Vísir - 07.04.1978, Blaðsíða 7
KRíFJAST UPP-
TÖKU tlGNA
GUSTRUPS
Borgardómur í Kaupmanna-
höfn hefur úrskurðað, að fimm
húseignir Mogens Glistrups
skuii gerðar upptækar, en þessi
danski skattakrossfari var sekt-
aður um 1,5 milljónir króna
(danskar) fyrr á þessu ári fyrir
skattsvik.
Eignaupptakan er rökstudd af
lagagreinum sem heimila upp-
tögu eigna manns til þess að
hafa upp i málskostnað, sektir
og bætur.
Rikissaksóknarinn krafðist
eignaupptökunnar til þess að
mæta væntanlegum kostnaði af
skattsvikamálinu, en kostnaður
af þvi nemur nú þegar orðiö
fjórum milljónum d. króna.
Málinu lauk i febrúar siðast
liðnum, þegar dómur féll loks
eftirtveggja ára málsrannsókn.
Glistrup hefur áfrýjað bæði
dómnum og eignaupptökunni.
,,Ég verð af þessu bæði maga-
sjúklingur og öreigi,” sagði
Glistrup I blaðaviðtali. Þessi
formaður Framfaraflokksins
danska, sem barist hefur gegn
útþenslu skrifstofubáknsins,
lækkun skatta og afnámi her-
skyldunnar, segir málaferlin
vera ofsóknir á hendur sér sem
stjórnmálamanni.
Glistrup sem er 51 árs gamall,
vakti á sér athygli 1971, þegar
hann i sjónvarpi gagnrýndi
skattalögin og hældist. um yfir
þvi að hafa ekki greitt neina
skatta af milljón króna (d) árs-
tekjum. — Sem lögfræðingur
annaðist Glistrup skattframtöl
fyrir fjölda einstaklinga og
fyrirtækja.
Ýmis stefnumál Glistrups og
Framfaraflokksins hafa laðað
fram bros á varir manna. Eins
og þegar Glistrup lagði til, að
spöruð væru útgjöld til land-
Mogens Glistrup á leið inn í réttarsalinn.
varna með þvi að leggja niður varnarráðuneytinu, sem segði á
herinn og setja simsvara i land- rússnesku: ,,Við gefumst upp!”
FLYTJA HERLIÐ-
IÐ ÚR LÍBANON
í NÆSTU VIKU
Israel hefur tilkynnt
Sameinuðu þjóðunum að
brottf lutningur ísraelska
herliðsins frá Libanon
muni hefjast á þriðjudag-
inn.
Tilkynningin kom fram i gær,
en þar leggur ísraelsstjórn fram
áætlun um brottflutning herliðs-
ins i tveim áföngum.
Til að byrja með mun innrásar-
liðið hörfa tvo til sjö kilómetra i
átt til landamæranna. í siðari á-
fanga, fjórum dögum siðar, mun
liðið draga sig til baka alla leið til
landamæranna.
Tilkynning þessi barst eftir að
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri, hafði skorað á Menachem
Begin forsætisráðherra tsraels aö
verða hið fyrsta við ályktun Sam-
einuðu þjóðanna nr. 425. En þaö
var i þeirri ályktun sem Samein-
uðu þjóðirnar samþykktu að
senda friöargæslulið til S-Liban-
ons og skorað var á tsrael að
kalla herliðið hið bráðasta heim.
ST HINIR
TU ÞtGNAR
matsölustaði. Þetta fólk hefur þvi
þannig séð notið ýmislegrar fyrir-
greiðslu, sem skapað hefur þvi
möguleika, sem Portúgalir höfðu
ekki sjálfir. En það hefur lika notað
sér þessa möguleika svo vel, að
traustum og gamalgrónum fyrir-
tækjum heimamanna stafar orðið
ógn af samkeppninni.
Þannig hafa til dæmis nýstofnað-
ar verslanir „retornados” lengur
opið á kvöldin en gömlu verslanirn-
ar gerðu, svo að hinir hafa neyðst
til þess að apa það eftir til að bjóða
upp á sömu þjónustu, ef þeir ekki
vildu glata viðskiptavinunum.
Það hefur jafnframt komið i ljós,
að þeir „retornados”, sem ekki
stofna eigin fyrirtæki, virðast kom-
ast betur áfram á vinnumarkaðn-
um, þar sem hefur þó verið offram-
boð á vinnuafli. Atvinnurekendur
segjast kjósa þá heldur, þvi að
þetta fólk skili betri vinnu og sé
ekki eins meö hugann bundinn við
verkalýðsbaráttuna og heimamenn
voru. — Þvi var það á dögunum,
þegar Kóka-kóla opnaði sina fyrstu
verksmiöju i Portúgal að starfs-
fólkið var nær einvörðungu ráöið úr
röðum þessara aðkomumanna.
Er nú svo komið, að meöan um
70.000 flóttamanna úr nýlendunum
voru á framfærslu þess opinbera
eða nutu opinberra styrkja fyrir
einu ári, þá eru það ekki nema um
15.000 i dag, sem þurfa einhverrar
slikrar aðstoðar með. Er fyrirsjá-
anlegt að þessar fimmtán þúsundir
verða orðnar sjálfbjarga áður en
þetta ár er á enda.
Þetta dugnaðarfólk hraktist sem
sé burt úr löndum hinna nýju
kommúnistarikja Afriku og nýtur
Portúgal góðs af. Enda mun sjálf-
sagt ekki af veita.
GUTENBERG-BIBLÍA Á
UPPBOÐ í NEW YORK
Gutenberg-biblía fer a
uppboð i New York í dag,
en andvirði hennar á að
renna til kaupa á fjölda
bóka fyrir safn á vegum
prestaskólans ,,The Gener-
al Theological Seminary of
America."
Þessi tveggja binda biblia er
ein af 47 óskemmdum eintökum,
sem til eru i heiminum i dag. Er
búist við þvi, að boðið verði i hana
allt að einni milljón dollara.
Gutenbergbiblian var fyrsta
bókin sem prentuö var með Gut-
enbergprentvél, fyrirrennara
prenttækninnar i dag.
Meðal þeirra sem komu á upp-
boósstaðinn i gær til þess að skoða
bibliuna, var Hans Kraus, bóksali
frá New York, sem sjálfur átti
Gutenberg-bibliu fyrir hálfum
mánuði, en seldi hana Gutenberg-
safninu i Mainz fyrir 1,8 milljón
dollara. Hann hafði keypt bókina
á þvi verði 1970.
Sœringamenn
fyrir rétti
Rödd stúlku, sem lést
eftir að hafa verið undir
handieiðslu særinga-
manna, bergmálaði í
réttarsalnum í Schaffen-
burg í V-Þýskalandi í gær
af segulbandi og varpaði
hrollvekjublæ á réttar-
haldið.
I þessari hljóðritun
heyrðist stúlkan,
Anneliese Michel, veina,
kjökra og bölva kaþólsk-
um eldri presti, sem
reyndi að særa úr henni
djöflana, sem þau bæði
héldu að hefðust við í lik-
ama hennar.
Tveir prestar og foreldrar
stúlkunnar hafa veriö ákærð
fyrir að hafa valdið dauða stúlk-
unnar i júli 1976 með þvi að láta
undir höfuð leggjast að kveða til
lækna til aðstoðar henni.
Mátti á hl jóðupptökunni
heyra i gær, hvar hinn 67 ára
gamli prestur, Wilhelm Renz,
þuldi á þýzku og latinu yfir
stúlkunni. Eftir bænalestur
skoraði hann á „djöflana” að
yfirgefa stúlkuna. — „I nafni
hinnar heilögu þrenningar
segið oss nafn ykkar,” tónaði
prestur og stúlkan heyrðist
svara djúpri undarlegri röddu.
Þegar drisill heyrðist svara
(eftir þvi sem haldiö er fram, i
gegnum munn stúlkunnar), að
hann héti Júdas, spyr prest-
urinn: „Er Lúsifer ekki þarna i
dag? Ertu sá eini, sem ég fæ að
tala við?” —Svariðer „Nei, nei,
við erum hér allir!”
Faðir Renz bar það fyrir
réttinum, sem hófst i siðustu
viku, að hann hefði verið sann-
færður um, að sex djöflar hefð-
ust við i stúlkunni. Læknar
halda þvi hins vegar fram, aö
stúlkan hafi verið haldin heila-
kvilla, sem kallað hafi fram flog
hjá henni.