Vísir - 17.03.1978, Side 8

Vísir - 17.03.1978, Side 8
8 Það hefur ekki gerst enn en Ryan O'Neal kveðst svo sem alveg eins eiga von á þvi f Ijót- lega að fólki komi til hans og spyrji: ,,Eruð þér ekki faðir Tatum?" En enn er hann vel þekktur og ekki nema 36ára gamall. Feðginin léku saman i Paper Moon og Nickelodeon og Ryan hugleiðir það nú fyrir alvöru að þau leiki saman i nýrri mynd. Hann hefur jafnvel veriðaðhugsa um að fá soninn Griff in sem nú er 13 ára gamall út i leik- listina líka. Hann sagði reyndar fáeinar setningar i myndinni Nickelodeon. ,,Honum tókst að vera blátt áfram og eðlilegur rétt eins og Tatum sagði Ryan um frammi- stöðuna. Þau tvö búa með föður sinum. Það hefur Tatum gert siðustu fimm árin en Griffin skemur. Ryan á reyndar annan son með seinni konu sinni Leigh Taylor-Young. Sá er 10 ára og heitir Patrick sem er raunverulegt nafn föðurins. Á mynd- inni fylgjast Tatum og Griffin með upptökum á The Driver. SKUGGAMYNDIR AF BÍTLUNUM Það verða aðeins skuggamyndir þeirra fjögurra Paul, John, George og Ringo sem koma til með að sjást i Bítlamyndinni I Want To Hold Your Hand. Ráðgjafi við gerð myndarinnar er enginn annar en Steven Spiel- aerg (Jaws og Close Encounters Of The Third Kind). Myndin fjallar um Bitlaæðið sem greip um sig og seg- r aðallega frá sex ame- ískum táningum. Leikarar eru flestir al- veg óþekktir. Einn af táningunum er þó úr Newman-f jölskyldunni. Það er Susan Newman, sem er dóttir Paul New- mans og fyrstu konu hans. En framleiðendur eru vissir um að myndin muni samt sem áður verða örugg i sessi ekki sist þar sem hún fjallar á óbeinan hátt um Bitl- ana. Á myndinni eru Susan og faðir hennar Paul en hann kom i heimsókn og var viðstaddur upptökur einn dag. Umsjón: Edda Andrésdóttir KELLER ( NÝRRI MYND Sú sem strunsar þarna áfram með sól- gleraugu og Óskarinn i annarri hendinni er er leikkonan Marthe Kell- er. Hún er þarna í hlut- verki sínu í kvikmynd- inni Fedora en sú mynd er glæný og stjórnað af Billy Wilder. Keller fer þar með hlutverk leik- konu sem hreppir Öskarsverðlaunin. Þvi var annars spáð að KelI: ersjálf fengi útnefningu til Óskarsverðlaunanna að þessu sinni fyrir leik sinn i myndinni Boddy Deerfield þar sem mót- leikari hennar er sam- býlismaður hennar Al Pacino. Annars er þvi spáð að Fedora muni verða hennar stærsti sigur. í KVIKMYNDIRNAR VILL FÁ SONINN Föstudagur 17. mars 1978 VÍSIR

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.