Vísir


Vísir - 26.07.1978, Qupperneq 11

Vísir - 26.07.1978, Qupperneq 11
Hækkanir bráða- birgðarikisstjórnarinn- ar Margir Sjálfstæðismenn eru standandi hissa á hækkunum þeim sem dunið hafa yfir eftir kosningar. Vefst það mjög fyrir mönnum að fá heila brú i það hvað sjálfstæðismönnum I rikis- stjórninni gangi til með þvi að taka á sig slikar hækkanir i stað þess að eftirláta væntanlegri stjórn slik verk. Hafa menn helst skilið málið svo, að þessar ráðstafanir séu beinlinis lifsnauðsynlegar og sé rikisstjórnin fyrst og fremst að svara þeirri ábyrgð sem á henn- ar herðum hvili. A hinn bóginn er ekki hægt aö verjast þeirri hugsun, aö ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins telji, að rikis- stjórn verði ekki mynduð án þátttöku Sjálfstæðismanna og sé þvi eins gott aö reyna að halda þjóöarbúinu i horfinu svo verkefni nýrrar rikisstjórnar veröi henni ekki of erfiö. Fundurinn i kvöld myndin þarfnast ekki skýringar. 1 kvöld efnir Heimdallur til fundar um stöðu Sjálfstæðis- flokksins i nútið og framtið. A þessum fundi munu m.a. sitja fyrir svörum Geir, Gunnar og Aibert auk fleiri forystumanna. Er ekki aö efa aö heitt verður i kolunum og vekur athygli, að i auglýsingum um fundinn er ein- ungis SJALFSTÆÐISFÓLKI boðið tii hans og er blaðinu kunnugt um, að til stóð að hafa meðþvi nákvæmt eftirlit hverj- ir kæmu þótt frá þvi hafi verið horfið. -ÓM/Gsal. • . rn • _ ;_;_ vXSllt Miðvikudagur 26. júli 1978 Sjálfstæðismenn tala mikið saman þessa dagana og reyna for- ystumenn mjög að styrkja stöðuna eftir kosningaósigrana. Einkum munu þeir skrafhreifir Geir Hallgrimsson og Gunn- ar Thoroddsen að ógleymdum Albert Guðmundssyni. Hefur Geir nú nýverið haldið fundi með stiórnum hverfafé- laganna i Reykjavik og einnig stjórnum ýmissa félaga i þvi skyni að leyfa fólki að „blása út”. Er Geir sagður vera búinn aö áttasig á veikri stöðu sinni þótt menn telji ekki að timi um- skipta i formannssætið sé kom- inn enda hefurekki verið bent á annan i Geirs stað. Gunnar Thoroddsen hefur mikið „snúið ski'funni” siðustu vikur og boðað menn á sinn fund. Sækist hann af fullum krafti eftir varaformannssætinu og formanni þingflokks. Þá hef- ur hann fullan hug á ráðherra- embætti ef til kemur. A þing- flokksfundi Sjálfstæðisflokksins isiðustuviku varætlun Gunnars að formaður þingflokks yrði kosinn eins og venja er á fyrsta fundi eftir kosningar. Var hon- um tjáð að sllkt kæmi ekki til greina. Að visu kæmi til greina að hann yrði áfram formaður þingflokksins en þá með þvi skilyrði, að hann sæktist ekki eftir ráðherraembætti og gæfi varaformannssætið eftir. Það væri þvi ekki hægt að útkljá málið fyrr en ljóst væri hvort Sjálfstæðisflokkurinn tæki þátt i stjórn. Gunnarsmenn i þing- flokknum Eins og sakfr standa bendir allt til að Gunnar sé undir i þingflokknum. Hinn harði Gunnarskjarni þar sem eru þeir Þorvaldur Garðar, Pálmi á Akri, Friðjón Þórðarson og Oddur ólafsson stendur óbifað- ur. Þá koma hinir „sjálfstæðu” Sjálfstæðismenn, Albert Guð- mundsson og Jón Sólnes, sem Blaðamennirnir Gunnar Salvarsson og Oskar Magnússon skrifa: Oft kemur óveður í endaðan þey HÉR SEGIR AF SJÁLFSTÆDISFLOKKI erfitt er að segja nokkuð ákveð- ið um. Um nýliðana, Eggert Haukdal, Jósef Þorgeirsson og GuðmundKarlsson er ekki hægt að fullyrða og Lárus Jónsson rær einn á báti en verður þó að teljast liklegur Gunnarsmaður. Staða Gunnars Thoroddsen úti á landi er EKKI talin neitt veikari en i Reykjavik og t.d. á Vestfjöröum er hannfrekar vin- sæll. Eru menn þar ánægðir með hvernig Gunnar tók á mál- um i' svokallaðri Vesturlinu og varðandi Orkubú Vestfjarða. Nú segir af Albert Af Albert Guðmundssyni er það að segja, að hann telur sitt tækifæri vera nú eða aldrei. Ætlar hann sér i varaformanns- sætið og ef hann fyndi meðbyr væri hann vis til að fara á móti Geir I formannssætið. Ekki er hægt að tala um neina Alberts- menn i' þingliðinu og ekki er Gunnar Thoroddsen talinn styðja við bakið á honum. Er ekki heldur vitað um nokkurn þingmann sem vill' Albert fyrir ráðherra. Hefur Albert haft sig allmikið i frammi, hóað i menn og lýst yfir þvi, að hann ætli að taka yfir hverfafélögin en styrkur hans er mikill i stjórnum þeirra. Eins og kunnugt er, hafa ýms- ir Sjálfstæðismenn látið I ljósi þá skoðun, að við stjórnvölinn þurfi sterkan mann. Hvort Al- bert fullnægir kröfum manna i þeim efnum skal ósagt látið, en á þaö bent, að hann var efstur á listanum i Reykjavik og flokk- urinn beið afhroð. Kann það að veikja stööu Alberts. Oti á landi eru menn alls ekki á einu máli um styrk Alberts einsog haldið hefur verið fram. Er alls óvist að staða hans sé nokkuð veik þar þrátt fyrir ein- dreginn stuðning hans við mál- efni Reykjavikur. Þykir lands- Ellert og Friðrik — tveir úr hópi yngri manna I Sjálfstæöisflokki sem hafa brett upp ermarnar. byggðarmönnum það ofur eðli- leg afstaða enda eiga þeir sliku aö venjast af sinum þingmönn- um og ætlast beinlinis til þess af þeim aö þeir láti málefni sins kjördæmis hafa forgang. Stríðandi fylkingar að sameinast? Núer komin upp sú staða, að allmargir yngri menn, sem hafa veriðsundraðir siðan i kringum Egilsstaða-þing SUS 1973 eru farnir að hittast og hyggjast gri'pa til sinna ráða. I þessum hópi eru m.a. báöir ungu borgarfulltrrúar Sjálfstæðis- flokksins þeir Davið Oddsson og Markús örn, þing mennirnir Ellert B. Schram og Fríðrik Sophusson og meðal annarra nafna má nefna Birgi Isleif Gunnarsson, Ólaf B. Thors, Ragnar Kjartansson nýkjörinn formann skipulagsnef ndar flokksins, Jón Magnússon for- mann SUS og Vilhjálm Þ. Vil- hjálmsson framkvæmdastjóra fulltrúaráðsins. Hefur hópur þessi hist all oft en ekki komiö sér niður á ákveð- inn tillögugrundvöll. Þó hafa fulltrúar hópsins verið sendir á fund Geirs Hallgrimssonar til að gera honum grein fyrir til- veru þessa hóps og að hann muni gera ákveðnar kröfur um skipan flokksmála. Það vekur nokkra athygli, að Birgir ísleifur skuli taka þátt i slikum flokkadrætti, en hann hefur forðast slikt hingað til, en þess ber að geta að hópurinn starfar við hliðina á hinni svo- kölluðu breytinganefnd, sem Birgir Isleifur er formaður fyrir. Er alls óvist hvort þessi hópur muni ná endanlega saman en reiknað er með að þeir muni gera kröfu um, að tillit verði tekið til þeirra sjónarmiða við val varaformanns. Auk þess mun það krafa hópsins, að sett verði á stofn sérstök stjórnunar- nefnd, sem starfi fram að lands- fundi. Spurningin um lands- fund i haust Þessari spurningu hafa Sjálf- stæöismenn mikið velt fyrir sér og sýnist sitt hverjum. Albert Guðmundsson sér sér hag i þvi að halda landsfund i haust á meðan óróleiki er enn i loftinu. Geir Hallgrimsson er andvigur landsfundi i haust og liklega Gunnar Thoroddsen einnig. Innan hópsins sem nefndur var áðan munu skiptar skoðanir en væntanlega meirihluti sem vill halda fundinn I haust.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.