Vísir - 15.06.1978, Síða 18
18
Fimmtudagur 15. júni 1978
Vatnsvirkinn hf.
Ármúla 21 sími 86455
HREINLÆTISTÆKI
fjölbreytt úrva.
Hárgreiðslustofan Öðinsgötu 2
VALHÖLL 22138
f
m
j
HÓTEL YARÐBORG AKUREYRI
SÍMI (96)22600
Góð gistiherbergi
Verð frá kr.: 5.000 — 9.200.
Morgunverður kr.: 1050
Næg bilastæði
Er i hjarta bæjarins
E7|
ÁN FfeÚORT
ÁN SblPIEFNA!
Að frumkvæði sænska heilbrigðisráðuneytisins var REN I
MUN vísindalega rannsakað i Vipeholms sjúkrahúsinu í
Lundi.
Árangurinn var svo jákvæður að nú mæla sænskir tann-
læknar og sænski tannlæknaskólinn með REN I MUN til
enn betri tannhirðu.
Góð leeilsa er dæfa levers neames
VÍSIR
SJUKRAHUSH) STÆKKAR
UM MEIRA EN HELMING
Rœtt við Stefán
sjúkrahúsráðsmann á Neskaupstað
//Nýbyggingin er tilbú-
in undir tréverk allri
múrvinnu er lokið og er
nú tilbúið undir innrétt-
ingu" sagði Stefán Þor-
leifsson sjúkrahúsráðs-
maður á Neskaupstað er
Visismenn heimsóttu
staðinn.
Stefán sagði að nú yrði hafist
handa um að bjóða út þau verk
sem eftir væru, allt nema laus-
an búnað
Framkvæmdir hófust i ágúst
1973 en litið var unnið það ár.
Grunnur var tilbúinn árið eftir.
Siðan 1975 hefur verið unnið
sleitulaust að þessari viðbygg-
ingu. Kostnaðurinn er greiddur
að 85% af rikinu, kaupstaðurinn
borgar 15% en talið er að
kostnaður verði alls 500 milljón-
ir króna eða um það bil. Stefán
sagði að þetta sýndi vel óða-
verðbólguna þvi að kostnaðar-
áætlun frá 1974 hljóðaði upp á
100 milljónir króna.
Nýbygging sjúkrahússins er
afskaplega nýtiskuleg en það
sem vekur hvað mesta athygli
eru tvær stórar hendur sem
prýða húsið. Þá hefur einni hönd
verið bætt á gömlu sjúkrahús-
bygginguna.
Stefán var inntur eftir þessu
og sagði hann að Tryggvi Ólafs-
son sem býr i Danmörku hefði
verið fenginn til að gera
skreytingu. Margir hefðu siðan
spurt Tryggva um það hvað
þessar hendur ættu að tákna.
Hann verðist svara en hefði einu
sinni látið orð um það falla
hvað maðurinn gæti gert án
handa sinna.
1 nýbyggingunni bætast
sjúkrahúsinu 30 sjúkrarúm, en i
dag hefur það yfir að ráða 24
rúmum á almennri sjúkradeild
og 12 á elli- og öryrkjadeild.
Tvær skurðstofur munu bæt-
ast við og lagði Stefán áherslu á
það hversu mikil þörf væri á þvi
að búa þær fullkomnum tækj-
Stefán Þorleifsson
um. Það væri að visu gott að
hafa einn fullkominn spitala
eins og Landspitalann en Aust-
firðingar ættu hins vegar mjög
oft i erfiðleikum með að komast
suður á veturna. A Austfjörðum
væru 11 til 12000 manns og að
auki væri yfir veturinn fyrir
Austfjörðum floti með 2000
manns og þyrftu skip iðulega að
koma til hafnar með slasaða
menn. Og það væri ljóst að óhjá-
kvæmilegt væri að hafa spitala-
skip með veiðiflotanum ef ekki
væri um fullkominn spitala i
landi að ræða.
Aukin deildaskipting
A nýja sjúkrahúsinu er gert
ráö fyrir almennri deild, lyf-
lækninga- og skurðlækninga-
deild. Þá verður heilsugæslu-
stöð reist og gert ráð fyrir að-
stöðu fyrir 3-4 lækna og 1-2 tann-
lækna. Ætlunin er að hafa þarna
stóra og góða endurhæfingar-
deild i sambandi við fyrirbyggj-
andi aðgerðir, sem eins og
Stefán benti á gæti sparað riki
og sveitarfélögum gifurlegar
upphæðir.
Á næsta ári er ætlunin að taka
hluta af heilsugæslustöðinni i
notkun en tengigangur milli
gamla og nýja spitalans er þeg-
ar I notkun. 1981 er stefnt að þvi
að ljúka húsbyggingunni.
BÁ—
Hússtjórnarskóli Reykjavikur:
426 nemendur voru
í skólonum í vetur
Hússtjórnarskóla
Reykjavíkur var slitið 29.
maí síðastliðinn, en í vetur
voru haldinn ýmiss nám-
skeið frá tveggja og
þriggja daga til átta vikna.
Alls stunduðu 420 nem-
endur nám í skólanum í
vetur.
Jakobína Guðmunds-
dóttir, skólastjóri minntist
í upphaf i ræðu sinnar Ólaf-
ar Blöndal fyrsta handa-
vinnukennara skólans sem
lést 26. maí s.l.
Þrjátiu ára nemendur
gáfu skólanum peninga-
upphæð til minningar um
Ólöfu og 10, 15. 20 og 25 ára
árgangar tilkynntu að þeir
hefðu ákveðið að gefa
skólanum málverk af
Katrínu Helgadóttur fyrr-
um skólastjóra en hún lét
af störfum á s.l. ári.
—Gsal