Vísir - 06.03.1978, Blaðsíða 9
Hipndinum verður ekki
útrýmt úr borginni
Rannveig sendi blaðinu
eftirfarandi bréf:
„Það hefur nú enn einu sinni
verið fjallað um hundahald i
fjölmiðlumog þaðá fremur nei-
kvæðan hátt að minu mati. Við
verðum að horfast i augu við þá
staðreynd að hundahald er hér i
Reykjavik, framhjá þvi verður
ekki gengið.Þvi þá ei aö takast
á við það verkefni eins og fólki
sæmir? Mér finnst heilbrigðis-
yfirvöld sleppa allt of auðveld-
lega frá þessu máli. Talsmenn
þeirra segja að hér sé hunda-
hald bannað og þvi sé ekki hægt
að komast frá þessu verkefni
öðruvisi en að útryma hundum i
borginni. Hvers vegna er ekki
hægt að hafa þetta eins og t.d. i
Mosfellssveit? Þar er hunda-
hald leyft. En hundaeigendur
verða að takast á herðar ýmsar
skyldur t.d. að láta skrá hunda
sina og fara með þá til hreinsun-
ar einu sinni á ári. Þetta finnst
mér miklu meira vit en horfa
framhjá staðreyndinni.
Hvernig væri að borgaryfir-
völd tækju málið til rækilegrar
umfjöllunar og kæmust að ann-
arri niðurstöðu en þeirri að heil-
brigðiseftirlit með dýrum felst
ekki i þvi að útrýma þeim. Dýr-
um verður ekki útrýmt Ur borg-
inni og þá allra sist hundinum.
Tii þess hefur hann allt of lengi
verið náin vinur mannsins.
Ég vil einnig koma þeirri
skoðun minni á framfæri að þeir
sem tala um ófrelsi hundsins og
aðhannkveljist i þéttbýli eruað
minu mati að losna undan þvi að
taka afstöðu i þessu máli. Við
getum sagt okkur það sjálf að ef
hundurinn kvelst svona mikið
þá er það öruggt mál að hann
myndi flýja úr prisundinni.
Við ættum að sjá sóma okkar i
þvi að sinna þeim dýrum sem
við höfum i okkar umsjá sama
hvort það er hundur, köttur eða
eitthvert annað dýr, með eftirliti
og umhyggju.
Það er komið að
skuldadögunum
Gunnar Þórarinsson
skrifar:
Við íslendingar höfum aldrei
kunnað að lifa eins og venjulegt
fólk. Við kunnum okkur ekki hóf
i nokkrum hlut — og þó einkum i
kröfum til annarra. Ég heid að
æði oft vilji það gleymast að við
búum i harðbýlu landi, þar sem
jöklar og eldur hafa ráðiö mestu
um byggðina. Náttúran hefur
ráðið mestu um það að i landinu
eru margar fámennar og
dreifðar byggðir. Þessar
byggðir þurfa á atvinnutækjum
að halda og þvi komu skut-
togararnir. Fjármagnið hefur
dreifst á marga staði. Þetta er
eðlilegt eins og þjóðfélagið er
uppbyggt. En nú er komið að
skuldadögunum — lánin þarf að
greiða. Við getum ekki enda-
laust tekið lán á lán ofan er-
lendis. Við erum nánast farin að
taka lán til að greiða vexti.
Svona gengur bara ekki til
lengdar —þaðverðuraö sporna
við fæti.
Við þurfum að koma í veg
fyrir óþarfa gjaldeyriseyðslu.
Gjaldeyririnn er okkur svo
mikilvægur að við megum ekki
við þvi að með hann sé farið eins
og leikfang. Hérna verður rikis-
stjórnin að gripa i taumana.
Það er hverjum hugsandi
manni ljóst aö það verður aö
gera einhverjar efnahags-
ráðstafanir. Auðvitað munu þær
koma niður á einhverjum. Það
er stjórnvalda að sjá svo um að
þeir sem minnst mega sin verði
ekki illa fyrir barðinu á þeim
ráðstöfunum. Bændur og sjó-
menn eiga að sitja i fyrirrúmi i
þessu þjóðfélagi, að öðrum kosti
verður þetta hvitflibbaþjóð-
félag.
Að tokum legg ég til að hér á
landi verði aðeins tveir stjórn-
málaflokkar. Það ætti að nægja
okkar litlu þjóð.
Helga hafði samband
við blaðið:
Hefur nokkur séö grábröndótta
læðu sem tapaðist frá Sóleyjar-
götu miðvikudaginn 15. febrúar
s.l.? Hún var vanalega mikiö á
ferð þarna i nágrenninu. Þegar
hún tapaðist var hún ekki með
hálsband. Ef einhver lesandi gæti
gefið upplýsingar um ferðir kisu
þá er hann vinsamlega beðinn að
hafa samband við mig i sima
10404 á kvöldin.
9
GLANSSKOL
Margir litir.
Gefur hárinu skemmtilegan blœ.
Hárgreiðslustofan
VALHÖLL
bðinsgötu 2
- Sími 22138
FATAGERÐIM BÓT
Skipholti 3,sími 29620
VERKSMIÐJUÚTSALA
Buxur úr FLAUEL og DENIM
é alla fjölskylduna
Butar i miklu úrvali
Verksmiöjuútsalan heldur
éfram nokkra daga enn
Opiö frékl.9-6;
FATAGERÐIN BÓT
Skipholti 3, sími 29620