Vísir


Vísir - 30.06.1978, Qupperneq 4

Vísir - 30.06.1978, Qupperneq 4
FERÐALÖG UM HELGINA ÚTIVIST Frá t'tivist er þaö aö frétta þessa helgi. aö tvær helgar- ferðir veröa farnar og tvær stuttar ferðir. Lagt verður af stað i helgar- ferðirnar i kvöld. önnur ferðin verður i' Þórsmörk og er þetta fyrsta Þórsmerkuferðin sem fariner i sumar. Farið verður i Þórsmörk um hverja helgi það sem ef tir er sumars. Gist verður i tjöldum i skjólgóðum skógi i Stóraenda sem er i hjarta Þórs- merkur. Þaðan eru svo göngu- leiðir i allar áttir við allra hæfi. Hin helgarferðin verður d Ei- riksjökul. Tjaldað verður I Hvitárdrögum undir Eiriks- jökli. Auk göngu á Eiriksjökul verður farið i Surtshelli og Stefánshelli. Fararstjórar verða þau Sól- veig Kristjánsdóttir i Þórs- merkurferöinni og Erlingur Thoroddsen i Eiriksjökuls- ferðinni. Þátttökugjald i ferðirnar er kr. 8600 en ódýrara fyrir félagsmenn. Stuttu ferðirnar veröa farnar á sunnudaginn. Fyrri ferðin verður farin kl. 10.30 og er það gönguferð á Hengil. Farið verður á hæsta tind hans. Sem nefndurerSkeggioger hann 803 metrar. 1 seinni ferðina verður lagt kl. 13 og er það létt göngu- ferðum Hengladali sem er mjög skemmtilegt útivistarsvæði jafnt sumar sem vetur. Þar er mikill jarðhiti hverir og heitur lækur sem hægt er að baða sig i. Þá eru þar einnig ölkeldur. ÞJH FERÐA- FÉLAGIÐ Hjá Ferðafélaginu fregnuöum við aö farið yrði i tvær helgar- ferðir og fjórar dagsferöir. 1 kvöld verður lagt af stað i helgarferðirnar. Farið verður i Þórsmörk og að Hagavatni og dvalið á þeim stöðum fram á sunnudag. Við Hagavatn verður gist i litlu húsi sem ferðafélagið á þar og ef þdtttaka veröur mik- il gista sumir i tjöldum. I Þórs- mörk verður einnig gist i húsi Ferðafélagsins þar. Ekki hefur endanlega veriö ákveðið hver verður fararstjóri i Þórsmerkurferðinni ep i ferð- inni að Hagavatni verður Finn- ur Fróðason fararstjóri. Þátt- tökugjald i helgarferöunum er kr. 9000. Á morgun verður farið I tvær dagsferðir. Kl. 13 veröur lagt i næst siðustu gönguna á Vifilsfell sem Ferðafélagið hefur valið fjall ársins. Þess má geta að þeir sem ganga fjalliö fá er upp er komið viðurkenningarskjal til minja um gönguna. Annað kvöld kl. 20 verður farið i næturgöngu á Skarðs- Ungt og friskt fólk i einni af ferðum Útivist- ar. heiði ef veðriö veröur gott og verið þar við sólarupprás. Á sunnudag verður einnig far- ið i tvær feröir. Fyrri feröin hefst kl. 9 og verður farið um söguslóöir Borgarfjarðar og verður komið á helstu staði sem drepið er á í Sturlungu, Eglu og fleiri fornsögum. Fararstjóri verður Oskar Halldórsson lek- tor. Seinni feröin á sunnudag verður farin kl. 13 og verður það siðasta ferðin á Vifilsfell sam- kvæmt áætluninni um fjall árs- ins. Þettaer 15. ferðin sem farin er á Vífilsfell þetta árið. Þess má geta að engan fyrir- vara þarf að hafa á þvi að bregla sér I dagsferðirnar. —ÞJH Þytur í pilsum og rifrildi um ástir — Nemendaleikhúsið sýnir ítalskt gamanleikrit í Lindarbœ ..Leikritiö gerist I litlu itölsku sjávarþorpi, og fjallar aöallega um ástir og ýmiss konar mis- skilning I tengslum viö þær” sagöi Stefán Kaldursson, er viö ræddum viö hann um leikritiö „Pilsaþytur”, sem Nemenda- leikhúsiö frumsýndi nýlega f Lindarbæ en Stefán þýddi leik- ritið. „Pilsaþy tur” er italskt gamanleikrit skrifað á átjándu öld, og heitir höfundur þess Carlo Goldoni. ,,1 sjávarþorpi þessu stundar allur karl- peningurinn sjóinn en konurnar gera litið annaö en aö biöa þess aö þeir komi aftur að landi” hélt Stefán áfram. „Þetta kemur þvl talsvert inn á stöðu konunnar á þessum tima. Konurnar i þorpinueiga ekki annarrakosta völ en aðkomasti hjónabandog gengur þvi allt Utá það aö reyna að krækja sér i eiginmann. 1 kringum þaö spinnst siöan endalaust rifrildi og alls kyns misskilningur. Þrátt fyrir öll rifrildin er mjög létt og skemmtilegt yfir leikritinu”. Tólf nemendur útskrif- ast úr rikisleiklistar- skólanum Leikrit þetta er lokaverkefni fjóröa bekkjar S i Rikisleik- listarskólanum og munu nem- endurnir útskrifast þegar sýningum lýkur. Þátttakendur eru tólf talsins, þau Margrét ólafsdóttir, Tinna Gunnlaugs- dóttir, Gerður Gunnarsdóttir, Hanna Karlsdóttir, Ragnheiður Arnardóttir, Kristin Kristjáns- dóttir, Björn Karlsson, Andrés Sigurvinsson, Gunnar Rafn Guðmundsson, Emil Guð- Nemendaleikhúsiö frumsýndi nýlega italska gamanleikritiö „Pilsaþy tur” eftir Carlo Goldoni. Fjallar þaö aö sögn Stefáns Baldurssonar, þýöanda leikritsins, um ástir og ýmiss konar misskilning I litlu itölsku sjávarþorpi. Mynd GVA mundsson, Sigfús Pétursson og Þröstur Guðbjartsson. Leik- stjóri er Þórhildur Þorleifsdótt- ir, ogleikmyndogbúninga geröi Messiana Tómasdóttir. Leik- ritið verður sýnt I Lindarbæ fram eftir sumri eftir þvi sem aðsókn leyfir. Næsta sýning verður á sunnudagskvöld klukk- an hálfniu. AHO IITISAMKOMA ARSINS Fyrsta stóra Utiskemmtunin i ár fer fram núna um helgina áMelgerðismelum iEyjafiröi. Hefst skemmtunin i dag og lýkur henni á sunnudaginn. Það er ungmennafélag Eyjaf jaröar sem stendur fyrir þessari skemmtun. Skemmtunin er kölluð „EIN MEÐ ÖLLU” vegna þess að á henni gerist stöðugt eitthvaö fyrir alla. Geysilegur fjöldi skemmtikrafta hefur verið fenginn til þess að sjá um að allir skemmti sér og munu á meðal þeirra sem eru á leiðinni á hátiöina vera Brunaliðiö, Halli og Laddi, Bjarki Tryggvason og Manna- korn svo einungis nokkrir þeirra séu nefndir. A samkomusvæðinu hafa verið skipulögð tjaldsvæði og hreinlætisaðstöðu hefur veriö komið upp. Búist er við geysi- legum fjölda á þessa Uti- skemmtun. Aætlunarferðir verða milli skemmtisvæöisins og Akureyrar. Aögöngumiöi aöútiskemmtuninni kostar kr. 7000ogfer veröið stiglækkandi eftir þvi sem liður á hátiöa- höldin. Það er óhætt að segja að á Melgerðismelum gerist alltaf eitthvað fyrir alla allan sólarhringinn nú um þessa helgi. Magnús Jóhannesson viö nokkrar mynda sinna. Málverkasýning í Eden Magnús Jóhannesson opnar vatnslitum. málverkasýningu I blóma- skálanum Eden I Hverageröi I dag. Magnús hefur haldið eina einkasýningu áður og auk þess tekið þátt I tveimur samsýning- um. A þessari sýningu sýnir Magnús 40 landslags og sjávar- myndir, málaðar með pastel og Magnús sagðist hafa málaö nokkrar myndir um árabil i fri- stundum sinum og sótt nám- skeið i teiknun og málun hjá Handiða og myndlistaskólan- um. Sýningu Magnúsar lýkur þann 9. júli n.i. —ÞJH Menningardagarnir hafnir í Eyjum Menningardagar sjómanna og fiskvinnslufólks „Maöurinn og hafiö ’78” hófust I Vest- mannaeyjum I gær og munu þeir standa yfir helgina. Svefnpokapláss eru þegar til reiðu i skólum bæjarins fyrir þá sem ætla að drifa sigtil Eyja, og næg tjaldstæöi eru i Herjólfsdal. Eldunaraöstaöa er i skólunum en þeir sem ætla að notfæra sér svefnpokapláss veröa að hafa með sér vindsæng eða aðra dýnu. Daglegar ferðir eru til Vestmannaeyja með Flugfélagi Islands sem flýgur fjórum sinn- um á dag og með ferjunni Herjólfi frá Þoriákshöfn klukk- an hálftvö daglega en rúta fer til Þorlákshafnar frá Umferðar- miðstöð klukkan hálf eitt. Ýmislegt veröur mönnum til skemmtunar á Menningardög- unum.þar á meðal visnasöngur, leiksýningar, kór- og lúðrasveitartónleikar, mynd- listarsýningar, dansleikir og fjölbreyttútidagskrá. Þá verður haldin ráðstefna á vegum verkalýðsfélaganna og sveitar- félagsins og nefnist hún „Rétt- urinn til vinnu — Gegn atvinnu- leysi — Réttur til menningar- lifs.” Þátttakendur i henni veröa fulltrúar Sjómannasam- bandsins og Verkamannasam- bandsins, fulltrúar Menningar- og fræðslusambands alþýðu frá Norðurlöndum, bæjarstjórnar- menn og gestir frá vinabæjum Vestmannaeyja á Norðurlönd- —AHO Sýningunni ó Amerískum teikn- ingum lýkur á sunnudaginn I tilefni Listahátiðar kom hingað til lands sýning á ameriskum teikningum 1927-1977. Sýningin er i Lista- safni tslands og hefur staöiö y fir frá 4. júni en henni lýkur n.k. sunnudagskvöld. Þessi sýning á bandariskri myndlist er frá listasafninu Minnesota Museum of Art. Er þetta farandsýning sem á að fara viða um lönd og er tsland fyrsta landiö sem hún hefur við- komu. Fram til þessa hefur ein yfiriitssýning á bandariskri myndlist komið til landsins og var hún i Listasafni tslands árið 1959. Sú sýning var einnig far- andsýning og þótti mikill við- burður þar sem hún spannaöi 185 ára timabil i bandariskri myndlist. Sýningin næryfir 50ára tíma- bil i bandariskri listasögu. Mik- illar fjölbreytni gætir i þessum myndum bæði stefnum og stil enda við þvi aö búast þar sem listamennirnir erufæddirá ára- bilinu 1867-1949, Selma Jóns- dóttir forstööumaður Listasafns tslands segir m.a. i sýningar- skrá að myndirnar á sýningunni hafi verið valdar af mikilli þekkingu og smekkvisi. Fyrir valinu hafi orðið teikningar gerðar i ýmis efni og með þvi væri sýnt i hnotskurn myndlist og listastefnur þessarar stór- þjóðar á fyrrgreindu timabili. Forstöðumaöur Minnesota Museum of Art segir um drátt- listina i sömu skrá: ,,... engin listgrein getur á sama hátt og dráttlistin gefið mynd af banda- riskrilistsiöustufimmtiu árin... Engin listgrein er eins nátengd sköpunareðli listamannsins. Hún endurspeglar og markar nýjar stefnur. Hún er sjálfstæð og óháð hefur þúsund andlit i margbreytileik sinum ögrar kreddum er óbundin af hefðum. Hún opnar sýn til tilfinninga og stefnumiða: hún leiðir i ljós for- tið og nútið: hún er formáli morgundagsins.” Sýningin er opin i Listasafn- inu i dag til kl. 16 en um helgina til kl. 22. Sýningunni lýkur á sunnudagskvöldið.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.