Vísir - 06.05.1978, Síða 23

Vísir - 06.05.1978, Síða 23
VISIR Laugardagur 6. maí 1978 Margir skemmtu sér við að horfa á priíðuleikarana ræða um Kröflu i sjónvarpinu um daginn. En enginn þeirra góðu manna fann neina lausn á málinu. Það gerði aftur á móti Jónas Eliasson prófessor, sem skrifaði gagnmerka grein um málið i Visi á miðvikudaginn. Jónas taldi mjög til athugunar að setja upp oliuketil við virkjunina og drifa hinar dýru vélar hennar nieð oliu- fýringu. —0— Það var glás af góðum fréttum i Mogganum á miðvikudaginn. Ekki sist um kosningabaráttuna sem nú er orðin harla einkenni- leg. Sigurjón Pétursson, borgar- fulltrúi Alþýðubandalagsins sagði i viðtab við Þjóðviljann um dag- inn að Sjálfstæðisflokkurinn væri svo sterkur i borgarmálum að Al- þýðubandalagið fengi varla hirt af honum meirihluta. Þessu mótmælir Birgir, borgarstjóri, harðlega i Moggan- um á miðvikudaginn. Telur hann öll tormerki á þvi að sjallinn hafi kosningarnar og segir þetta vera svivirðilegt áróðursbragð komma sem vilja gera sjálfstæðismenn „andvaralausa.” (Geta þeir orðið andvaralausari?) Fréttamaður Sandkassans hlustaði á þá Birgi og Sigurjón ræða þetta frekar á borgar- stjórnarfundi. „Þið vinnið VÍST” „Onei, onei, onei, við töpum ábyggilega.” „Onei góði, þú ert bara aö plata”. „Þú lýgur þvi, ég er EKKERT aö plata”. ,,0jú, ojú, ojú.” „Onei, onei, onei.” Þvi miður varð fréttamaður frá aðhverfa og missti því af restinni af.þessum uppbyggilegu umræð- um. —0— Mogginn var lika með hita- veitufrétt á miðvikudaginn: „SPARNAÐUR NOTENDA 8,1 MILLJARÐUR A ARI”. Ég leyfi mér aði lýsa þvi yfir að þetta er haugalygi. Mér er til efst að ég eignist 8,1 milljarð á allri minni hundstið og kattarævi hvað þá að ég spari þá upphæð árlega. —0— Það var gaman að sjá i miðvikudagsmogganum hve kratar eru miklir húmoristar. Þeir eru margir góðir húmorist- arnir á Alþingi en enginn þeirra kemst með tærnar þar sem Sig- hvatur Björgvinsson þingmaður Alþýðuflokksins hefur hælana. Lifið hlýtur að vera eilifur hlát- ur fýrir þá sem umgangast húmoristann Sighvat Björgvins- son. Hann sýndi sinn snilldarlega húmor betur en oft áður á Alþingi á dögunum, þegar hann spurði um fjarvistir orkumálaráðherra og hversvegna liann væri ekki heima til að tala um Kröflu. Forsætisráðherr a sagði að Thoroddsen hefði farið utan til að sitja ýmsa mikilvæga fundi og ráðstefnur „en ég mun tjá hæst- virtum ráðherra að hans hafi verið saknað hér i þingsölum og geta um ástæður fyrir því.” Þá reis upp aftur, húmoristinn Sighvatur Björgvinsson og sagði að hann saknaði orkumálaráð- herra ekki neitt, hann ætti bara að koma og standa við þinglegar skyldur sinar. Sannleikurinn i málinu (sem þeir vissu hvorugur Geir eða Sig- hvatur) er auðvitað sá að orku- málaráðherra hreinlega orkaði ekki meira og stakk af úr landi. —0— Rauðanúpsmálið svonefnda hefur verið i gangi i einar tvær vikur. Það hófst með þvi að tog- arinn strandaöi og var komið meö hann til Reykjavikur til bráða- birgðaviðgerðar meðan tilboöa væri leitað ifullnaðarviðgerð. Akveðið var að taka tilboði lendis frá og voru islenskir aðilar ekki ánægöir með það svo þeir hófu ákafar samningaviðræður sem lauk með þvi að þrir þeirra fengu verkið. Talsmaður þessara þriggja sagöi að kostnaðurinn væri trúnaðarmál en trúlega hafa þeir gert útgerð skipsins tilboð sem hún gat ekki hafnað. Einn liður i tilboðinu var að ekki yrði gerð bráðabirgðaviðgeröin á skipinu ef þvi yrði ekki tekið. Hafterfyrir sattaðMario Puzo ætli að gera kvikmyndahandrit eftir þessari sögu. —0— Timinn kom á fimmtudag upp um stórfellt fjármálahneyksli. Eins og menn muna er enn veriö að reyna að upplýsa „Finans- banken-máliö” sem upphófst þegar upp komst að Islendingar höfðu flutt fé útfyrir landsteinana og áttu það i dönskum banka. En Tíminn var með nýtt mál: „FLUTTI FÉ ÓLÖGLEGA YFIR TVÆR SAUÐFJARVEIKI- VARNARLINUR”. —0— Vilhjálmur menntamála- ráðherra var mjög óhress þegar meðráðherrar hans beittu sér fyrir breytingum á grunnskóla- lögunum. Sagði Vilhjálmur á Al- þingi að ef farið væri svona að menntamálaráðherra i ná- grannalöndunum, mundi sá segja af sér, svo mikið mál væri þetta. Ekki ætlaði Vilhjálmur þó að segja af sér. Þeir eru mjúkir ráðherrastólarnir. —0— Við skulum svo enda á upphaf- inu. I Visi á föstudaginn sagði i fyrirsögn: „SKYRTUERMI OG SVAMPUR, ÞAÐ VAR UPP- HAFIД. Og ég sem hélt að i upp- hafi hefði hann skapað himinn og jörð. —ÓT (Smáauglýsingar - sími 86611 ) Hjól-vagnar Fallegt kvengirahjól með körfu og fl. til sölu. Litið notað. Uppl. i sima 73131. Til sölu Honda SS 50 ’72 Ný uppgerð. Hjálmur fylgir. Uppl. i sima 22731. Til sölu vel með farinn kerru- vagn. Verð kr. 20 þús. Uppl. i sima 53346. Vel með farinn Silver Cross kerruvagn óskast. Uppl.i sima 73677. Verslun Reyrstólar, borð, teborð, körfustólar barna- stólar, blaðagrindur, barna- og búðarkörfur, hjólhestakörfur, taukörfur, blómakörfur ofl. Körfugerðin, Ingölfsstræti 16. Verksmiðjusala. ódýrar peysurá alla fjölskylduna Bútar og lopaupprak. Odelon garn 2/48., hagstætt verð. Opið frá kl. 1—6 Les-prjón Skeifunni 6. Rökkur 1977 kom út i desember sl. stækkað og fjöl- breyttara að efni, samtals 128 bls. og flytur sögur, Alpaskyttuna eftir H.C. Andersen, endurminn- ingar útgefandans og annað efni. Rökkur fæst hjá bóksölum úti á landi og BSE og bókaversl. Æsk- unnar, Laugavegi 56, Reykjavik. Bókaútgáfa Rökkurs mælist til þess við þá sem áður hafa fengið ritið beint, og velunnara þess yfirleitt, að kynna sér ritið hjá bóksölum og er vakin sérstök athygli á að það er selt á sama verði hjá þeim og ef það væri sent beint frá afgeiðslunni. Flókagötu 15, simi 18768. Afgreiðslutimi 4—6.30 alla virka daga nema laugardaga. Bækur til sölu Afmælisrit helgað Einari Arnórs syni, sextugum. Bókaskrá Gunn- ars Hall. Vidalinspostilla. úg. 1945. Strandamenn, eftir Jón Guðnason, Bergsætt, eftir Guðna Jónsson, 1. útg. Ætt Steindórs Gunnarssonar, eftir sama höf. Skútustaðaætt, Þura i Garði tók saman. Vigfús Árnason, lögréttu- maður, safnað hefur og skráð Jó- hann Eiriksson, Ættaþættir, eftir sama höf. Uppl. i sima 16566. Verslunin Leikhúsið, Laugavegi 1. simi 14744 Fischer Price leikföng i miklu úrvali m.a. bensinstöðvar, búgarður, þorp, dúkkuhús, spitali, plötuspilari, sjónvarp, skólabill, flugvél, gröf- ur, simar, skólahús og margt fleira. Póstsendum. Verslunin Leikhúsið, Laugavegi 1. simi 14744. Leiki'angahúsið auglýsir Playmobil leikföng, D.V.P. dönsku dúkkurnar, grátdúkkur á gamla verðinu. Velti-Pétur, bila- brautir, ævintýramaðurinn, jepp- ar,þyrlur skriðdrekar, mótorhjól. Trékubbar i poka,92 stk. Byssur, rifflar, Lone Ranger-karlar og hesthús, bankar, krár, hestar. Barbie dúkkur, Barbie bilar, Barbie tjöld og Barbie sundlaug- ar. Póstsendum. Leikfangahúsið, Skólavörðustig 10, simi 14806. Sportmarkaðurinn Samtúni 12, umboðssala. ATH: við seljum næstum allt. Fyrir sumarið, tökum við tjöld, svefn- poka, bakpoka og allan viðleguút- búnað, einnig barna- og full- orðinsreiðhjól ofl. ofl. Tekið er á móti vörum millikl. 1-4 alla daga. ATH. ekkert geymslugjald. Opið 1-7 alla daga nema sunnudaga. (Fyrir ungbörnM Stór Silver Cross barnavagn til sölu, einnig barna- bilstóll. Uppl. i sima 52894. Barnagæsla 12 ára stelpa óskar eftir að komast i vist i sum- ar. Er vön börnum. Uppl. i sima 43064. 13 ára stúlka vön börnum óskar eftir að gæta eins barns l-2ja ára i sumar.Uppl. i sima 74567. 13 ára stúlka óskar eftir að gæta barna i sumar i Háaleitishverfi, helst fyrir há- degi. Uppl. i sima 38790 e. kl. 18. Vill einhver passa 2ja ára strák i sumar. Uppl. i bláa úlpu i misgripum á Rakara- stofunni Klapparstig nýlega vin- samlega hringi i sima 74059. Skiðaúlpa tapaðist áhljómleikum Stranglers i Laug- ardagshöll s.l. miðvikudag. Skil- vis finnandi vinsamlega hringi i sima 33811. Seðlaveski með peningum, sparisjóðsbók og skilrikjum tapaðist i gær i Reykjavik. Skilvis finnandi vinsamlegast hringið i sima 30566. Fundarlaun. Módel gullhringur tapaðist aðfaranótt 2. april lik- lega i Armúla eða Vesturbergi. Finnandi vinsamlegast hringi i sima 76624. Fundarlaun. Ljósmyndun Til sölu Konica T3 linsa 1:1,4 og Minolta XG-2 linsa 1:1,7 á tækifærisverði. Uppl. i sima 82475. Get tekið verkefni i súmar i kvikmyndun og ljós- myndun, reynsla og góð tæki. Fast starf kemur til greina. Matthias Gestsson simi 96-21205. Til sölu Konica T3, linsa 1:1,4 og Minolta XG-2 linsa 1:1,7, á tækifærisverði. Uppl. i sima 82475. *t S. Fasteígnir 1 B 102 fermetra kjallaraibúð á Akranesi til sölu. Laus 10. júni. Uppl. i sima 93—2290. Einbýlishús á Akranesi til sölu, fokhelt. Uppl. i sima 93-2348 milli kl. 7 og 10. ITil Til sölu notað mótatimbur 1x6 2430 metrar á kr. 170 og 185. 1 1/2x 4 220 metrar á kr. 185.-. 2x4 920 metrar á kr. 220. Uppl. i sima 74454 og 76860. Krossviður. Til sölu 16mm krossviður i fúllum lengdum. Ristur að endilöngu ca. 200ferm. einnotaður. Uppl. f sima ISumarbústaóir Ibúð — Orlofshús. Ibúð á Hellu til leigu sem orlofs- hús i sumar. Leigutimi frá föstu- degi til föstudags. Uppl. á kvöldin i sima 99-5975. Sumardvöl Tek börn i sveit gegn meðgjöf. Þeir sem áhuga hafa sendi nöfn heimilisföng og simanúmer á auglýsingadeild Visis fyrir 20. maí Merkt „5050”. Sumar i sveit. Tökum börn á aldrinum 8-12 ára til sumardvalar i sveit. Uppl. i sima 99-6555. Sveitadvöl — Hestakynning Tökum börn 6-12 ára i sveit 12 dagar i senn. Otreiðar á hverjum degi. Uppl. i sima 44321. 'T\ tiQ?.- Hreingerningar j Ávallt fyrstir. Hreinsum teppi og húsgögn með háþrýstitækni og sogkrafti. Þessi nýja aðferð nær jafnvel ryði, tjöru, blóði o.s.frv. úr teppum. Nú eins og alltaf áður tryggjum við fljóta og vandaða vinnu. Ath. veitum 25% afslátt á tómt hús- næði. Erna og Þorsteinn, simi 20888. Gófteppa- og húsgagnahreinsun. i heima- húsum og stofnunum: Löng reynsla tryggir vandaða vinnu. Erna og Þorsteinn. Simi 20888 Kennsla Enskunám i Englandi Southbourne School of English og English Language Sumraer Schools annast enskukennslu fyr- ir útlendinga, með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár. Nemendur búa á heimilum. Nám- skeiðin i sumar verða i Bourne- mouth, Dorchester, Poole, Tor- quay og Cambridge. Nánari upp- lýsingar veitir Kristján Sig- tryggsson i sima 42558, kl. 18-19 virka daga, nema laugardaga. Tilkynningar Spái i spil og bolla i dag og næstu daga. Hringið i sima 82032. Strekki dúka, sama simanúmer. Smáauglýsingar Visis. Þær bera árangur. Þess vegna auglýsum við i Visi i smáauglvs- ingunum. Þarft þú ekki að aúg- lýsa? Smáauglýsingasiminn er 86611. Visii'. 23 Skemmtanir 1 Tónlist við ýmis tækifæri. Danstónlist við hæfi ólikra hópa, það nýjasta og vinsælasta fyrir þá yngstu og fáguð danstónlist fyrir þá eldri og hvorutveggja fyrir blönduðu hópana. Við höfum reynsluna og vinsældirnar og bjóðum hagstætt verð. Diskótekið Disa-Ferðadiskótek. Simar 50513 og 52971. Einkamál Maður á sextugsaldri vill gjarnan kynnast greindri myndarlegri og góöri konu á svipuðum aldri. Börn ekki til fyrirstöðu. Þær sem vildu sinna þessu sendi uppl. til Visis fyrir 10. þ.m. auðkennt „Samhjálp”. Þjónusta Tek eftir gömlum myndum, stækka og lita. Opið 1—5 e.h. Ljósmyndastofa Sigurð- ar Guðmundssonar, Birkigrund 40, Kópavogi Simi 44192. Gróðurinold. Úrvals gróðurmold til sölu, heim- keyrt. Garðaprýði. Simi 7 1 386. Hljóðgeisli sf. Setjum upp dyrasima, dyrabjöll- ur og innanhúss-talkerfi. Við- gerða- og varahlutaþjónusta. Simi 44404. Garðeigendur ath.: Tökum að okkur öll venjuleg garðyrkjustörf, svo sem klipping- ar, plægingar á beðum og kál- görðum. Útvegum mold og áburð. Uppl. i sima 53998 á kvöldin. Húsaviögerðir. Þéttum sprungur i steyptum veggjum og svölum. Steypum þarkrennur og berum i þær þétti- efni. Járnklæðum þök og veggi. Allt viðhald og breytingar á gluggum. Vanir menn. Gerum til- boðef óskaðer. Uppl. I sima 81081 og 74203. Ný-Grill Völvufelli 17 simi 71355. Höfumopnað að nýju eftir breytingar með sérinngangi i veitingastofuna. Morgunkaffi kl. 9, matur i hádeginu siðdegiskaffi. smurt brauð, pönnukökur og vöfflur með rjóma. Ath. vinnu- flokkar: fast fæði i hádeginu ef óskað er. Hafið samband við okk- ur sem fyrst. Reynið viðskiptin. Veitingastaðurinn Ný-grill v/Iðn- aðarbankann Fellagörðum. Grimubúningaleigan er opin milli kl. 7 og 9 á kvöldin Simi 72606. Húseigendur. Tökum að okkur glerisetningar og málningu. Uppl. i sima 26507 og 26891. Hörður. Garðeigendur ath. : Tökum að okkur öll venjuleg garðyrkjustörf, svosem klipping- ar, plægingar á beðum og kál- görðum. Útvegum mold og áburð. Uppl. i si'ma 53998 á kvöldin. Garðhellur til sölu. Einnig brothellur, margar gerðir. Tek að mér að vinna úr efninu ef óskað er. Arni Eiriksson, Móabarði 4b, Hafnarfirði. Simi 51004. Úiinumst gólfflisa- dúka- og teppalagnir ásamt vegg- fóðrun. Gerum tiiboð ef óskað er. Ahersla lögð á vinnugæði. Fag- menn. Simi 34132 eftir kl. 7 á kvöldin. Smíöum húsgögn og innréttingar. Seljum og sögum niðui efni. Hag- smiði hf. Hafnarbraut 1, Kópa- vogi simi 40017. LINDNER Album Island Lyðveldið frá 1944,kr. 7800. Al- heimsverðlistar 1978. Scott 4 bindi kr. 10.000 Stanley Gibbons Simpli- íied kr. 5000. Kaupum isl. fri- merki. Frimerkjahúsið Lækjar- götu 6a. simi 11814. Safnarinn

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.