Vísir - 29.05.1978, Side 3

Vísir - 29.05.1978, Side 3
3 c v 'r wí' : VISIR Mánudagur 29. maí 1978 HUÓTUM AÐ HAFA ÁHRIF í SAMRÆMI m STYRK OKKAR" — segir Sigurjón Pétursson Ég fagna þessum úrslitum ákaflega —þau benda til þess að kosið hefur verið um það sem við lögðum megináhersluna á rikisst jórnina og aðgerðir hennar”, sagði Sigurjón Péturs- son i viðtali við Visi i morgun þegar ljóst var að Alþýðubanda- lagið hafði bætt við sig tveimur borgarfulltrúum og meirihluti Sjálfstæðisflokksins var fallinn i Reykjavik. Sigurjón kvaðst þó aldrei hafa reiknað með slikum árangri sem raun bar vitni, ,,en er sannfærður um”, sagði- Sigurjón. .að við sem höfum verið i minnihluta i borgar- stjórn munum ná samstöðu og trúi ekki á það að hinir flokkarnir fari að gerast hækjur ihaldsins”. En um það hver ætti að taka að sér forystuverk i sliku samstarfi sagði Sigurjón: ,,Við hljótum að hafa áhrif i sam- ræmi við styrkleika okkar, en við munum ganga til heiöarlegs samstarfs við hina flokkana, Við gerum okkur það að sjálfsögðu ljóst að við erum stærstir, en munum ekki legggja áherslu á það að beygja hina til samstarfs", sagði Sigurjón. Þá sagði Sigurjón: ,,Það er okkar skoðun að borgarstjóri eigi aö vera framkvæmdastjóri, Alþýðubandalagskonur fagna sigri i morgunsárið: Guðrún Helga- dótt-ir, sem var i fjórða sæti á lista bandalagsins i Reykjavlk og Adda Bára Sigfúsdóttir sem var i ööru sæti. Myndina tók Ijósmyndari Vísis.Gunnar V. Andrésson,i kosningamiðstöð Alþýöu- bandalagsins. við setjum það ekki sem skilyrði að hann hafi geislabaug. Ég trúi og treysti þvi að þessir flokkar komi sér saman um sér- staka málefnaskrá sem grund- völl sliks samstarfs. Við erum ekki búnir að ákveða hvað verður næsta skrefið, enda er nóttin varla liðin ennþá, en væntanlega skýrist þetta allt saman fljót- lega". —H.L. „ENGIN HÆTTA Á OFRIKI AIÞÝÐUBANDAIAGSINS" — segir Björgvin Guðmundsson „Ég er mjög ánægður með út- komu Alþýðuflokksins, hún er mun betri en ég átti von á. Ég fagna þvi að Sjálfstæðisflokkúr- inn liefúr misst meirihlutann, það var löngu kominn timi til að breyta til eftir hálfrar aldar tima- bil undir stjorn Sjálfstæðisflokks- ins". Þannig mæltisi Björgvin (iuðmundssyni, borgarfulltrúa Alþýðuflokksins orð þegar Visir náði tali af honum i nótt eftir að urslitin i borgarstjórnarkosn- ingunum tágu fyrir. Björgvin sagði ástæðuna fyrir góðri frammistööu Alþyðuflokks- ins vera mjög málefnalega bar- áttu, auk þess sem landsmálin hefðu spilað þar inn i. ,,Það er nú ekkert farið að ræða neitt ákveðið um meirihlutstarf, en einsýnt er að myndaður verður meirihluta Alþýðuflokksins, Al- þýðubandalagsins og Framsókn- arflokksins. Ekki ætti að vera neitt vandamál að ná samkomu- lagi um slikan meirihluta”, sagði Björgvin um þaö, hvað nú tæki við i borgarstjórn Reykjavíkur: „Fyrir borgarstjórnarkosning- arnar 1974 var ráð fyrir þvi gert af þessum flokkum að ef meiri- hlutinn næðist, yrði sá háttur tek- in upp að auglýsa stöðu borgar- stjóra og i það embætti ráðinn duglegur framkvæmdamaður”. Um forystuhlutverk Alþýðu- bandalagsins i nýjum meirihluta, vegna stærðar þess, sagði Björg- vin: ,,Ég tel enga hættu á ofriki Alþýðubandalagsins, vegna þess að þetta yrði vætanlega byggt upp með svipuðu sniði og aðrar sam- steypustjórnir, þetta yrði þriggja ilokka samstarf og þótt Alþýðu- bandalagið hafi fimm fulltrúa, þá liöfum við til samans þrjá. Þegar er t il reynsla fyrir sliku samstarfi i borgarst jórn og prófsteinn hefur lengist á slikt samstarf i ýmsum meiriháttar málaflokkum. AlþýðufIokkurinn mun ekki greiða fyrir þvi að Alþýðubanda- lagið hafi nein afgerandi áhrif i nýjum meirihluta, ég vænti þess okki einu sinni að þeir reyni slikt”, sagði Björgvin. En hvaðum samstarf við Sjálf- stæðisflokkinn? „Ég tel,” sagði Björgvin: „að þegar Sjálfstæöisflokkurinn hefur misst meirihlutann, þá eigi Reyk- vikingar rétt á þviað að þeir, sem sigur báru úr býtum eigi aö mynda stjórn.” __m Conseils de beauté Rpc Lyktarlausu ofnœmis- prófuðu snyrtivörurnar Ný sending Fyrir nútíma-konur sem velja það besta •nuNTaiN 'ftANDmmmmmmmmmmmmu Cs) NYJUNG! HEITIR LJUFFENGIR DRYKKIR ALLAN S ÓL ARHRIN GINN Hægt er að velja milli 20 tegunda drykkja, en vélina getur þú fengið með frá 2 upp i 6 tegundir í einu, svo sem kaffi, te, kakó og súpu, og það tekur ekki meira en 5 sekúndur að laga drykkinn. Þú setur bolla undir þá tegund drykkjar sem þú óskar þér. Tekur í handfangið og þá rennur efnið í boilann, síðan seturðu bollann undir kranann og færð heitt vatn saman við. Þegar þú crt búinn að hræra í bollanum ertu kominn með alveg sérstaklega bragðgóðann heitann drykk. Þetta er þrifalegt, einfalt og ódýrt, ckkert fer til spillis, enginn uppþvottur, og drykkirnir eru alltaf nýjir og ferskir. Fáanlegar eru margar stærðir af vélum, og þat eru jafnvel ekki dýrari en venjuleg kaffivél, og hægt að nota allstaðar. sem óskað er heitra ljúffengra drykkja. Hringið í síma 16463 og fáið sölumann í heim'-ókn, hann mun gefa ykkur að smakka og allar nánari upplýsingar. KOMIST A BRAGÐIÐ OG YKKUR MUN VEL LÍKA SIMI 16463 m&m 1 S \ ■■ S'j 1 11 8 4I 1 w * *

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.