Vísir - 21.04.1978, Síða 9
9
FRíLSI TIL HANDA FÓLKINU
Asthildur Briem hringdi:
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti minu til Guðmundar H.
Garðarssonar alþingismanns,
vegna flutnings hans á frum-
varpi um frjálsan útvarps- og
sjónvarpsrekstur. Ég tel þetta
mikið þjóðþrifamál. Það á ekki
að vera einhver einkaréttur
rlkisins að reka útvarp og sjón-
varp hér á þessari eyju.
Ég held að flestir séu sam-
mála um þetta mál, að minnsta
kosti eru þeir sem ég þekki
sammála mér. Þingið ætti að
sjá sóma sinn I að afgreiða þetta
mál, en láta það ekki daga upp i
einhverri þingnefnd eins og
vanalega.
Þetta er mál sem snertir alla
landsmenn og þeir eiga heimt-
ingu á að fá að velja á milli fleiri
en einnar útvarps- og sjón-
varpsstöðvar. Ég er hissa á
þeim mönnum sem eru á móti
þessu máli. Þeir eru hreinlega
ámóti frelsi til handa fölkinu I
landinu.
Hvernig haldið þið að það
væri annars að hafa útvarp Jón
Múli og Pétur. Það yrði ekki svo
amalegt. . Strákarnir i Samúel
hafa sagst ætla að stofna eigið
útvarp. Heyr fyrir þeim — ég
styð þá.
Raunir sparímerkjaeigandans
Sparimerkjaeigandi hringdi:
Ég er einn af þeim fjölmörgu
sem fá sparimerki. Ekki ætla ég
svo sem að nöldra út af þvi, það
er gott og blessað þegar maður
þarf á þeim peningum að halda.
Nú, hjá mér or ennþá það kerfi
að maður tekur við merkjunum
og þarf að sleikjaþau til að lima
inn I bókina (maður er með
þurra tungu fram eftir mánuði).
Mér skilst að þeir hjá rikinu fái
þessa peninga borgaða beint inn
á sparimerkjareikninginn, sem
er auðvitað mun betra fyrir-
komulag.
En ég ætla að halda áfram
með mitt eigið dæmi. Loks þeg-
ar ég er búinn að lima inn merk-
in þarf maður að koma spari-
merkjabókinni á pósthúsið. Að
sjálfsögðu eru þau aðeins opin á
venjulegum vinnutima, þannig
að ef maður ætlaði að koma sin-
um annars ágætu sparimerkj-
um i verð verður maður að taka
sér fri úr vinnu.
Fyrir stuttu arkaði ég með
merkin min niður á pósthúsið i
Pósthússtræti. Klukkan var rétt
rúmlega fjögur. En hvað gerist:
Þvi miður á þvi pósthúsi er hætt
að taka á móti sparimerkjum
klukkan þrjú.
Svona á að hafa það og ekkert
múður félagar.
SKJALDBORG EYÐUBLAÐANNA
Eiríkur Þorsteinsson hringdi:
Það er stundum sem maður
veltir fyrir sér til hvers og fyrir
hvern þetta svokallaða kerfi er.
Einu sinni hélt maður að þetta
væri fyrir okkur — þjóðfélags-
þegnana — að það væri til að
hjálpa okkur. Eftir siðasta
þriðjudag er ég farinn að efast
um þetta. Reyndar gekk þetta
svo fram af mér að ég get ekki
lengur orða bundist.
Frá þvi I fyrra sumar hef ég
verið frá vinnu vegna meiðsla i
hrygg.I desember lá ég i tvær
vikur á Landsspitalanum til að-
gerða. I mars s.l. var ég svo þar
aftur i tvær vikur nú til þjálfun-
ar og i nuddi.
það var nefnilega fyrir umsókn-
ir um mæðralaun o.þ.h.
Aður en éf fór þangað I siðara
skiptið kom ég við á Trygginga-
stofnun rikisins og bað um eyðu-
blöð fyrir örorkubætur. Ætlaði
ég að láta lækninn á Landsspit-
alanum fylla það út', þar sem
hann hafði allar skýrslur um
veikindi min. Fékk ég eyðublað.
Þegar heim kom sá ég að það
gæti varla átt viö i minu tilfelli,
Fór ég nú mina aðra ferð á
Tryggingastofnunina. Fékk ég
þá annað eyðublað og með þeim
orðum að þetta ætti heimilis-
læknirinn að fylla út. Lagði ég
þvi næst leið mina til hans.
Læknirinn minn fyllti. plaggið vel.
og samviskusamlega út, enda
tók það hann hálftlma að gera
það.
Þegar ég kom i þriðja skipti á
vit þeirra i Tryggingastofnun-
inni var mér sagt að nú þyrfti ég
skattaframtalið og læknisvott-
orð. Var ég nú farinn að verða
all-leiður á öllu þessu stappi.
Fór ég og náði I skattaframtalið
og læknisvottorðið I von um að
nú væri þessu loks lokið. En bið-
um við, þaðer ekki allt búið enn.
Þegar ég kom I mina fjórðu
ferð i Tryggingastofnunina var
mér sagt að ég hefði verið með
vitlausa gerð af eyðublöðum.
Ég átti að fá allt önnur eyðu-
blöð, Þá brast þolinmæöi min
gersamlega. I hvert sinn sem ég
hafði komið þangað hafði sú,
sem afgreiddi mig, ráðfært sig
við þá sem unnu þarna. Veit
kannski enginn hvað hann er að
gera? Er afgreiðsluliðið orðið
svo áttavillt i eyðublaðaflóðinu
að það veit ekki hvað á við i
hvert sinn.
Allt það sem ég hafði beðið
um var örorkumat til að ég
fengi bætur út úr eigin lifeyris-
sjóði. Þetta voru nu öll ósköpin.
Og hvað getur maður svo gert?
Spyr sá sem ekki veit. Er kerfið
• fyrir okkur eða erum við fyrir
kerfið?
DREGIÐ VERÐUR
í HAPPDRÆTTINU
1. maí - 1. júní •
1. júli n.k.
HflLLQ
og verða neðantaldir
vinningar
fyrir hvern mónuð
KRflKKflR!
SÖLU- OG BLADBURÐARHAPPDRÆTTI
VÍSIS!
Þótttökurétt i happdrœttinu hafa sölu- og
blaðburðorbörn Vísis um allt lond.
1. vinmngur:
Danskt SCO-reiðhjól frá
Reiðhjólaversluninni ÖRNINN
að verðmæti um kr. 75.000
2. vinningur:
Texas Instruments
tölvuúr frá ÞÓR hf.
að verðmæti kr. 8.000
3.-8. vinningar:
Texas Instruments
tölvur frá ÞÓR hf.,
hver að verðmæti kr. 6.000
VISIR
HERDATRE
0EEBL
®union
MARGAR GERDIR
fyrirliggjandi
VÖNDUÐ VARA
MJÖG GOTT VERO
tkiphvlf/í
Skipholti 1, Reykjavik
Simar:
2-37-37 og 2-37-38
riýir áskrífendur geta líka verió meó
Ertu
áskrifandi ?
i