Vísir - 10.07.1978, Blaðsíða 13
v *■ ■ *V
,,7 / ,\*. **“+&*
Mánudagur 10. júli 1978
Fiat X 1/9: „ekta” sportbill, með allt niður I sjö lltra eyðslu á hundraðið og bægtað taka þaktoppinn af og setja I farangursgeymsluna.
ir og hastir, eins og oftast
var áöur, og nú orðið er
lagt meira upp úr þægind-
um en áður var.
Tökum sem dæmi Fiat
Xl/9. Þetta er tvímæla-
laust „ekta" sportbill,
með vélina í miðjunni, eins
og kappakstursbíll, og
aksturseiginleikarnir í
kröppum beygjum stand-
ast samjöfnuð við marg-
falt dýrari sportbíla. Hins
vegar er vélaraflið ekki á
við það, sem gerist i dýrari
sportbilum. Vélin er „að-
eins" 1.3 lítrar að rúmtaki,
hestöf lin 73, en vegna þess,
hve bíllinn er léttur og lág-
ur, er hámarkshraðinn 170
kílómetrar á klukkustund
og viðbragðið um 13 sek-
úndur úr kyrrstöðu upp í
hundrað.
Vegna þess, hve bíllinn
er lítill, er eyðslan litil, og
vélin er hin sama og í Fiat
128, þannig, að þetta er
ekki bíll, sem sligar buddu
eigandans, en býður þó upp
á eiginleika, sem aðeins
„ekta" sportbíll getur búið
yfir. Engu að síður hefur
enginn svona bíll sést hér á
götunum, en hér er hins
vegar töluvert af mun dýr-
ari og eyðsluf rekari
„dreka"-tryllitækjum,
sem margir hverjir geta
vart talist meira en
tveggja manna bilar, þrátt
fyrir alla stærðina og
þyngdina.
Ekki þannig, að hér sé
verið að amast við þessum
bilum. En það er eins og
vanti inn í myndina þá bíla,
þar sem aksturseiginleikar
eru meira metnir en
„hrátt" vélarafl.
Þótt Fiat Xl/9 hafi hér
verið nefndur, vegna þess,
að hann er einna ódýrastur
og einfaldastur af „ekta"
sportbílum á markaðnum,
er til mikið úrval af sport-
bilum, sem eru aðeins dýr-
ari og mun kraftmeiri, en
þó engir eyðsluhákar.
Sem dæmi má nefna
Triumph TR 7, þar sem
þægindi og rými fyrir þá
tvo, sem í hann komast,
eru mjög ríkulega úti látin.
Og fyrir þá, sem hafa
gaman af opnum bílum, þá
sjáldan, sem viðrar fyrir
þá hér á landi, má nefna,
að eina gerðin, sem enn er
framleidd af Volkswagen-
bjöllunni í Vestur-Þýska-
landi, er 1303-blæjubíll.
Og Fiat X 1/9 er ekki að-
eins ekta sportbíll, hvað
smertir aksturseiginleika
og álla gerð, heldurer hægt
að taka af honum þakið og
setja það i „skottið", sem
l
er að framan. (Það er
önnur farangursgeymsla
að aftan).
Og þeir, sem eiga erfitt
með að sætta sig við að
geta aðeins tekið með sér
einn farþega, geta hugað
að Matra Simca Bagheera,
þar sem þrír geta setið hlið
við hlið.
Þrátt fyrir vaxandi
framboð af „hálf"-sport-
bílum, sem eru soðnir upp
úr fólksbílum, og þakið
lækkað eða haft aftursleikt
til þess að fá fram sport-
legri línu, hefur gengi
„ekta" sportbíla aldrei
verið meira austan hafs og
vestan, kannski vegna
þess, að þrátt fyrir sport-
legt útlit „coupé"-bilanna,
eru þessar linur orðnar svo
algengar, að ekkert nema
„ósvikinn" sportbíll getur
uppfyllt óskir þeirra, sem
hafa áhuga á sportbilum.
Dæmi um þetta er það,
að Porsche 928 skuli hafa
verið valinn bíll ársins i
Evrópu.
I Bandaríkjunum harðn-
ar samkeppni sportbila-
framleiðenda stöðugt.
Hér á bílasiðunni hefur
verið sagt áður frá De
Lorean DMC-12 sportbíl-
um, sem þar kemur senn á
markað, og nefna mætti
fleira nýja bíla, sem þar
munu koma á markað á
næstunni.
CHRYSLER
m>Ki
fóIfökull hf.
Ármúla 36 - 84366
Sölumenn Chrysler-sal 83330/83454.
SIMCA 1508 er bíllinn sem farið hefur sigurför allt
frá því að hann var kjörinn bíll ársins 1976 og varð
fyrstur í næturrallinu í okt. 1977.
Þetta er bíllinn sem vandlátir bifreiðakaupendur
vilja eignast.
Fimm dyra framhjóladrifinn fjölskyIdubíll.
MARGFALDUR
SIGURVEGARI!
Lótið
okkur
sjó um
að smyrja
bílinn
reglulega
VW 1200
Golt
Derby
Passat Varjant
Passat
Auói
oooo
Audi 80
Audi 100
Audi 100 Avant
OPIÐ FRÁ KL. 8-6.
HEKLAhfi
Smurstöð
Laugavegi 172
— Simar 21240 — 21240.