Vísir - 10.07.1978, Síða 2
r*.
2
Mánudagur 10. júli 1978 visrn
¥ ISIR
mP
í ■ •* a.'* 1. •'
Ætlar þú að ferðast innan-
lands í sumar?
Hallgrimur Valsson, skrifvéla-
virki: Já, ætli það ekki. Ég ráð-
geri aö fara yfir Sprengisand og
siðan i Fljótin.
Sveinfriður Guðmundsdóttir,
starfsstúlka: Ætli maður geri þaö
ekki. Ég er að hugsa um að fara
vestur á Snæfellsnes.
Július Gislason, sjómaður: Nei,
ég er alveg ákveðinn i þvi að gera
það ekki.
Sveinn Konráðsson: Maður gerir
nú mest litið af þvi, kannski þó
eitthvað um verslunarmanna-
’ helgina. Ég hef ekki ferðast mikið
um Island.
Sigriöur Theódórsdóttir, húsmóö-
ir: Ég geri ráð fyrir aö feröast
eitthvaö innanlands i sumar. Ég
er aö hugsa um að fara norður og
svo sér maður bara til.
Þaö var mikiö rallaö á Húsavfk á laugardaginn.
Húsavíkurrally:
SIGURVEGARARNIR
ÓKU Á ALFA ROMEO
Ladabiinum var ekki breytt fyrir
dóttir uröu samt i 2. sæti.
keppnina á nokkurn hátt en þau Arni E. Bjarnason og Dröfn Björns-
Saab 96/sem Garöar Eyland
og Gunnar Gunnarsson óku,
var i þriöja sæti.
Húsavíkurra llið þótti
takast með ágætum, en það
fór fram á laugardaginn.
Keppnin hófst klukkan 10
um morgunin, er sýslu-
maður Þingeyinga ræsti
keppendur og voru það 13
bílar, sem mættu til leiks.
Sigurvegararnir eftir frá-
bæran akstur voru Sigur-
jón Harðarson og Sigurður
Jörundsson á Alfa Romeo
Tl 1300 með 18.38 mínútur í
refsistig.
I ööru sæti voru Arni E. Bjarna-
son og Dröfn Björnsdóttir á Lada
1200 station með 19.45 min. i
refsistig og haföi bflnum i engu
verið breytt fyrir keppnina. Sýnir
það að hægt er að ná góðum
árangri i ralli á venjulegum bil-
um. 1 þriöjasæti urðu þeir Garðar
Eyland og Gunnar Gunnarsson á
Saab 96 með 22.03 minútur i refsi-
stig. Þeir vorumeð rásnúmer 13,
en þrátt fyrir þessa tölu henti þá
ekkert umtalsvert óhapp.
Verölaun voru afhent á dans-
leik i félagsheimilinu á Húsavik
um kvöldið og þar voru einnig
veitt sveitarverðlaun og fékk
Saab-sveitin þau.
Fjórir bilar hættu keppni vegna
bilana og var þar á meðal hinn
nýi Rally-Skodi Sverrir ólafsson-
ar, sem fékk stein i bensintank-
inn. Tveir bilar frá Húsavik tóku
þátt i keppninni en annar varð að
hætta vegna bilunar i girkassa.
Hinn varð 7. i röðinni.
Þeir félagar i Bifreiðaiþrótta-
klúbbi Reykjavikur, sem tóku
þátt I keppninni þakka félögum i
Bifreiðaiþróttaklúbbi Húsavikur
og öðrum sem aðstoðuðu við
keppnina frábært starf og
skemmtilega keppni. Vonast
Reykvikingar jafnframt eftir að
sjá menn að norðan oftar meðal
þátttakenda, þegar rallikeppni
fer fram. —SG
Rally-Skodinn, sem margir áttu von á aö yröi meö þeim fyrstu.varö
aö hætta keppni.
TVÖ HUNDRUÐ OG ÁTTATÍU ATKVÆÐA SIGUR
Spakvitrir pólitiskir atvinnu-
menn, sem almenningur hefur
hafnaö, haida þvi fram aö siö-
degisblööin, eöa öllu heldur svo-
nefnd siödegisblaöamennska,
hafi ráöiö úrslitum kosning-
anna. Þetta kemur manni
spánskt fyrir sjónir, einkum
þegar þess er gætt, aö aöeins
einn flokkur var i framboöi fyrir
annaö siödegisblaöiö — Dag-
blaöiö, en enginn i framboöi
fyrir hitt. Aftur á móti voru
fjögur blöö I fullum gangi fyrir
fjóra aöalflokkana, sem buöu
fram I kosningunum. Ekki sást
á málflutningi þeirra blaöa, aö
stórir sigrar ættu aö fylgja I
kjöIfariö.-Svo dæmi sé tekiö má
nefna, aö Þjóöviljinn fór sér
óvenju hægt, og svivirti næstum
engan, enda var hann upptekinn
viö að koma samningunum i
gildi, þrátt fyrir niðurstöður
helsta stjórnarflokks borgar-
innar. Morgunblaöiö geröi sér
fyrst og fremst tiörætt um inn-
rætingu, en kannski hefur þvi
ekki veriö trúaö, enda var um
þetta leyti veriö aö bera siöasta
bindi Ijóöasafns frá AB inn á
fjögur þúsund heimili I landinu,
sem staöfestiaö innrætingin var
i lagi. Alþýöublaöiö kom varla
fyriraugu nokkurs manns, enda
hefur endurreisn þess tafist
nokkuö — samt uröu nú Alþýðu-
flokksmenn sigurvegarar I
kosningunum — þeir einu. Tim-
inn gerði sér tiöræddast um
Auöhumlu aö vanda, en þaö
dugöi ekki til, þvi aö nú sveik
bændafylgiö Framsóknarflokk-
inn I fyrsta sinn. Þetta er taliö
hér upp tilað sýna, aö bæöi eru
blöö misgefin til pólitiskrar bar-
áttu, og næsta atkvæðalltil um
vinsældir og áhrif.
Hvaö siödegisblööin snertir er
dæmiö um Dagblaöiö sönnun
þess, aö þaö hefur bókstaflega
engin pólitisk áhrif. Dagblaöiö
veit ekkert um pólitik frekar en
hiö merka rit Samúel, og þegar
þaö hefur bein afskipti af þeim,
færir þaö flokki sinum tvö
hundruö og áttatiu atkvæöi.
Stjórnmálaflokkurinn var hinn
sérlegi pólitiski fulltrúi Dag-
blaösins i þessum kosningum.
enda birtust þar heilslður um
flokkinn dag eftir dag fyrir utan
fjölda kjallaragreina, en at-
kvæöin uröu sem fyrr segir um
tvö hundruö og áttatiu talsins.
En Dagblaðinu þykir hólið
gott, þegar þvi er kennt eöa
þakkaö, aö svona fór i kosning-
unum. Þaö er aö þvi leyti eins og
sextug meykerling, sem sagt er
upp i opiö geöiö á aö geti varla
veriö meira en fertug. Sann-
leikurinn er sá, aö menn kunna
sáralltil skil á tapi sinu og sigr-
um 1 pólitik, og auðveldast er aö
kenna þaö einhverjum úti I bæ,
eins og siödegisblööunum. Þrátt
fyrir efnahagserfiöleika liefur
fráfarandi rikisstjórn tekist aö
halda einskonar góöæri i land-
inu meö mikilli vinnu og mikl-
um peningum. Jarmur og
handapat andstæöinga hefur
aldrei fleiri hlustendur en ein-
mitt á slikum alvörulausum
timum. Tvö hundruö milna
landhelgi er t.d. mál, sem engu
skiptir I kosningum, af þvi kjós-
endur hafa vegna mikillar at-
vinnu og mikilla peninga, efni á
þvi aö sprella svolitiö.
En Dagblaðiö er fullt af drýg-
indum yfir þvi að hafa einhverju
ráöiö um úrslit kosninganna. Aö
eigin sögn er þaö þá ekki lengur
eins óháö og þaö þóttist vera.
Kannski þeir hjá Dagblaöinu
: telji aö kjallaragreinar þess séu
meö þeim áhrifamætti geröar,
aö þær ráöi bókstaflega örlög-
um þjóöar. Kannski væri rétt aö
spyrja Dagblaöið, fyrst þaö
ivann kosningarnar, hverjar
lausnir þaö leggur til aö kosn-
ingum loknum. Varla getur ver-
iö nóg fyrir hiö viröulega siö-
degisblaö aö vinna kosningar.
Þaö veröur lika að vera viö þvi
búiö aö vinna sigurinn, svo aö
hiö pólitiska samhengi I skrifum
’ blaösins stansi ekki viö gagn-
rýnina eina. En auövitað hefur
Dagblaöiö engar lausnir. Þaö
gapir bara upp I vindinn meö
samsafn nesjamanna I kjöll-
urum og tvö hundruö og áttatiu
atkvæöa afrakstur, þar sem þaö
beitti sér af alvöru I pólitikinni.
Svarthöföi.