Vísir - 29.03.1978, Blaðsíða 7

Vísir - 29.03.1978, Blaðsíða 7
vism Miövikudagur 29. mars 1978 : Guðmundur Pétursson D Rœningjar Moros láta ekki á sér Fimmtán liðsmenn úr hryðjuverkasam- tökunum ,,Rauðu her- deildinni” koma fyrir rétt i Torino í dag, en einhverstaðar i feium hafa félagar þeirra staðið fyrir sinum „einkaréttarhöldum” yfir Aldo Moro, fyrrum forsætisráðherra ítaliu, sem rænt var fyrir nær tveim vikum. Réttarhöldin yfir Renato Curcio og félögum hans hefjast að nýju i dag eftir langt páska- hlé, en mikill viðbiinaður er hafður við réttarhöldin til þess að gæta öryggis fanga og dóm- ara. Fyrir páska létu ræningjar Aldos Moros til sin heyra og til- kynntu þá, að þeir ætluðu að draga Moro fyrir „dómstól al- krtela þýðunnar”. Aldo Moro, sem var h'klegur til þess að verða næsti forseti ítaliu, var kallaður „pólitiskur guðfaðir”. Sögðust ræningjarnir hafa hann til yfir- heyrslu um „glæpi hans gegn öreigunum”. Um 25 þúsund manna lið lög- reglunnar hefur leitað Moros og ræningja hans, en án árangurs. Nýtur lögreglan liðstyrks frá hernum og hefur einnig fengiö sérfræðinga annarra landa i viðureign sinni við hryðju- verkamenn til þess að koma og leggja sér lið. Hin 37 ára gamli leiðtogi „Rauðu herdeildarinnar”, Renato Curcio, og félagar hans eiga yfir höfði sér allt að 20 ara fangelsi fýrir að hafa stofnað vopnaðan flokk manna til þess að berjast gegn rikinu. Réttar- höldin yfir þeim hafa dregist á langinn og nú að siðustu fyrir deilur um rétt þeirra til þess að annast málsvörn sina sjálfir. Dómararnir syn juðu þeim um heimild til þessað fly tja mál sin sjálfir, en lögfræðingar, verj- endur þeirra, styðja þá i þeirri kröfu. Hefur komið til tals, að Herinn hefur tekið þátt f leitinni með Itölsku lögreglunni að Aldo Moro og ræningjum hans. Renato Curcio, leiðtogi Rauðu herdeiidarinnar, á bak við lás og siá. lögíræðingarnir neiti að halda áfram málsvörninni til þess að neyðaréttinntilannars tveggja, að skipa nýja verjendur eða leyfa sakborningunum að flytja málið sjálfir. Það gæti leitt til enn frekari seinkunar. Kveiktu í flug- vallarhótelinu Róttækir andstæöingar hins nýja alþjóöaflugvali- ar í Tókíó réðust i morgun á f lugvallarhótel, kveiktu í því með bensínsprengjum og brutu rúður og hurðir með járnkörlum. Lögreglan i Tókió segir að þessi árásarhópur hafi skömmu fyrir dögun ráðist inn i byggingu Nikko Narita-hótelsins sem taka átti i notkun 1. april, og varpað tuttugu „mólótoff-kokkteilum ” inn i hótelið. Árásarmennirnir voru allir með hvita hjálma eins og andófsmenn i Japan gjarnan bera i götuóeirðum til verndar gegn kylfum lögreglunnar. Um tuttugu manns dvöldu á hótelinu sem þjóna á farþegum á leið um hinn nýja flugvöll. Engan sakaði og tókst starfsfólkinu að slökkva jafnharðan eldinn, sem kviknaði út frá ikveikju- sprengjunum. Árásarliðið slapp. Sérfræðingar lögreglunnar hafa nú lagst undir feld til þess að ihuga leiðir sem best gætu tryggt öryggi hins nýja flugvallar sem er um 60 km norðaustur af Tókió. Hefur komið til tals að láta lög- regluna á flugvellinum bera skot- vopn en hingað til hefur hún látið sér nægja kylfur og táragas i viðureigninni við andstæðinga flugvallarins. Begin í bréfa- skríftum til Sadats forseta Menachem Begin for- sætisráðherra israels hef- ur neitað i bréfi til Sadats Egyptalandsforseta að breyta stefnu stjórnar sinnar gagnvart vestur- bakka Jórdanar og Gaza- svæðinu, eftir því sem Kairó-blaðið „AUAhram" skrifar i morgun. ~ I forsiðufrétt segir þetta hálf- opinbera málgagn egypsku stjórnarinnar, að Begin hafi i bréfi til Sadats lagt áherslu á, að hann héldi fast við fyrri stefnu sina varðandi friðarumleitanir. — Segir blaðið, að Begin hafi enn- fremur neitað að gera Gyðinga, sem numið hafa land á hernumdu svæðunum, afturreka. 1 fréttum frá Jerúsalem, m.a. israelska útvarpinu, segir að Begin hafi sent Sadat forseta bréf og lagt i þvi til, að samningavið- ræður verði hafnar aftur milli Egyptalands og Israels. En þær lögöustniður, þegar Sadat kallaði samninganefndir sinar heim frá Jerúsalem. 1 morgun fréttist i Jerúsalem, að vænta mætti i dag nýrrar yfir- lýsingar frá Begin forsætisráð- herra um stefnu stjórnarinnar, einkum varðandi horfur á þvi að stjórn hans muni reiðubúin til að skila vesturbakka árinnar Jór- danar, eins og Yadin aðstoðarfor- sætisráðherra hafði látið á sér skilja við flokksbræður sina. Arafat samþykkir Yasser Arafat, leiðtogi skæruliða Palestinu- araba, féllst á það i gær á fundinum með Emanu- el Erskine, hershöfðingja, i Beirút, að virða áskorun Kurts Waídheims, framkvæmdastjóra, um vopnahlé i Suður-Libanon. Reyna oð svipta Spinks hems- meislaratiHinum Leon Spinks, sem hreppti heimsmeistara- titilinn af Muhammed Ali i siðasta mánuði, hefur tapað fyrstu lotunni i viðureign sinni við Al- heimshnefaleikaráðið, sem v i 11 svipta hann titlinum. Hafin eru málaferli vegna þeirrar ákvörðunar ráðsins (WBC ) að taka titilinn af Spinks og lýsa Ken Norton, landa hans, heimsmeistara. WBC tók þessa ákvörðun, þegar Spinks neitaði að keppa við Norton mánuði eftir einvigið við Ali. Spinks og Ali höfðu kom- ið sér saman um að keppa aftur um titilinn siðar á árinu, og hef- ur Alheimshnefaleikasamband- ið lagt blessun sina á þá ráða- gerðenda litur sambandið enn á Spinks sem heimsmeistara. Spinks á sigurstundu. Ættarvíg í Namibíu Lögreglan i Windhoek i Suðvestur-Afríku (Nami- bíu) heldur uppi víðtækri leit að morðingjum Clem- ens Kapuuo, ættarhöfð- ingja og leiðtoga DTA- flokksins, en hann var skotinn til bana á annan í páskum fyrir utan verslun sína i borginni. Menn kviða þvi, að morðið muni magna ættardeilur, sem þegar hafa kostað fjórtán manns- lií. Hefur neyrst aö menn af Her- ero-ættflokki Kapuuos streymi til Windhoek og telur lögreglan að erfitt kunni að reynast að hafa hemil á þeim. Lögregluna grunar að þjóð- ernishreyfing SWAPO hafi staðið að morðinu, en talsmenn þessara skæruliðasamtaka bera á móti þvi. Það eru einkum menn af Ovamboættbálki, sem styðja SWAPO, og þykir nú hætta á þvi að slái i brýnu milli Herero og Ovambo. — Fjórtán létu lifið i átökum þessara ættbálka fyrr i þessum mánuöi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.