Vísir - 06.03.1978, Side 13

Vísir - 06.03.1978, Side 13
Hvaða fólksbílar komast lengst í snjónum? Hvaöa bilar eru duglegastir i snjó og hálku? Þessu er fljótsvarað. Það eru þeir bilar, þar sem þung- inn er mestur á drifhjólunum og þau eru stærst. Þar af leiðir, að framhjóla- drifsbilar og bilar með vélina aft- ur i eru að öðru jöfnu duglegri i snjó og hálku en bilar með vélina að framan og drifið að aftan. Þetta á við um létthlaðna bila, en séu bilarnir fullhlaðnir, breytist þetta og framhjóladrifsbilarnir verða eftirbátar afturdrifnu bil- anna. Kannanir sýna hins vegar, að það er sárasjaldan, að fleiri en tveir séu I bil, og að meðaltali eru innan við tveir i hverjum bil i um- ferðinni. Á myndinni hér á siðunni sést, hver urðu úrslit prófunar þýska bilablaðsins Auto motor und sport, er mismunandi bilum var ekið hverjum fyrir sig upp brekku, sem varð æ brattari, eftir þvi sem ofar dró. Bflarnir, sem reyndir voru, voruCitroen CX 2400, framhjóla- drif, Volkswagen „bjalla”, vél aftur i og afturhjóladrif, Volks- wagen Golf, framhjóladrif, Volvo 244 DL, vél framan, afturhjóla- drif, Alfa Romeó Alfetta, vél framan, girkassi og drif að aftan, Mercedes Benz 250, vél framan, drif aftan. BMW 320, vél framan, afturhjóladrif, og Ford Cortina (Taunus), vél framan, aftur- hjóladrif. Með tveimur mönnum innan- borðs komust bilarnir upp brekk- una, eins og myndin sýnir, i bratta, sem hér segir: Þetta sést vel, ef litið er á eftir- farandi samanburð á framhjóla- drifsbil, afturvélar- og afturdrifs- bil og framvélar- og afurdrifsbil. Þungi á drifhjólunum: 0-2 menn Fullhlaðinn Vélogdrifaðframan: 61% 48% Vél og drif að aftan 61% 65% Vél framan, drif aftan: 45% 55% Flestir þekkja endalausar stæl- c Ómar Ragnarsson skrifar um bíla: D ur bilaeigenda um það, hversu duglegir bilar þeirra séu i hálku og snjó. Með þvi að athuga þungadreifinguna er hins vegar hægt að sjá svart á hvitu, hve duglegur billinn er og bæta örlitlu við, ef hjólin eru stór, en draga örlitið frá, ef hjólin er litil. Af samanburðinurc næst hér að framan má svo sjá breytinguna. þegar hleðsla er aukin. 1 bilum með afturdrifmá laga þungahlut- föllin með þvi að setja sandpoka eða annað þungt i skottið, og má sem dæmi nefna, að á bil, sem hefur hlutföllin 55-45, og er 1000 kiló, er hægt að breyta hlutföllun- um i 50-50 meðþvi að setja um 100 kQó i skottið. Þessmá geta, að það er algeng- ur misskilningur, að þungi far- þega i framsætum hvili að megni til á framhjólum. Svo er ekki. 1 flestum bilum breytir þungi framsætisfarþega engu um þungahlutföllin, og á sumum bil- um t.d. á jeppum, þyngist billinn meira að aftan en framan við það að setið er i framsætum. Algild regla er, að þungi aftursætisfar- þega fer nær allur á afturhjólin, og farangur i skotti fer ekki að- eins allur á afturhjólin, heldur léttir hann að örlitlum hluta til á framhjólunum, vegna vogarafls (farangursþunginn er fyrir aftan afturhjól). Að þessu sinni er hvorki timi né rými til að birta töflu yfir þunga- dreifingu á ýmsum tegundum bila, en vonandi gefst færi á þvi siðar. A flestum fólksbilum eru hlut- föllin svipuð og i töflunni hér að framan. Meðal undantekninga eða bila, sem hafa aðra þunga- dreifingu en almennt er álitið, má nefna Audi 100 og Wartburg, hvort tveggja framhjóladrifsbila, sem eru nokkurn veginn jafn þungir að framan og aftan, og samkvæmt bilabókum og timarit- um eru þungahlutföllin á Volvo 343 57% á framhjólum og 43% á afturhjólum, sem eru drifhjól. Aliir á sömu gerð af hjólböröum, en komust þó mjög mislangt upp f brekkuna, sem var brattari eftir þvi sem ofardró. CitroenCX 2400: 23,5% fullhlaðinn 15,5% Volkswagen „bjaila” 23 % VolkswagenGolf 17,5% Volvo 244DL 16,5% Alfa Romeo Alfetta 16,5% Benz 250 16,5% BMW 320 15,5% FordCortina/Taunus 13,5% fullhlaðinn 21,5% Athygli vekur, að með tveimur mönnum innanborðs, kemst Citroen-billinn upp nær tvöfalt brattari brekku en Cortinan. Skýringin liggur i þvi, að á Citro- en-bilnum liggja 66% þungans á framhjólunum, (drifhjólunum) en aðeins 34% á afturhjólunum. A Cortinunni hvila hins vegar aðeins um 44% á drifhjólunum að aftan, en um 56% á framhjólun- um. Þegar báðir bilarnir eru hlaðnir, breytist þetta hins vegar, og á framhjóladrifsbilum verður þunginn venjulega ögn meiri á afturhjólunum en framhjólunum, eða um 48% á drifhjólunum. A afturdrifsbilum verður þunginn á fullhlöðnum bil hins vegar meiri að aftan en framan, allt að 57% á drifhjólunum. A prófuninni sést, að Alfettan kemst lengra en Cortinan, og er það að þakka girkassanum á Al- fettunni, sem er að aftan. Stóru afturdrifsbilarnir, Benzinn og Volvóinn, hafa hins vegar vegna stærðar sinnar álika þungadreif ingu (48% á drifhjólum), og vegna stærri hjóla komast þeir lengra en Alfettan. Þýska bilablaðið reyndi aðeins Citroen og Cortinu fullhlaðna, en óhætt er að slá föstu, að Volks- wagen „bjallan” heföi komist lengst allra bilanna fullhlaðin, og þvi má segja, að bílar með vél og drif að aftan séu þeir bilar, sem lengstkomist i hálku við mismun- andi aðstæður og hleðslu. AEG - TELEFUNKEN LITSJÓNVARPS- TÆKI 26" Fyrir rúmlega 10 árum settu AEG TELEFUNKEN verk- smiöjurnar á markaðinn fyrstu PAL litsjónvarpstækin en þá hófust litsendingar eftir þvi kerfi i Vestur Þýskalandi. Síðan hafa yfir 40 lönd með yfir 700 milljón íbúa tekið TELEFUN- KEN PAL KERFID i notkun. islensk yfirvöld tóku einnig þá skvnsamlegu ákvörðun að velja PAL KERFIÐ FRA TÉLEFUNKEN fyrir islendinga. Allir framleiðendur PAL LITSJÓNVARPSTÆKJA framleiða tæki sin undir einkaleyfi TELEFUNKEN og greiða þeim einkaleyfisgjöld. er vinnmgurinn að verðmœti kr. 485.000.- * TELEFUNKEN er eina fyrirtækið sem framleiðir litsjón- varpstæki sin með 100% einingarkerfi, sem einfaldar og flýtir viðgerðum. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 ' v \ * Ne< Sími 86611 Opið virka daga til kl. 22.00 Laugardaga kl. 10-15 Sunnudaga kl. 18-22. VÍSIR

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.