Vísir - 29.03.1978, Page 23
víöm Miðvikudagur 29. mars 1978
23
Nýtt áhugamanna-
félag harmoniku-
leikara stofnað
Félag islenskra áhugamanna
um harmonikuleik var nýlega
stofnað i Reykjavik. Rúmlega
60 manns hafa þegar skráð sig i
félagið.
Aðal markmið félagsins er að
safna saman sem flestum
harmonikuáhugamönnum
innan sinna vébanda og efna til
kynningar félagsmanna inn-
byrðis, að þvi er segir i frétt frá
félaginu. Þá er ætiunin að stuðla
að aukinni kynningu á
hermonikutönlist um land allt.
Einnig hefur komið til umræðu
viðhorf yfirvalda menntamála
gagnvart harmonikukennslu i
tónlistarskólum landsins. Auk
Það varlif og fjör i Kökuhúsinu við Austurvöll á mánudaginn I sið-
ustu viku en þá þöndu félagsmenn nikkurnar sinar um leið og þeir
kynntu blaðamönnum starfsemi sina.
Nokkrir félagar úr Félagi Islenskra áhugamanna um harmonikuleik meðnikkurnar sínar.
þess er stefnt að rekstri nótna-
og plötusafns til afnota fyrir fé-
lagsmenn.
Félagsmenn hittast mánaðar-
lega og spila saman. Ein
skemmtun hefur verið haldin til
styrktar félaginu. Ætlunin er að
skapa félaginu fjárhagsgrund-
völl með þeim hætti i fram-
tiðinni. 1 stjórn félagsins eiga
sæti: Bjarni Marteinsson for-
maður, Guðmundur Gúðmunds-
son, Elsa Kristjánsdóttir,
Guðmar Hauksson og Karl
Jónatansson.
Harmonikan er talin eiga
uppruna sinn að rekja til kin-
versks hljóðfæris, cheng, sem
þekkt er frá þvi um 4000 fyrir
Krists burð. Giskað er á að hún
hafi borist til Evrópu með land-
könnuðinum Vasco da Gama
rétt fyrir árið 1500. VinarbUinn
Demian finnur siðan upp hljóð-
færi sem hann nefndi ,,Akk
odeon” árið 1829. Hins vegar
segjast Rússar hafa smiðað
slikt hljóðfæri miklu fyrr eða á
siðustu tugum 18. aldar og köil-
uðu ,,Garmonica”. Þessi hljóð-
færi hafa lfkst konsertinu sem
hér á landi er óþekkt nema hvað
stundum er leikið á slikt hljóð-
færi i Hjálpræðishernum.
Fyrst er vitað um pianónótur
á harmoniku er Frakkinn
Bouton i Paris smiðaði árið
1852. Atta árum siðar er vitað
um -þriggja áttunda pianó-
harmoniku i Vinarborg. Það er
hins vegar ekki fyrr en árið 1909
sem hin nUtimaiega pianó-
harmonika kemur fram á sjón-
arsviðið. HUn er kennd við
Pietro Deiro italsk-ameriskan
spilara og tónskáld. Annar
þekktur harmonikuleikari og
tónskáld Pietro Frosini lét
smiða tveggja áttunda bassa-
borð um 1930 SU þróun að vikka
tónsvið bassans hefur stöbugt
haldið áfram siðan. — KS
Mótmœla ffrum-
varpi til
iðnaðarlaga
Mjólkurfræðingar hafa varað
alvarlega við þvi að réttindi iðn-
lærðra manna verði skert eins og
gert sé ráð fyrir i frumvarpi til
iðnaðarlaga, sem nU liggur fyrir
alþingi.
1 samþykkt, sem gerð var á að-
alfundi Mjólkurfræðingafélags
Islands, er minnt á ummæli ráða-
manna um nauðsyn aukinnar
verkmenntunar og fullyrt, að með
samþykkt frumvarpsins væri
dregið verulega Ur gildi verk-
menntunar —ESJ.
Góð ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
Varahiutir
íbílvélar
Stimplar,
siífar og hringir
Pakkningar
Vélalegur
Ventlar
Ventilstýringar
Ventilgormar
Undirlyftur
Knastásar
Tímahjól og keðjur
Olíudælur
Rokkerarmar
■
I
I
■
I
■
■
I
I
ÞJÓNSSON&CO
Skeifan 17 s. 84515 — 84516
TAKTU ÁKVÖRÐUN
Ætlar þú að vera með í áskrifendagetraun Vísis ?
Akkúrat núna er rétti tíminn til að freista gæfunnar
og það aðeins með einu símtali.
*
. 1