Vísir - 30.06.1978, Blaðsíða 6
6
GRILL
12 gerðir af grillum,
einnig annað sem til þarf, viðarkol,
kveikivökvi og fleira.
SKA TA
BTOiJA
Rekin af
Hjálparsveit skáta
Reykjavík
SNORRABRAUT 58.SIMI 12045
blaöburóarfólk
óskast!
HVERFISGATA
Hverfisgata,
Snorrabraut,
TJARNARGATA
Bankastræti
Suðurgata
í AFLEYSINGAR:
RAUÐARÁRHOLT II.
Brautarholt
Nóatún,
Skipholt til nr. 38.
Stórholt.
LINDARGATA
Klapparstigur,
Lindargata,
Skúlagata til nr. 26
VÍSIR
Afgreiðslan: Stakkholti 2-4Simi 86611
KEFLAVIK
Keflavikurkaupstaður óskar að ráða
starfskraft til vinnu á skrifstofu bæjarins.
Starfið er fólgið i vinnulaunaútreikningum
og tölvuskráningu. Umsækjendur þurfa að
gangast undir hæfnispróf. Umsóknir
sendist undirrituðum fyrir 11. júli
Bæjarritarinn i Keflavik.
r
LAUSSTAÐA
Auglýst er laus til umsóknar staða skatt-
endurskoðanda hjá embætti skattstjóra
Vesturlandsumdæmis, Akranesi.
Laun eru skv. launakerfi starfsmanna
rikisins.
Starfið veitist frá 1. september n.k.
Umsóknir óskast sendar skattstjóranum i
Vesturlandsumdæmi, Akranesi, eigi siðar
en 1. ágúst n.k. og veitir hann allar nánari
uppiýsingar.
l'JÁR.MÁLARÁÐUNEYTIÐ
21. JC.NÍ 1978
Föstudagur 30. júnl 1978 VISIK
C
Umsjón: Guömundur Pétursson
3
Það var mikið um dýrðir á Súesskurðinum, þegar haldið var upp á 3 ára
afmæli opnunar hans.
Afmœli Súes
skurðarins
Hinn áhyggjufulli en
bjartsýni Egyptalands-
forseti, Anwar Sadat,
vék frá sér áhyggjun-
um í bili á dögunum,
þegar hann hélt innreið
sina i Súes brosandi til
þess að halda upp á
þriggja ára afmæli
opnunar skipaskurðar-
ins.
Og eðlilega réði bjartsýnin
rikjum þann daginn, þvi að
þrátt fyrir samdráttinn i sigl-
ingum oliuskipa um skurðinn og
að verslunarskipin hafa mörg
fært sig yfir á siglingaleiðina
suður fyrir Afriku, er umferöin
um Súesskurö komin aftur upp I
90% af þvi, sem hún var metáriö
1967.
Sú stefna Egyptalandsstjórn-
ar að halda siglingatollinum
niöri og kappkosta um leiö að
halda skuröinum vel við meö
dýpkunum og stækkun, hefur
gefið gööa raun og á eftir að
auka enn til muna umferðina
um skurðinn.
begar umferð um Súezskurö
var stöðvuö i sexdagastriöinu
við Israel, 1967, var skipaskurö-
urinn ein af aðalflutningsæöum
heims. Gat hann státaö af þvi,
að 14% allra flutningaskipa
heims lögðu leiö sina um hann
1 dag er Súesskuröurinn eitt af
fáum fyrirtækjum Egyptalands
iefnahagsaögerðum áranna eft-
ir striöin við Israel sem heppn-
ast hefur eins og best veröur
kosiö. Riður landinu ekki lltiö á,
þvi að efnahagslif þess og at-
hafnalif hefur verið i molum.
Uppbygging skurðarins og
stækkun hefur notið stuðnings
Alþjóðabankans og Japana, og
er ætlað að fyrsta áfanga henn-
ar ljúki ekki fyrr en árið 1980.
Framtfðarsýnin er sú, aö risa-
oliuskipin geti siglt um skurð-
inn.
Sadat forseti hefur tekið guð
sértil vitnis um þaö, að skurðin-
um muni aldrei lokað aftur.
Hvortsem skipaútgeröir heims
trúa á guö Sadatseöa ekki þá er
Súes leiðin svo miklu hagkvæm-
ari siglingaleið en suður fyrir
syðsta odda Afriku, að þeir
munu örugglega færa sér hana i
nyt i meiri mæli.
Indíra á vppleið
Indira Gandhi Sanjay
sonur hennar og sonar-
sonurinn.
Indira Gandhi, fyrr-
um forsætisráðherra
Indlands, verður að
likindum borin sökum
um spillingu i stjórnar-
tið sinni. — En séð með
augum andstæðinga
hennar kemur sú
ákæra nokkuð seint
fram.
Henni hefur þegar tekist aö
vinna sér aftur of mikið af sinu
fyrra fylgi og vinsældum, aö
þeirra mati.
Spillingarákærurnar snúast
um tvennt: 1 öðru tilvikinu er
um að ræða laumuspil og
meinta mútuþægni, þegar
franskt oliuvinnslufyrirtæki
fékk samning tii leitar að oh'u
nærri Bombay. — I hinu tilvik-
inu er um að ræða meinta mis-
notkun Gandhi á 104 jeppabif-
reðum þess opinbera, sem
flokksmenn hennar fengu til af-
nota I kosningabaráttunni.
Nýjar vinsældir.
Sérstök rannsóknarnefnd hef-
ur i þrjá ársfjóröunga unnið aö
þviað útrýma spillingu og mis-
beitingu valds I Indlandi frá
þeim tima, sem neyöarástands-
lögin giltu undir stjórn Indíru
Gandhi. bau voru sett 1975, en
afnumin i mars í fyrra, þegar
Indira Gandhi og Kongress-
flokkur hennar töpuðu mjög
óvænt meirihluta sinum meöal
kjósenda. beim kosningum
haföi hún þó frestaö i mánuð I
von um að bæta stöðu sína.
Rannsóknarnefndin hefur
yfirheyrt hundruö vitna og hef-
ur nú skilað rikisstjórninni
tveim skýrslum, þar sem koma
fram margar ásakanir á hendur
Indiru. Meða annarstvenn brot
á stjórnarskránni.
En formleg ákæra tekur
ennþá ekki til annars en þeirra
tveggja tilvika, sem hér að
framan er getið. Mega þau þó
heita smámunir i viðmiðun við
þaö, sem viðgengist hefur á Ind-
landi.
Enda er hreint ekki vist, að
yfirvöld treystist til að sækja
Indiru til saka fyrir þessi brot.
Indira, sem fyrir ári var álitin
hafa beðið endanlegt skipbrot i
indverskum stjórnmálum, hef-
ur með vorinu unnið slika sigra
i ýmsum kosningum, aö hún
getur aftur heitiö leiöandi afl I
stjórnmálalifinu. Tvimælalaust
eru hún öflugasti stjórnarand-
stæöingurinn. Vinsældir hennar
eru aftur orönar slikar, aö veröi
henni varpaö i fangelsi má heita
tryggt aö hún fái á sig pislar-
vættisstimpil.
Búmerang
Af þvi gæti leitt upplausnar-
ástand með uppþotum og mót-
mælum alþýðunnar. Slik mál-
sókn gæti eins og búmerang,
kastvopn Astraliunegra, snúiö
við oghittstjórnina sjálfa fyrir.
Má segja nú þegar, aö ásakan-
irnar á hendur Indiru hafi veriö
hálfur sigur hennar. yfir and-
stæöingum sinum.
Fullansigurfær hún ekki unn-
ið fyrr en þann dag, sem hún
tekur viö forsætisráðherra-
embættinu aftur, ef hann ein-
hvern tima rennur upp. bað er
hreint ekki útilokað þótt hún
veröi ef til vill að biða fimm ár
eftir næstu kosningum til þess.