Vísir - 07.04.1978, Blaðsíða 8
Föstudagur 7. april 1978 vism
fólk
Kubrick fékk
hann ekki
Cary Guffey heitir
fjögurra ára gamall
drengur sem þegar
hefur fengiö að spreyta
sig á leik i kvikmynd. I
myndinni Close
Encounters Of The
Third Kind. Eftir frum-
raun sina þar fékk eng-
inn annar en Stanley
Kubrick augastað á
drengnum og fór fram á
það við foreldra hans að
drengurinn fengi að
fara með hlutverk
skyggns drengs i mynd-
inni ,,The Shining" sem
gerð er eftir sögu
Stephen Kings. Foreldr-
arnir vildu ekki taka
boði Kubricks. ,,Við vilj-
um ekki láta hann gera
neitt sem okkur list ekki
vel á og okkur líst ekki á
The Shining", sagði
móðir hans, — Sue.
• •
Vandroeðin ekki aðeins
á milli átta og ffimm
,,Vandræðin steðja
ekki aðeins að fólki milli
klukkan átta á morgn-
ana og fimm á daginn",
sagði bandaríski
presturinn Tom Bagby i
Houston i Texas. Honum
var það mikið á móti
skapi að loka þyrfti öll-
um kirkjum á kvöldin
fyrir fólki og ákvað að
stefna að því að byggð
yrði kapella sem opin
yrði öllum allan sólar-
hringinn. ,,Til þess að
bjarga hjónaböndum,
styrkja eiturlyf janeyt-
endur og reyna að
hjálpa fólki sem á við
erfiðleika að stríða".
Kapellan hefur nú verið
reist og er opin öllum
hvenærsem þeir vilja. A
meðfylgjandi mynd er
presturinn við kapelluna#
• •
Peck leikur
Engil dauðans
FF
Þaðererfittað þekkja
Gregory Peck i nýjustu
myndinni sem hann
leikur i. ,,The Boys
From Brazil" heitir
myndin og Peck f er með
hlutverk mannsins sem
kallaður var Engill
dauðans. Josef Mengele
er naf n hans og hann ber
ábyrgð á dauða manna
sem skipta þúsundum í
Auschwits fangabúðun-
um. Peck, sem nú er 61
FF
árs og hefur leikið í að
minnsta kosti 50 mynd-
um, var spurður að þvi
hvort hann óttaðist ekki
að áhorfendum brygði
illa við.
„Ég vona það",
svaraði hann. ,,Ég er
ánægður yf ir því að geta
enn einu sinni minnt
áhorfendur á verk þess-
ara manna og hversu
ólýsanlegar hörmungar
þeir leiddu yfir fólk".
Umsjón: Edda Andrésdóttir
Presturinn hné til jaröar og öskraöi um leiö til manna
sinna „Drepiö þá, drepiö þá”
Þegar hinn falski prestur sá
Tarsan og apahjöröina koma
geröi hann sig líklegan til aö
hraöa fórnarathöfninni.
Tarsan miöaöi vandlega
og vopn hans hitti
i mark....
-ANDY CAPP;