Vísir - 06.03.1978, Síða 25
VISIR Mánudagur 6. mars
1978
29
Allgóð afkoma Landsbanka íslands á nýliðnu ári
Mikil þörf talin á að
auka eigið fé bankans
Veruleg aukning
innlána ásamt hóf-
legri aukningu út-
lána og batnandi
lausafjárstöðu varð
til þess að afkoma
Landsbankans á
siðasta ári varð
allgóð.
Ólafur Jóhannes-
son viðskiptaráð-
herra staðfesti
reikninga bankans
fyrir árið 1977 á
fundi bankaráðs 28.
febrúar. Áður höfðu
reikningar bankans
verið undirritaðir
af bankaráði og
þingkjörnum
endurskoðendum.
Reikningarnir bera það
með sér að árið var bank-
anum hagstætt. Fyrstu
fimm mánuði ársins var
aukning innlána mikil enda
verðbólga minnkandi og
lausafjárstaða fyrirtækja
og einstaklinga rúm.
Innlán drógust saman I júni
að loknum kjarasamn-
ingum þegar séð varð að
verðbólga myndi aukast að
nýju.
Siðasta ársfjórðunginn
jukust innlán hins vegar
verulega og varð árs-
aukning innlána þvi mun
betri en á horfðist. Heildar-
aukning innlána varð allt
árið 42%, samanborið við
39% árið áður. Námu
innlán í árslok 34.800 millj-
ónum króna. Vaxtaauka-
innlán jukust mest og
námu 30% spariinnlána i
árslok. Rétt fyrir áramót
hóf bankinn að taka á móti
innstæðum á innlenda
gjald eyrisreikninga.
Aukning útlána
Heildarutlán bankans
jukust um 43% á árinu og
námu 42.500 millj, kr. i
árslok. Voruþað afurðalán,
sem að miklu leyti eru
endurseld Seðlabankanum,
sem jukust langmest, eða
um 76%. Útlán án endur-
seldra lána, sem háð eru
samkomulagi við Seðla-
bankann um útlánaþak,
jukust um 31%. 1 þeirri
aukningu er talin mikil
aukning viðbótarlána við
endurseld afurðalán, sem
fylgja föstum reglum. Að
þeim lánum frátöldum var
útlánaaukningin i góðu
samræmi við það útlána-
markmið, sem sett hafði
verið.
Útlánaaukning varð mun
meiritil sjávarútvegs en til
annarra atvinnugreina.
Nam hún 6.200 millj, kr.,
eða helmingi allrar útlána-
aukningar bankans. Var
meginhluti þessarar upp-
hæðar afurðalán, eða 5.300
millj. kr. Mikil aukning
varð einnig i lánum til
landbúnaðar, 2.500 millj.
kr., allt afúrðalán. Saman-
lagt jukust útlán til
sjávarútvegs og land-
búnaðar um 64%, en útlán
til allra annarra þarfa um
25%. Nam aukning útlána
til annarra atvinnugreina
en sjávarútvegs og land-
búnaðarum 3.000 millj. kr.,
en aukning útlána til ein-
staklinga 1.100 millj. kr.
Vegna mikillar
aukningar vaxtaaukainn-
lána jókst vaxtabyrði
bankans mjög. Var þvi
leitast við að auka vaxta-
aukaútlán, og jukust þau
meira en aðrar tegundir
útlána. Námu þau samt
sem áður ekki meiru en
38% vaxtaaukainnlána i
árslo k.
Bætt lausafjár-
staða
Lausafjárstaða bankans
styrktist verulega á árinu.
Var hún 1.571 millj. kr. i
ársbyrjun. Batnaði hún
verulega fyrri hluta ársins
vegna mikillar innlána-
aukningar og náði hámarki
4.700 millj. kr. þann 22.
júni. Samfara lækkun inn-
lána fór lausafjárstaðan
siðan hraðversnandi fram i
október oghafðiþá versnað
um rúmlega 5.000 millj.
kr., þrátt fyrir aðhald i út-
lánum. Þegar innlán jukust
aftur, batnaði lausafjár-
staðan og var orðin jákvæð
um 2.806 millj. kr. i árslok.
Reynsla undanfarinna ára,
og ekki sist ársins 1977,
sýnir ljóslega hversu
nauðsynlegt er að lausa-
fjárstaða sé öflug til þess
að unnt sé að verjast
skyndilegum áföllum.
Afkoma bankans var
svipuð og i fyrra og
undanfarin tvö ár. Nettó-
hagnaður nam 265 millj-
ónum og er þá búið að
draga frá afskriftir og 95
milljónir sem lagðar voru
til hliðar til þess að mæta
hugsanlegum afskriftum
útlána siðar. Nettó-
hagnaður ársins á undan
var 220 milljónir.
Eigið fé bankans jókst
um 632 milljónir króna á
árinu, en sú aukning svarar
til nettóhagnaöar og vaxta
sem reiknaðir voru af eigin
fé. Aukningin árið 1976 nam
499 milljónum.
Eigið fé
Eigið fé bankans nam i
árslok 2.875 milljónum
króna. Þrátt fyrir verulega
aukningu i krónutölu hefur
eigið fé farið rýrnandi
þegar tekið er tillit til
hækkunar verðlags. Segir i
frétt frá Landsbankanum
að miklu skipti að eigið fé
bankans aukist á næstu
árum.
A þessu ári verður stefnt
að þvi að útlán aukist ekki
meira en rúmlega 30% og
að vaxtaaukalán aukist
meira en önnur útlán.
—SG
Reikningar Landsbankans bera það með sér, að nýliðiö
ár var bankanum hagstætt, en miklu er nú talið skipta að
eigið fé bankans aukist á næstu árum.
sterkog stílhrein
stálhúsgögn
framleióum húsgögn fyrir
heimili,vinnustaöi,veitingahús, skóla o.fl. o.fl.
neó fjölbreyttu áklœói
nýkomió mikió úrval
l isuhist.ii'iii II III >11 >
i Bevkjavik: liringbiaut 121, simi lUtiOii
sol.o-ili st>o(i\
Kirkjusantli siini lláOOá