Vísir - 06.03.1978, Síða 10

Vísir - 06.03.1978, Síða 10
10 VÍSIR Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davið Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ölafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð- mundurG. Pétursson. Umsjón meö helgarblaði: Árni Þórarinsson. Blaðamenn: Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimssón, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan L. Pálsson, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Jón Einar Guðjónsson. Utlit og hönnun: Jón Öskar Hafsteinsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8 simar 86611 og 82260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Áskriftargjald er kr. 1700 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu kr. 90 eintakiö. Prentun Blaðaprent h/f. Nýtt vísitölukerfi í framhaldi af misheppnuðum, ólöglegum verkfalls- aðgerðum forystumanna Alþýðusambandsins og Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja.er eðlilegt að í alvöru verði fariðað huga að nýju vísitölukerf i. Skerðing verð- bótavísitölunnar var óneitanlega það tilefni, sem for- ystumenn þessara stóru launþegasamtaka notuðu í því. skyni að hvetja til þessara ólöglegu upplausnaraðgerða. Þó að þessar aðgerðir hafi að meira og minna leyti misheppnast er full ástæða til að taka vísitölumálin til sérstakrar meðferðar. Það er einfaldlega kórrétt, sem Þjóðviljinn sagði fyrir nokkrum árum, að vísitölukerfið ætti stóran þátt í þvi, að verðbólgan hef ur verið meiri hér en í nálægum löndum undanfarna áratugi. I byrjun stjórnartímabils núverandi ríkisstjórnar var formaður Alþýðubandalagsins þeirrar skoðunar, að koma yrði í veg fyrir að kaup æddi upp á eftir verðlagi eftir einhverjum vísitölureglum eins og þeim, sem við höfum búið við, því að það kippti stoðunum undan eðli- legum atvinnurekstri. Þó að Lúðvík Jósepsson sé annarrar skoðunar um þessar mundir, sýna þessi ummæli, að hann hef ur sýnt þessu vandamáli skilning við aðrar pólitískar aðstæður en nú eru, þegar skammt er til kosninga. Leiðtogar ann- arra stjórnmálaf lokka haf a á hinn bóginn að undanförnu látið i Ijós ákveðinn áhuga á nýju vísitölukerfi. Dr. Gylf i Þ. Gíslason skrifaði m.a. mjög athyglisverða grein í Visi fyrir skömmu um vísitölukerf ið og sýndi með skýrum rökum fram á galla þess. Það mælir t.d. rýrn- andi viðskiptakjör til hærri launa, og aukin framlög til opinberrar þjónustu eins og heilsugæslu hafa sömu áhrif. Þegar til lengdar lætur stendur verðmætasköpunin ekki undir þessari sjálfvirku krónutöluf jölgun. Og þá er verðlausum krónum stungið í launaumslögin. Kjarni málsins er sá, að menn verða að átta sig á því í eitt skipti fyrir öll, að þessar verðlausu verðbólgukrónur bæta alls ekki lífskjörin. Stundum er þvi haldið f ram að deilur um vísitölukerf ið séu þáttur í hagsmunaágreiningi vinnuveitenda og laun- þega. Þetta er þó blekking, því að þegar allt kemur til alls er þetta kerfi andstætt hagsmunum beggja. Afstaða stjórnmálamanna til vísitölukerfisins hefur ekki ráðist af ólíkum grundvallarhugmyndum, heldur flokkspólitiskum aðstæðum. Þar hefur spurningin um hlutverk stjórnar og stjórnarandstöðu. svo og nálægð kosninga ráðið miklu meira um eins og dæmin sýna. Sjálfstæðisf lokkurinn er næst stærsti f lokkurinn innan verkalýðshreyfingarinnar og á auk þess sterkust ítök meðal atvinnurekenda á frjálsum markaði. Formaður þessa flokks hefur margsinnis lýst áhuga sínum á vísi- tölubyltingu, örugglega sannfærður um að slík kerfis- breyting þjónaði hagsmunum þeirra ólíku hópa, sem flokkur hans styðst við. Sama er að segja um formann þingflokks Alþýðu- flokksins. Hann hefði ekki sett fram hugmyndir um þjóðhagsvísitölu nú nýverið hér í blaðinu, ef hann teldi þaðekki þjóna sameiginlegum hagsmunum launþega og atvinnufyrirtækja. Lúðvík Jósepsson hefur metið póli- tísku taflstöðuna öðruvísi, en hann hefur við aðrar að- stæður bæði í stjórn og stjórnarandstöðu talið nauðsyn- legt að stöðva vísitöluuppbætur á laun. Það hef ur hann örugglega ekki gert gegn hagsmunum launþega, enda hefur flokkur hans mest ítök í verkalýðshreyfingunni. Mánudagur 6. mars 1978 VÍSIR Með VITA SKIPA- ÚTGERÐ RÍKISINS Hreppsnefnd Suðurf jarðar- hrepps, Bildudal, hefur fordæmt það sem hún kallar „ábyrgðar- lausar breytingar” á ferðum Skipaútgerðar rfkisins. Jafn- framt gagnrýndi hún harðlega póstflutninga og aðra liði sam- göngumála i svohljóðandi bókun, sem gerð var á hreppsnefndar- fundi á þriðjudaginn: Hreppsnefnd Suðurf jarðar- hrepps ályktar að algert vand- ræðaástand hafi skapast í sam- göngumálum byggðarlagsins með breyttri áætlun Skipaútgerð- ar rikisins. Hefur ástand i vöru- flutningum breyst þannig að að- eins annað strandferðaskipið kemur við á staðnum á suðurleið, á 14-20 daga fresti. Þetta er eini möguleikinn fyrir vöruflutninga til og frá byggðar- laginu mestan hluta ársins. Hreppsnefnd vitir þessar ábyrgðarlausu breytingar. Þá er algerlega óviðunandi ástand i vegasamgöngum milli iBildudals og Patreksfjarðar. SU lleið er oft lokuð dögum saman, lenda þótt ibúar þurfi að sækja Ilæknisþjónustu og fá mjólk og laðra þjónustu frá Patreksfirði. lEr þvi oft m jólkurskortur af þess- um ástæðum. Þá er óþolandi hvernig póst- flutningi er fyrir komið. Póstur milli Bildudals og Reykjavikur er eingöngu sendur með áætlunar- flugi Flugfélags Islands milli Reykjavikur og Patreksfjarðar. Kemur þvi oft fyrir að póstur er viku til tiu daga á leiðinni, sökum ófærðar, þrátt fyrir að beint áætlunarflug sé til Bildudals frá Reykjavik tvisvar i viku, auk annarra ferða. Lýsir hreppsnefnd furðu sinni á að þessar ferðir skuli ekki notað- ar til póstflutninga. Hreppsnefnd Suðurfjarðarhrepps skorar á þingmenn og stjórnvöld að bæta úr þessu óþolandi ástandi hið bráðasta. — HS,Bildudal/0T. < ... T Heimir Pálsson skrifar um sýningu Þjóðleik- hússins á ödipús kon- ' ungi eftir Sófókles. Þjóðleikhúsið sýnir: ödipús konungur eftir Sófókles. Leikstjórn: Helgi Skúla- son. Leikmynd: Gunnar Bjarnason. Búningar: Guðrún Svava Svavarsdóttir Þýðandi: Helgi Hálf- danarson. Einar K. Guðfinnsson skrifar frá Bretlandi um hreyfingu Evrópu- kommúnista og segir hana vera í miklum tengslum við Sovétrík- in og því sé ekki hægt að líta á hana sem sjálfstæða. Efnahagsbandalaginu og algjört sjálfstæði frá Kremlverjum. Þetta er Evrópukommúnisminn. Aftur i sviðsljósið Evrópukommúnisminn hefur nú nýlega orðið fréttaefni. Til- efnið er sú yfirlýsing Bandarikja- manna að þeir vildu að áhrif kommúnista i stjórnum Vestur- Evrópu minnkuðu. Strax á eftir þessari yfirlýsingu stökk sú þekkta kempa Henry Kissinger skilgreining ekki vera mjög fjarri lagi. Atburðir siðustu mánaða i Frakklandi sem sýna að vinstri hreyfingin þar klofnar engu siður en á Islandi, hafa leitt I ljós að kommúnistaflokkar i öðrum lönd- um vilja sem minnst af skoðana- bræðrum sinum I Frakklandi vita. Þetta kemur tii að mynda glöggt i ljós i viðtali bandariska vikuritsins Newsweek nýlega við Napolitano sem er talinn ganga Evrópukom og steiktu „Vofa gengur nú ljósum logum um Evrópu — það er vofa kommúnismans”. Eitthvaö á þessa leið hefst Kommún- istaávarp þeirra Karls Marx og Friedrichs Engels. Þessi drauga- gangur sem þeir félagar boðuðu árið 1848 hefur samkvæmt kenningum sporgöngumanna þeirra hvað eftir annað átt skammt i að verða að byltingu sem kollvarpa myndi hinum kapítalisku þjóðskipulögum Vesturlanda. Reyndin hefur verið önnur og hinar sósialisku bylting- ar hafa einungis orðið i þjóöfélög- um sem skemmra eru á veg kom- in. En pólitiskt skyggnir menn hafa þóst sjá aðra sósialiska vofu á reiki um Evrópu. Sú vofa þykist eiga ýmislegt sameiginlegt með kennisetningum þeirra Marx og Engels. Margt er þó i fari hennar sem gömlum sósialistum kemur eflaust spánskt fyrir sjónir svo sem yfirlýst trú á lýðræðislegar hefðir, virðing fyrir NATO og fram á sjónarsviðið og minnti á að þetta hefði hann sjálfur sagt endur fyrir löngu. Evrópukommúnismi var is- lenskum sósialistum hugleikið fyrirbæri ekki alls fyrir löngu. Tilefnið var að þvi mig minnir, ítaliureisa þáverandi formanns Alþýðubandalagsins, þar sem hann fékk nasaþef af þvi sem þar var að gerast. Aðrir sósialistar bættu um betur og lýstu þeirri skoðun sinni að hugmyndir hinna svokölluðu Evrópukommúnista væru ekkert nýtt þetta hefðu þeir verið að gera árum saman á Is- landi. „Steiktur snjóbolti.” Eins og þær umræður sem fram hafa farið um þetta fyrirbæri hafa leitt ' i ljós er Evrópu- kommúnisminn afskaplega ill- skilgreinanlegt hugtak. Menn hafa á þvi misjafnar skoðanir. Ein skilgreining sem ég hef heyrt er sú að Evrópukommúnisminn sé ,,álika ósennilegur og steiktir snjóboltar”. 1 raun virðist þessi Skoðun Cariilo er einfaldlega sú að hann álitur Varsjársáttmálann vera varnarsáttmáia og spænski - kommúnistaflokkurinn myndi samþykkja aðild að Nato, ef það væri vilji meirihluta Spánverja. næstur Berlinguer að völdum og virðingu i italska kommúnista- flokknum. Samvinnan virðist þvi takmörkuð. Þrátt fyrir þetta hefur sú hefö- bundna skilgreining smám

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.