Vísir - 17.03.1978, Blaðsíða 3
Sigurjón ólafsson, myndhöggvari, viö hliðina á Kröflu.
Vísismynd JA.
VISIR Föstudagur 17.
mars 1978
Krafla komin
í Bogasalinn
„Krafla” verður til sýnis i
Bogasal Þjóðminjasafnsins
fram yfir páska.
Það er að visu ekki hin eig-
inlega Krafla, heldur listaverk
eftir Sigurjón Ólafsson, mynd-
höggvara.
„Ég kalla þetta verk Kröflu
af þvi að það er gufulaust”,
sagði listamaðurinn við blaða-
menn i gær.
Þeir Sigurjón og Þorvaldur
Skúlason verða samán með
sýningu þessa, sem hefst á
morgun, laugardag, og stend-
ur til 28. mars næstkomandi.
Sýningin verður opin dag-
lega frá kl. 14-19 þessa daga.
Ekki verður um sérstaka opn-
un sýningarinnar að ræða, að
sögn Sigurjóns, heldur er öll-
um boðið að skoða sýninguna,
og er aðgangur ókeypis.
300 gerðir af styttum
handskorinn og litaður kristall
gler-og onyxvörur
Fallegt og vandað
vöruval til:
fermingargjafa
brúðkaupsgjafa
afmœlisgjafa og
annarra tœkifœrisgjafa
ILliK-
liHISTlI.I
Laugavegi 15 sími 14320
> ------
3
Kaupmenn i hart gegn Verðlagsnefnd:
Kœra lœkkun
ólogningar!
Samtök kaupmanna hafa kært
Verðlagsnefnd fyrir meint brot
á lögum um verðlagsmál.
Krefjast þau þess, að siðasta til-
kynning Verðlagsnefndar um
lækkun verslunarálagningar
verði dæmd dauð eða ómerk.
„Þar sem samtökin hafameð
þessum hætti véfengt lagagildi
áðurnefndrar tilkynningar
Verðlagsnefndar, geta þau ekki
fyrr en dómur er fallinn, sagt til
um hvort seljendur skuli halda
áfram að verðleggja vörur i
samraémi við eldri tilkynningu
um hámarksálagningu nr. 33 frá
24. nóv. 1977, eða fara eftir hin-
um nýju véfengdu ákvæðum,”
segir i frétt frá Verslunarráði,
Kaupmannasamtökunum og
Félagi Isl. stórkauprhanna.
„Þess er vænst að verðlags-
dómur taki ekki fyrir mál er
verðlagsstjóri kann hugsanlega
að vísa þangað vegna meintra
brota á hinum véfengdu álagn-
ingarákvæðum, fyrr en dæmt
hefur verið hvort þau séu gild
eða ógild. Hvenær dómur fellur
er ekkert hægt að fullyrða um
en reyni verðlagsfyirvöld að
knýja vöruseljendur til að lækka
álagningu með hótunum um
málshöfðun og tilvisun i hina
meintu ólöglegu tilkynningu -
Verðlagsnefndar, óskast það til-
kynnt Verslunarráði Islands,
Kaupmannasamtökum Islands
eða Félagi islenskra stórkaup-
manna,” segir ennfremur.
—esj.
Myndasagnabók um Siggu Viggu
Sá frægi og vinsæli
kvenmaður Sigga Vigga
er nú komin á bókamark-
að í máli og myndum
undir heitinu Sigga Vigga
og tilveran. Er þessi við-
burður ósvikið ánægju-
efni hinum f jölmörgu að-
dáendum Siggu Viggu
sem hafa fylgst með
henni gegnum árin.
Þetta er i fyrsta sinn sem út
kemur hérlendis myndasagna-
bók með islenskum persónum
eftir islenskan höfund. Gisli J.
Astþórsson er löngu þekktur
fyrir ritstörf sin og teikningar.
Skopskyn GJA nýtur sin vel i
bókinni um Siggu Viggu en þar
má oft finna lúmskan brodd eins
og höfundi er lagið.
Sögurnar um Siggu Viggu eru
að auki stundbm samfelld-
ar.samanber prófkjörsraunir
Gvendar forstjóra i bókinni,
sem falla einkar vel inn i við-
burði dagsins i dag.
Bókaútgáfan BROS sem gefur
bókina út hefur vandað til útgáf-
unnar en stillt verðinu mjög i
hóf en bókin kostar aðeins 1.200
krónur eða svipað og eitt glas á
barnum.
I frétt frá útgáfunni segir að
ef árangur þessarar nýjungar i
islenskri bókaútgáfu reynist já-
kvæður megi vænta fleiri bóka
um Siggu Viggu og tilveruna.
A bakhlið bókarinnar er birt-
ur kafli úr viðtali við Gisla J.
Astþórsson i Heigarblaði Visis
fyrir nokkru.
—SG.
SÍKj.:! • .
HEITIR LJÚFFENGIR
DRYKKIR ALLAN
SÓL ARHRIN GINN
Hægt er að velja milli 20 tegunda drykkja, en vélina getur þú fengið með
frá 2 upp í 6 tegundir i einu, svo sem kafii, te, kakó og súpu, og það tekur
ekki meira en 5 sekúndur að laga drykkinn.
Þú setur bolla undir þá tegund drykkjar sem þú óskar þér. Tekur í
handfangið og þá rennur efnið í bollann, síðan seturðu bollann undir
kranann og færð heitt vatn saman við. Þegar þú ert búinn að hræra
í bollanum ertu kominn með alveg sérstaklega bragðgóðann heitann drykk.
Þetta er þrifalegt, einfalt og ódýrt, ekkert í'er til spillis, enginn uppþvottur,
og drvkkirnir eru alltaf nýjir og ferskir.
Fáanlegar eru margar stærðir af vélum, og þær eru jafnvel ekki dýrari
en venjuleg kaffivél, og hægt að nota allstaðar, sem óskað er
heitra ljúffengra drykkja.
Hringið í síma 16463 og fáið sölumann í heimsókn, hann mun gefa ykkur
að smakka og allar nánari upplýsingar.
KOMIST Á BRAGÐIÐ OG YKKUR MUN VEL LÍKA
SÍMI 16463