrar nefndar scm geröi könn- un á stöðu starfsmanna sjón- varpsins miðað við starfsmenn opinberra fjölmiðla I Danmörku og Noregi", sagði Oddur. „Okk- ur finnst það skrýtið aö kjara- nefnd skuli bera fjármálaráð- herra fyrir sig i úrskurði sinum og sannar þaö að hún er hand- bendi fjármálaráðherra eins og kjaradómur var áöur.” Oddur sagði að hann vildi að það kæmi skýrt fram að vilji menntamálaráðherra heföi ver- ið aö engu hafður, en hann heföi verið þeim sjónvarpsmönnum hliðhollur. „Baráttan i launa- málum hefur verið stöðug hing- að til”, sagði Oddur,” og við munum halda henni áfram eftir sem áður þó að sigur hefði ekki unnist i þessari atrennu.” Á afgreiðslustöðum okkar seljum við SHELL flugnafæluspjaldið. Spjaldið er sett upp og engar flugur í því herbergi næstu 3 mánuðina. Spjaldið er lyktarlaust, og fæst í tveim stærðum. Olíufélagið Skeljungur hf Shell Hafið þér ónæðí af flugum? Við kunnum ráð viðþví Shelltox FLUGNA' FÆLAN \fentanlegir vinnimshafar Vinsamlega athugið að Happdrætti Háskólans greiðir ekki vinninga á þá miða, sem ekki hafa verið endurnýjaðir. HHÍO Látið ekki dragast að hafa samband við umboðsmanninn og endurnýja í tæka tíð. Dregið verður föstudaginn 10. mars. 3. flokkur 18 @ 1.000.000,- 18.000.000,- 18 — 500.000,- 9.000.000,- 207 — 100.000,- 20.700.000,- 306 — 50.000.- 15.300.000,- 8.163 — 15.000.- 122.445.000.- 8.712 185.445.000,- 36 — 75.000,- 2.700.000,- 8.748 188.145.000,- HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Hæsta vinningshlutfall í heimi!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.