Vísir - 28.07.1978, Blaðsíða 17
17
VÍSER
Föstudagur 28. jdli 1978
„Iðnrekendur hafa
ekki óskað eftir
auknu eftirliti með
innflutningi"
— segir Björn Hermannsson, tollstjóri
„Vift vitum ekki hve mikil
brögft eru aft ólöglegum innflutn-
ingi varnings á EFTA-skirtein-
um, en þaft kemur einstaka sinn-
um fyrir aft vift finnum vörur sem
koma til dæmis frá EFTA-lönd-
um, en eru merktar eins og þær
séu framleiddar i Asiu,” sagfti
Björn Hermannsson, tollstjóri, i
samtaii vift Visi.
Sagöi Björn aö einhver irögö
væru aö þessum innflutningi, en
ekki mikil. Þá sagöi Björn enn-
fremur, að kæmi það I ljós, aö
vörur væru merktar eins og þær
væru framleiddar annars staöar
en toUskjöl segöu til um, þá væri
þaö rannsakaö. En samkvæmt
upplýsingum innflytjenda væri
oft ekki aö marka, þó á vörunni
stæði aö hún væri framleidd til
dæmis I Hong Kong.og væri ýmis-
legt nefnt þvi til stuðnings.
Björn kvaö teknar „stikkpruf-
ur” af innfluttum vörum, en ekki
væru nokkur tök á þvi aö kanna
allar vörur sem hingað kæmu,
það yrði aö nægja aö skoöa
pappirana, „enda almennt litið
svo á að þeir séu góðir og gildir”.
Björn Hermannsson, tollstjóri,
sagði að islenskir iðnrekendur
heföuekkióskaðeftir auknu eftir-
liti með innflutningi iðnaðarvara,
en þeir hefðu hins þegar óskað
upplýsinga um hvernig þessu
eftirliti væri háttað. Hefði Félag
islenskra iðnrekenda grennslast
„Upplýsingum var
komið til tollstjóra,
sem er hinn rétti
aðili í þessu móli",
segir Pétur Sveinbjarnarson vegna
ummœla Höskuldar Jónssonar
Félagi isienskra iftnrekenda
hefur borist bréf frá fjármála-
ráftuneytinu, þar sem óskaft er
skýringa á fullyrftingum um aft
ólöglegur innflutningur á fátnaði
eigi sér stað. Pétur Sveinbjarnar-
son sagði I samtali vift Visi i
morgun, aft bréfi ráftuneytisins
yrði svarað ( dag, föstudag.
Sagöi Pétur, aö ráðuneytið færi
þess á leit viö rikisendurskoðun-
ina að hUn kannaði þessi mál, og
þesser fariö á leit við iðnrekend-
ur að þeir láti af hendi nauðsynleg
gögn I málinu.
Pétur sagðist telja það skyldu
F.I.R. við iðnrekendur i landinu,
að koma upplýsingum um marg
umræddan ólöglegan innflutning
til réttra aðila. Það hefði verið
gert,, er fulltrúar félags iðnrek-
enda hefðu hitt tollstjóra og
starfsmenn hans að máli hinn 5.
júli siðastliðinn. Það'er áður en
nokkuð kom um máliö i fjölmiðl-
um.
Sagði Pétur, að fullyrðing
Höskuldar Jónssonar, ráð-
uneytisstjóra, um að upplýsing-
um hefði ekki verið komið á
framfæri við rétta aðila, væri þvi
alröng. „Tollstjóri er réttur aðili i
þessu máli, og þvi var beðið um
fund með honum”, sagði Pétur.
„Það kom fram hjá tollstjóra, að
dæmi eru um ólöglegan innflutn-
ing, og að sú hætta sé sifellt fyrir
hendi aö hann eigi sér stað”,
sagði Pétur ennfremur.
Að lokum sagöi Pétur, að það
Pétur Sveinbjarnarson
væri aö sinu mati aðalatriöið, að
upplýsingum værikomið til réttra
aðila, og vandséð væri, hvaöa til-
gangi útúrsnúningar um að annað
hefði veriö gert, þjónuðu. „Ráðu-
neytisstjórinn verður að gera sér
grein fyrir þvi, aö hann er þjónn
fólksins, og aö hann á ekki að
komast upp með hroka af þessu
tagi. Viðbrögö tollstjóra hafa ver-
ið til fyrirmyndar, og vonandi
verður fundin viöunandi lausn á
þessu máli innan tiðar”, sagði
Pétur Sveinbjarnarson að lokum.
—AH
Björn Hermannsson
fyrir um það hjá embætti toll-
stjóra.
Að lokum sagöi tollstjóri, aö
ekki væri ætlunin að herða eftirlit
með innflutningi iðnaðarvara
með þaö fyrir augum að koma i
veg fyrir innflutning vara frá
Asiu með ólöglegum hætti. Hins
vegar yrðu áfram teknar stikk-
prufur, og málin könnuö eftir þvi
sem tilefni gæfist til hverju sinni.
— AH
SUBARU
Til afgreiðslu strax
FRAMHJÓLADRIFSBÍLAR, sem verða — FJÓRHJÓLADRIFS-
BÍLAR
með einu handtaki inni i bílnum, sem þýðir, að þú kemst hvert sem
er á hvaða leið sem er.
SUBARU — með f jórhjóladrifi klrifrar eins og geit, vinnur
eins og hestur, en er burftarlítill eins oa fual.
SUBARU station
95 hestöfl — 1600 cc. — 975 kg. Fjórhjóladrif
Nú or Ifka hcogt að ffá
SUBARU Pickup, sem er til i allt:
94 hestöfl — 1600 cc. — 930 kg. Fjórhjóladrif.
— sparneytinn og hentugur fyrir fjölskylduna
SUBARU— fjölskyIdubíll: 94 hestöfl — 1600 cc. — 800 kg.
Fjögurra dyra — Framhjóladrif.
og SUBARU
— ffyrir þá sem vilja komast áffram
SUBARU -sportbíll: 115hestöfl—1600 cc. — aðeins800kg.
Tveir blöndungar — 5 gira kassi — örsnöggt viðbragð
Tveggja dyra — Framhjóladrif.
SUBARU
bílar með langa reynslu.
SUBARU—UMBOÐID
INCVAR HELGASÖN
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 8451D og 8451 1