Vísir - 29.03.1978, Síða 2
Heiðar Hagnarsson. matsveinn:
Nei, og ég veit ekki af hverju —
hef ekki athugað þetta.
Helga Sigþórsdóttir, húsmóðir:
Nei. Fyrst og fremst vegna þess
að samtökin hafa ekki auglýst sig
nægjanlega vel.
Jón Benediktsson, nemandi,
Akranesi: Nei. Ég veit ekki til ■
þess að starfandi sé nein deild frá
Neytendasamtökunum á Akra-
nesi. Annars stafar það mest af ■
framtaksleysi að maður er ekki i |
samtökunum.
ISLENSKUM SOSIALISMA
#/
Þáttaskil eru framundan hjá
Alþýðubandalaginu, og munu
þau koina fram við ákvörðun
um framboðslista fiokksins i
Heykjavik. Sá inaður, sem
breytti Alþýðubandalaginu i
áttina til sósial-lýðræðisstefnu
og breikkaði grundvöll hans
nteð þvi að boða honum nýja til-
vist á grundvelli „islensks
sósialisma" hefur verið beittur
ofriki til að koma i veg fyrir að
hann taki sæti sem efsti maður á
lista flokksins við þingkosning-
arnar i sumar. Það er sem sagt
ákveðið að Magnús Kjartansson
hverfi af þingi og hafa skrif
hans að undanförnu bent til þess
að hann eigi orðib fátt eitt sam-
eiginlegt með fyrri samherjum i
Alþýðuba nda laginu. Unir
Magnús helst við það þessa dag-
ana að likja fyrri samherjum
við „Prúðuleikarana” eða þá að
hann bregður á þaö ráð að
benda ritstjórum Þjóðviljans á
að lita i spegil vilji þeir sjá þá
skepnu jarðarinnar sem einna
þynnst he'fur verið talin til
höfuðsins.
Látið er heita svo að Magnús
verði að vikja af þingi af heilsu-
farsástæðum. Það er einber
fyrirsláttur, enda ekki vitaö til,
þótt margt sé skritið á þingi, aö
þar tali menn og greiöi atkvæði
meö fótunum. Sönnu er nær,
að nú sé i aðsigi breyting innan
Alþýðubandalagsins, sem sé
meira að skapi þeirra 25 hundr-
aðshluta i flokknum, sem enn
veröa aö sorterast undir Stalin-
ista. Þótt breytingar Magnúsar
á flokknum hafi aflað honum
meira fjöldafylgis en áður, sætti
Magnús ætið gagnrýni i upp-
byggingarstarfi sinu, og i ráð-
Magnús Kjartansson.
herratið hans mátti raunar tala
um klofning inilli fvlgismanna
lians og Stalinistanna, sem
héldu áfram að bryðja grjót
þokukenndra by ltingarhug-
inynda, sem voru alveg i and-
stöðu við þjóðernislegar hug-
myndir Magnúsar um uppbygg-
ingu i landinu. Þetla kom eink-
um i ljós hvað snerti járnblendi-
verksmiðjuna, þegar æstustu
andstæðingar Magnúsar ruku til
og byrjuðu að sá fræi, (tún-
vingli) i þau sár, sem þeir töldu
að Magnús hefði veitt lands-
spildu á Hvalfjarðarströnd.
Nú standa leikar þannig, að
þrjú efstu sæti Alþýöubanda-
lagslistans i Reykjavik verða
skipuð Svavari Gestssyni, rit-
stjóra, Eðvarð Sigurðssyni,
verkalýðsforingja, og Svövu
Jakobsdóttur, rithöfundi. Talið
er að Olafur Hagnar Grimsson,
prófessor, muni skipa fjórða
Svavar Gestsson.
sætið. Er þá lokið þrjátiu ára af-
skiptum Magnúsar Kjartans-
sonar af Álþýðubandalaginu.
Hitt skal látið ósagt hvort hann
á eftir aö beita penna sinum til
framdráttar „islenskum sósial-
isma” i framtiðinni. Það kemur
á daginn hvort og með hvaða
hætti hann tekur upp þá iöju
utan dagskrár. En ljóst er af
framanskráðu, að hugmyndir
Magnúsar um stóran og róttæk-
an jafnaðarmannafIqkk eru
f’ - ir bi að sinni.
A sinum tiina setti Alþýðu-
flokksforustan fótinn fvrir það
að Kjartan ólafsson, faðir
Magnúsar yrði forsætisráð-
lierra. Alla tið siðan mun
Magnús liafa liugsað þeirri for-
ustu þegjandi þörfina. Að þvi
leyti þótti Stalinistunum hann
hagkvæmur sem ritstjóri. Hins
vegar er sýnilegt. að Magnúsi
hefur ekki leyfst að feta i fótspor
LOKIÐ
Ólafur Ragnar Grimsson.
föður sins og annarra krata frá
átakainiklum timum milli-
striðsáranna. Sósialismi rót-
tækrar jafnaðarstefnu hefur
aldrei verið Stalinistunum að
skapi. Annars hafa þeir yfirleitt
sýnt litiö frumkvæði i stjórn-
málum, og Alþýðubandalagið er
næsta aumkunarvei t i núverandi
stjórnarandstöðu. Hvergi bólar
á föstum undirstöðum, en i stað-
inn haldið uppi einskonar
skæruhernaði frá degi til dags,
og allt sem horfir til upplausnar
stutt eítir megni — jafnvel ólæti
i krakkastóði hafin til skýjanna.
Slikt flokkast varla undir ,,is-
lenskan sósialisma” Magnúsar
Kjartanssonar, sem hefur nú
orðið fyrir barðinu á eina frum-
kvæðinu, sem flokkur hans hef-
ur sýnt i áraraðir — þ.e. þvi
frumkvæði að ryðja honum af
lista flokksins.
Svarthöfði
msiK
spyr
í Reykjavík }
Ert þú í Neytendasamtök-
unum?
Miðvikudagur 29. mars 1978 VISIR
Valgeröur Magnúsdóttir, hús-
móðir: Nei. Það stafar sjálfsagt
af athugunarleysi. Slik samtök
koma áreiðanlega að gagni fyrir
neytendur.
Geir Kristjánsson, bakari: Nei,
ég hef bara-aldrei hugsað út i það.
Það er ekki vafi á þvi að þau eru
til gagns fyrir þá sem þurfa á
þeim að halda.
„HUN FEKK AÐ SJA
INN ( LÍKAMA MINN"
— rœtt við einn sjúklinganna sem leituðu andalœkninga ó Filipseyjum
Það voru skiptar skoðan-
ir hjá íslendingunum sem
heimsóttu /,andaskurð-
lækninn" á Filipseyjum
um það hvað þeir hefðu
haft út úr ferðinni. Sumir
töldu þetta ekkert annað en
ómerkileg svik og pretti,
nánast hreina fjárplógs-
starfsemi. Þeir töldu sig
sist betri til heilsunnar
eftir heimkomuna.
Aðrir voru sannfærðir um lækn-
ingamátt Filipseyingsins Anton-
ios Agpaoas, sem hafði hópinn til
meðferðar. Þeir sögðu að hann
ynni kraftaverk og lögðu þau
meira að segja að jöfnu við lækn-
ingar Krists.
Svo virðist sem Agpaoa þyki
það sjálfum ekki svo fjarlæg
samliking, þvi i iburðarmikilli og
litskrúðugri kapellu hans eru
málverk hlið við hlið af þeim
Kristi og Agpaoa að gera krafta-
verk.
Ekki hefur Agpaoa þó sagt að
hann sé Kristur endurborinn
heldur sé skýringin á mætti hans
sú að hann eigi sér guðlegan
verndara og aðstoðarmann, eða
kannske öllu heldur stjórnanda,
sem veiti Sér lækningamátt.
Hann hefur sagt frá ýmsum
Aldis Jónasdóttir. Til hægri er peningur sem hún fékk til að leggja á
verkjabletti. Hann á að nema burt verkinn. Visismynd: BP.
furðulegum fyrirbærum varðandi
sjálfan sig, meðal annars að hann
hafi um tima getað breytt blóm-
um i lækningavökva með augna-
ráðinu einu saman.
Sá máttur var frá honum tekinn
þegar hann „misnotaði” augu sin
til að finna gull, en hann er sann-
færður um að honum verði fyrir-
gefið og að hann fái máttinn
aftur. Þá kveðsthann munu getað
læknað vissar tegundir sjúkdóma
með augnaráðinu einu.
Það verða þó aðeins sjúkdómar
sem sýnilegir eru útvortis. Inn-
vortis mein verður hann að lækna
með þvi að „skera upp’ með
höndunum.
Sá Jesús Krist.
Einn Islendinganna sem eru
sannfærðir um að Agpaoa hafi
guðlegan lækningamátt er Aldis
Jónasdóttir, en hún var i hópnum
sem fór til Filipseyja á dögunum.
Yfirskilvitleg fyrirbæri eru Al-
disi engin nýjung. Hún er i Sálar-
rannsóknafélaginu og hefur lesið
mikið um þá grein. Hún kveðst oft
hafa séð fólk frá öðrum heimi og
merkilegasta reynsla hennar i þvi
var árið 1940 þegar hún vann á
Landakoti. Þá sá hún Jesús Krist,
baðaðan skæru ljósi.
„Ég get ekki sagt annað en það
sem ég hef sjálf reynt og séð, ég
get ekkert sagt um reynslu eða
skoðanir annarra”, sagði Aldis
þegar við sóttum hana heim.
„Ég er sannfærð um að Tony er
raunverulegur kraftaverkalækn-
ir. Það sem ég upplifði var ekkert
i likingu við það sem sýnt var i
breska sjónvarpsþættinum um
páskana. Þar voru á ferðinni
loddarar og svikarar sem eru að
reyna að gera sér hæfileika Tonys
að féþúfu með þvi að herma eftir
honum.”