Vísir - 30.06.1978, Blaðsíða 3
VISIR Föstudagur 30. júnl 1978
3
Benedikt og Lóðvík
rœddust við í gœr
Benedikt Gröndal og LUÖvik
Jósefsson áttu óformlegar viö-
ræöur i Þórshamri ' gær eftir
fundi þeirra meö forseta Is-
lands. Mikil leynd hvildi yfir
fundarstaö og tima, en Visi
tókst aö afla sér upplýsinga um
hvar fundurinn yröi og ná tali af
Benedikt er hann kom á fund-
inn. Sagöi Benedikt aö hér væri
um ósköp venjulegar og eðlileg-
ar viðræöur flokksformanna á
þessu stigi. Engar ákvaröanir
yrðu teknar heldur væri aðeins
verið að þreifa fyrir sér.
I dag verður fundur i þing-
flokki Alþýöuflokksins og á
mánudag hjá Alþýöubandalagi.
Framsóknarmenn biöa átekta
og Sjálfstæöismenn hafa heldur
ekki boðað fund en biöa i viö-
bragösstööu.
ÓM/Gsal.
Matthías mótar
nœstu fjórlagagerð
Það er Matthías Á.
Mathiesen núverandi
f jármálaráðherra sem
taka mun hinar pólitísku
ákvarðanir í sambandi
við gerð fjárlaga næsta
árs, verði ekki búið að
skipa nýjan f jármálaráð-
herra í nýrri ríkisstjórn
fyrir haustið.
Þetta kom fram i samtali sem
Visir átti við Höskuld Jónsson.
ráöuneytisstjóra i fjármála-
ráðuneytinu, en Höskuldur
sagði að á meöan ráðherrarnir
væru við völd væru þeir höfuð
ráðuneytanna og yfirmenn allr-
ar þeirrar vinnu sem þar væri
unnin.
,,Eins og stendur hefur þeirri
rikisstjórn sem búin er að biðj-
ast lausnar verið falið að sitja
áfram. Ég geri þvi ráð fyrir að
hver og einn ráðherra muni
skila sinum störfum sem best
undirbúnum i hendur eftir-
manna”, sagði Höskuldur.
Höskuldur sagði ennfremur,
að mönnum þætti það eðlilegt aö
nýir menn, ef þeir kynnu að
koma inn, hefðu veg og vanda af
þeim ákvörðunum sem ætlað
væri að hafa frambúðaráhrif.
,,Sjálfsagt er það þvi þannig i
reynd”, sagði Höskuldur, ,,að
hver og einn ráðherra metur
það hvaða mál þarf að leysa á
stundinni og hvað eðlilegt sé að
biði nýrra manna”.
—H.L.
Fjárhagsvandi Borgarsiúkrahússins:
Bíður nœstu f járlaga
Benedikt Gröndal kemur til Ieynifundarins við Lúð-
„Það eru til ákaflega
eðlilegar skýringar á
þessari svokölluðu skuld
ríkisins við Reykjavik-
urborg”, sagði Höskuld-
ur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri i fjármálaráðu-
neytinu, i samtali við
Visi.
En borgarráð Reykjavikur
hefur meö greinargerð um
skuldasöfnun rikissjóðs við borg-
ina, krafist þess að daggjöld
sjúkrahúsa hækki verulega eða
að rikissjóður greiði nú þegar 300
milljónir upp i skuld rikisins við
borgina.
„Þetta stafar i og með af fram-
kvæmdum og athafnasemi
Reykjavikur i heilbrigöismálum
og hinsvegar þeim fjárveitingum
sem til þessara bygginga eru
áætlaðar hverju sinni. Fari borg-
in framúr þeim fjárveitingum
sem alþingi tekur þá verður hún
sjálf að bera ábyrgð á þvi þar til
Sveinn hœttir í
Seðlabankanum
Sveinn Jónsson aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans hefur
sagt starfi sinu lausu og hættir I
bankanum i haust.
I stuttu samtali við Visi sagð-
ist Sveinn myndu ganga inn i
fyrirtæki með löggiltum endur-
skoðendum og vinna við slik
störf. Algengt væri að menn
skiptu um atvinnu og væri engin
sérstök ástæða fyrir þvi að hann
hætti i Seðlabankanum.
Sveinn hefur verið forstöðu-
maður bankaeftirlits Seðla-
bankans frá árinu 1969 og að-
stoðarbankastjóri siðan 1975.
—SG
Sveinn Jónsson
þingið hefur ákveðið að greiða VÍk.
sinn hlut upp að fullu”, sagði
Höskuldur.
—H.L.
Visismynd: Gsal.
HÖFUM TIL AFGREIÐSLU NOKKRA FORD FAIRMONT ÁRGERÐ 1978
Verö: 2ja dyra kr. 3.520.000.-
4ra dyra kr. 3.580.000.-
Dregið hjá Krabba-
meinsfélaginu
Dregið var i happdrætti
Krabbameinsfélagsins 17. júni
sl. Vinningar voru fjórir,
Chrysler Le Baron fólksbifreið,
árgerð 1978, kom á miða númer
71389. Grundig litsjónvarpstæki,
20 tommu með fjarstýringu,
komu á miöa númer 43379 , 4 5047
og 47822.
Krabbameinsfleagið þakkar
landsmönnum veittan stuðning.
útbúnaður: i. Fjórskipt gólfskipting
2. Vökvastýri
3. Hituð afturrúða
4. Sérbólstraðir stólar
5. Diskahemlar að framan
6. Tauáklæði á sætum
7. Stórir hjólkoppar
8. Hjólbogar og sílslistar
AMERÍSKUR BÍLL Á EVRÓPUVERÐI
Sveinn Egi/sson hf.
FORDHÚSINU SKEIFUNNl 17 SÍMI 85100