Vísir - 28.07.1978, Blaðsíða 8
8
Eftir að Bob Marley
skaust til stjarnanna
með lagið I shot the
Sheriff hefur lögreglan í
Bandaríkjunum löngum
haft horn i síðu hans.
Nýlega var Bob að
skokka i lystigarðinum
við heimili sitt og gengu
þá í veg fyrir hann lög-
regluþjónar búnir al-
væpni. Bob kunni auð-
vitað ekki við annað en
að stoppa og spyrja
hvort nokkuð væri i
veginum, rétt eins og
það væri ekki augljóst
mál.
En lögreglumenn eru
eins og allir vita allra
vænstu skinn ef rétt er
að þeim farið og létu þvi
garparnir vopnin siga og
gerðust brosleitir.
Spurðu þeir Bob hvort
nokkuð væri nýtt á nál-
inni hjá honum. Reynd-
ar, sagði Bob, nokkru
rólegri og gaf þeim
hvorum sinn miðann að
tónleikum sem hann ætl-
ar að halda á næstunni i
Kingston's National
Stadium.
Þeim sem höfðu ein-
hverjar áhyggjur af því
að hin 13 ára gamla
Brooke Shields léki í
nektaratriði í sinni
fyrstu mynd getum við
sagt til hugarhægðar að
það verður enginn slíkur
ósómi i næstu myndinni
sem hún leikur i. Nýja
myndin heitir Wanda
Nevada og leikur
Brooke söngkonu Wöndu
að nafni sem flýr frá
Nevada í vestur með
f járhættuspilara sem
Peter Fonda leikur. Pet-
er stýrir einnig leiknum
í myndinni og er Brooke
mjög ánægð með hann.
,,Peter er fyrsti leik-
stjórinn sem er einnig
góður vinur minn," seg-
ir hún og bætir svo við af
barnalegri rökvisi ,,það
er kannski af því að
hann á sjálfur börn."
Það brakar i kjálkum
Þvi hefur verið haldið
fram að Ann Margaret
sé annt um að öllum
óviðkomandi verði hald-
ið frá upptökustaðnum,
þar sem verið er að taka
upp nýjustu mynd henn-
ar, og það helst i mikilli
f jarlægð. Þetta hefur
þótt heldur skrítið þar
sem Ann Margaret hef-
ur hingað til verið talin
hin þýðasta í viðmóti.
En ástæðan fyrir þessu
háttalagi hennar er talin
sú að Ann er svo forljót I
myndinni að hún viljl
ekki að neinn sjái hana
nema í brýnni neyð.
En auðvitað visar Ann
þessu öllu á bug og segir
að reyndar sé hún Ijót I
myndinni þar sem hún
sé óförðuð og hárið ekki
lagt að neinu ráði. En
hún ráði þvi ekki hverj-
um verði leyft að fylgj-
ast með upptökum,
f ramleiðandinn ráði þvi.
Ann var spurð að þvi
hvort hún hefði jafnað
sig á slysinu sem hún
lenti i fyrir nokkrum ár-
um. Svaraði hún ’þvl
hlæjandi að hún væri al-
veg stálhraust en ekki
laust við að vægur
skjálfti væri stöðugt í
hægri handlegg, já, og
svo brakaði stundum
hátt í kjálkaliðnum þeg-
ar hún tyggði steik.
Só sem skaut lögguna
fólk
Brooke Shields i nýrri mynd
/
' 9
f »