Vísir


Vísir - 29.03.1978, Qupperneq 9

Vísir - 29.03.1978, Qupperneq 9
9 Kvíkmyndahúsið Regnboginn við Hverfisgötu. Stattu þig Regnbogi! Bióáhugamaður skrif- ar: Nú hefur kvikmyndahúsið Regnboginn starfað i um þrjá mánuði eins og flestum mun kunnugt. Forráðamenn þess hafa bryddað uppá nýungum, sem þeim einum er fært vegna þess hvernig bióinu er skipt niður i sali, — endursýnt gamlar og góðar myndir, jafnframt þvi að sýna nýjar og svo framvegis. En þeir hafa einnig bryddað upp á annarskonar nýungum, og öllu minna skemmtilegum. A sunnudaginn ætlaði ég að sjá Papillon, ágæta mynd sem ég hafði séð áður. Hún átti að hef jast klukkan 5.35 siðdegis. Á nokkurra skýringa hófst myndin klukkan 6.05. Ég var eins og sjálfsagt margir aðrir sýningargestir, dálitið timabund- inn og ákvað þvi að sjá myndina daginneftir. Þáhófst hún á svo til réttum tima. En siðan kom i ljós að eintakið sem Regnboginn hefur til sýninga er eldgamalt og rispað enda slitnaði filman hvað eftir annað meðan á sýningu stóð. Ég hef áður gengið óánægður út úr Regnboganum, ekki fyrir það hve myndin væri léleg heldur fyrir það hvernig búið er að áhorfendum. Stólarnir sjálfir eru ágætir en loftræsting virðist ekki fyrir hendi, auk þess sem myndirnar eru gjarnar á að hreyfast dálitið til á tjaldinu. Þetta og hvað þeim hefur gengið illa að standa við tima- setninguna hef ég viljað lita á sem byrjunarörðugleika hingað til. En eftir þrjá mánuði ættu mennirnir að fara að kunna sitt fag. Ef ekki þá gæti verið orðið of seint fyrir þá að komast að þvi að fólk lætur ekki bjóða sér allt. Vakning í Grensási Einar Ingvi Magnússon skrifar: Nú læt ég ekki lengur hjá liða að hripa niður nokkrar línur og vekja athygli lesenda á hinu mikla kristilega starfi sem fram fer á fimmtudagskvöldum i safnaðarheimili Grensássókn- ar. Fyrst af öllu vil ég láta þess getið að samkomur þessar eru öllum opnar og vil ég hvetja fólk til að koma — þótt ekki væri til annars en forvitnast. Þarna fer fram uppbyggilegt starf og mjög svo frjálslegt. Aðalástæðan fyrir þessu bréf- korni er þó aðallega sú að koma á framfæri hrifningu minni yfir þvi hve fólkið á þessum sam- komum er ófeimið að láta i ljós fögnuð sinn. Fögnuð yfir návist Guðs. Það lofsyngur Drottinn Jahve og Jesú með dýrðlegum söng og hefur upp hendur sina mót Honum, svo engu er likara en himnanna riki hafi tekið sal- inn með öllum til sin. En hvað þýðir það fyrir mig að reyna að lýsa þvi sem fram fer i Grensási, þegar mig skort- ir orð til þess. Þarna er á ferðinni mikil vakning. Eftir að hafa kynnst henni veit maður að Guð er nálægur — miklu nær en nokkur heldur. Hann segir sjálfur: „...Snúið yður tilminogég mun snúa mér til yðar...” (Malaki 3:7). Þessi orð hafa orðið að veruleika i Grensási. Sjón er sögu rikari og þvi vil ég hvetja fólk til að kynna sér þessa vakningu. Ég vil að lok- um bera fram hjartanlegar þakkir til séra Halldórs Gröndal og kristniboðshópsins „Ungt fólk með hlutverk” fyrir guð- dómlegt og lifandi starf. GÓDVAKA Siöur siödegisbiaðanna hafa unum vegna sjónvarpsdag- verið sneisafullar af umkvört- skrár. En missum ekkisjónar af þvi sem gott er i bannsettri dag- skránni. Ég man t.d. ekki eftir skemmtilegri umfjöllun um is- lenskar listgreinar en i siðustu „Vöku”, — vel samsett, eðlileg, fræðandi og vekjandi. Hafi þeir sem að þættinum stóðu bestu þakkir fyrir verk sitt. Benóný, Háteigsvegi. Reisugilli! Áfangi sem allir húsbyggjendur fagna. Ekki síst þeir sem skipta viö Rafafl og njóta 10% afsláttar af raflagnaefninu sem unniö er úr. Njótiö góöra viöskipta viö stærstu rafverktaka i Reykjavik. 'RAFAFL Skólavöröustig 19. Reykjavik Simar 21700 2 8022 Viljum bæta við mönnum á hjólbarðaverkstæði, helst vönum. Upplýs- ingar á staðnum, ekki I sima. Sólning hf. Ritarar óskast Opinber stofnun óskar að ráða vana rit- ara, annan i afleysingar 4 til 5 mánuði. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist blaðinu fyrir 1. april n.k. merkt ,,1010”. ÓKEYPIS MYNDAPJÓNUSTA opið til kl. 7 Opið i hádeginu og d laugardögum kl. 9-6 BÍLASALAN SPYRNAN VITATORGI milli Hverfisgötu og Lindargötu Simar: 29330 og 29331 Toyota Celica árg. 76 Ekinn 46 þús. km. þar af 3 þús. á is- landi. Rauður með svörtum vinyl topp. Útvarp og segulband. Powerbremsur. 5 gíra. Verð kr. 2.6 milli. Mustang árg. 70 8 cyl 351 cub. Cleveland. Sjálfskiptur, vökvastýri og bremsur. Blár, gott lakk. Útvarp og segulband. Verð kr. 1.800 þús. BMW 1600 árg. '69. Hvítur. Útvarp. Góður bíll. Verð kr. 850 þús. Mercury Montego árg. 74 8 cyl 302 cub. Sjálfskiptur. sanseraður. Gott lakk. Power stýri og bremsur. Broham innrétting. Verð kr. 2,6 millj. Skipti á ódýrari. t.d. japönskum. Escort árg. 73, 4ra dyra. Ekinn 60 þús. Blár. Mjög gott lakk. Vetrardekk. Útvarp. Viljir þú sem í klassa og stil, kvenna njóta hylli. Ekur þú i þessum bíl, landshorna á milli.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.