Vísir - 11.08.1978, Qupperneq 10

Vísir - 11.08.1978, Qupperneq 10
10 Föstudagur 11. ágúst 1978 VISIR VÍSIH I Otgefandi: Reykjaprent h/f ' ÍFramkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. úlafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guómundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón með helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöa- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrlmsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: GyTfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. útlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8. Simar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2—4 simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuöi innanlands. Verö i lausasölu kr. 100 eintakiö. Prentun Blaöaprent h/f. Það er sitt hvoð að selja fisk og föt Forráðamenn hraðf rystihúsa á Suðvesturlandi taka nú hver af öðrum ákvarðanir um lokun fyrirtækja sinna og hafa sagt upp starfsfólki í hrönnum vegna rekstrar- erf iðleika. Allir eru þeir, sem að frystihúsarekstrinum standa, sammála um að enginn grundvöllur sé lengur fyrir starfseminni og enn einu sinni er beðið eftir þvi að vand- inn verði leystur með opinberu fé. Á það hef ur verið bent í forystugreinum Vísis síðustu daga hversu skammgóður vermir slíkar björgunarað- gerðir eru og skal því ekki farið nánar út í þá sálma að þessu sinni. í staðþess vill þetta blað benda á, að fyrirtæki í öðrum greinum íslensks útflutningsiðnaðar eru jafnvel enn verr stödd en frystihúsin um þessar mundir, þótt for- ráðamenn þeirra hafi ekki jafn hátt og frystihúsaeig- endur. Þeir vita lika að slíkur grátur er tilgangslítill, því aðekki hef ur verið venja hér á landi að stjórnvöld bjargi öðrum iðnfyrirtækjum á sama hátt og frystihúsum og f iskvinnslustöðvum, er þau komast í þrot. Þegar svo er komið, verða fyrirtæki í öðrum rekstri einfaldlega að leggja upp laupana. Til samanburðar við stöðu frystiiðnaðarins er ekki úr vegi að leiða hugann að fataiðnaðinum, Hann verður að selja útf lutningsf ramleiðslu sína á því gengi sem skráðer i bönkum landsins. Fyrir hvern dollar i söluverðmæti fær hann þvi 260 krónur, en frystiiðn- aðurinn fær aftur á móti 310 krónur fyrir hvern dollar í f isksölu á erlendan markað, þegar greiðslur úr verðjöfn- unarsjóði eru reiknaðir inn í dæmið. Innlendur tilkostnaður beggja þessara iðngreina hefur hækkað álíka mikið þannig að svipað ætti að vera komið á með þeim. Til viðbótar við þá erfiðleika, sem óraunhæft útflutn- ingsverð skapar fataiðnaðinum má benda á, að hlutfall launa í f ramleiðslukostnaði í þessari iðngrein er hér tals- vert hærra en gerist í samkeppnislöndunum, eða 30-40% hér á móti um 20% þar. Stöðugar kauptaxtahækkanir valda iðngreininni sifelldum erfiðleikum og er raunar varla hægt að gera ráð fyrir, að nokkur framleiðsla geti staðið undir síku. Kauphækkanir í fataiðnaðinum undan- farið eitt og hálft ár nema hvorki meira né minna en um 180%. Nú er svo komið að fyrirtæki í þessari iðngrein sem rekin voru með hagnaði i fyrra eru rekin með stórfelldu tapi. Þótt fataiðnaðurinn hafi hér verið sérstaklega gerður að umtalsefni, er hann aðeins eitt dæmi;því svipað er ástatt um annan útf lutningsiðnað landsmanna. I flestum greinum bætast svo ýmis sérvandamál við þá erf iðleika sem kostnaðarhækkanir og alröng gengisskráning valda. Þannig á til dæmis ullariðnaðurinn þessu til viðbótar við þann vanda að etja, að umfangsmikil framleiðsla eftir- likinga af islenskum ullarvörum erlendis er farin að valda verulegu tjóni á mörkuðum íslensku útflutnings- fyrirtækjanna. Innlendír aðilar bera þarna nokkra sök, þar sem þeir f lytja út óunnið ullarband, sem prjónað er úr í f jarlæg- um láglaunalöndum, — en framleiðslan er síðan seld á aðalmörkuðum okkar á mun lægra verði en hinar einu sönnu islensku ullarvörur. Þannig mætti lengi telja. Ekki vantar vandamálin og erf iðleikarnir blasa við, hvert sem litið er. Kjarni málsins er sá, að þótt rekstrarstöðvun frysti- húsanna sé alvarlegt mál, mega menn ekki gleyma öðr- um þáttum íslensks iðnaðar. Finna verður skynsamlegar leiðir til þess að skapa fyrirtækjunum rekstrargrundvöll og stuðla að því að öll- um þeim aðilum, sem starfa að útflutningsframleiðslu sé gert jafn jhátt undir höfði. BLÖÐIN OG FLOKKS- FORINGJARNIR Kæri Gisli. Ég sé, a& þú hefur sent mér til- skrif i Visi 3. ágúst sl., sem ég færi þér hér meö þakkir fyrir. Hér i sveitasælunni á Sjálandi fáum viö Visimeö pósti fyrst aö morgni annars dags eftir aö hann kemur á göturnar i Reykjavik. Þaö er- ástæöan fyrir þvi, aö þú færö ekki svar um hæl i blaöinu. Vonandi kemur þaö ekki aö sök. Þú byrjar tilskrifiö meö þvi aö segja, aö þér standi ekki á sama um Visi og jafnvel ekki mig s jálf- an. Þetta er gagnkvæmt. Þaö hef- ur veriö heiöur fyrir Visi aö fá greinar þinar i Helgarblaöiö. Þar sem viö erum sama sinnis i' af- stööuokkar til Visis ættum viö aö geta litiö frá einum sjónarhóli á ræðu dr. Gunnars Thoroddsens á sjáifstæöismannafundinum á dögunum og forystugrein Visis 28. júli sl., sem skrifuö var i tilefni af þvi, sem þar var sagt. Ef ég man rétt (ég hef ekki ræðutextann viö hendina) taldi dr. Gunnar, aö Sjálfstæöisflokk- urinn heföi tapaö tvennum kosningum i sumar vegna þess fyrst og fremst, aö blööin heföu ekki stutt hann af heilum hug. Þar átti hann einkum viö Morgunblaöiö og Visi. Aö auki lét hann þau oröfallaum Visi, aö Al- þýöuflokkurinn heföi þar átt meiri hauk I horni en Sjálfstæðis- flokkurinn, enda heföi Vilmundur Gylfason oröiö aö þjóöhetju á þeim vettvangi. Um þessa skýr- ingu á fylgishruni Sjálfstæðis- flokksins, má aö sjálfsögöu skrifa langt mál, en þaö gerum viö ekki aö sinni. Þaö eru ályktanir dr. Gunnars, sem eru til umræöu og viöbrögö Vísis viö þeim. En viö getum spurt sjálfa okkur aö þvi, hvort Alþyöuflokkurinn hafi ekki tekiö upp ýmis stefnumið þeirrar frjálshyggju, sem Sjálfstæöis- flokkurinn hefur veriö málsvari fyrir, en rikisstjórn Geirs og dr. Gunnars gat ekki af einhverjum ástæöum gert aö veruleika á siö- asta kjörtimabili. Aö þvi er varðar þessa skýringu á fylgishruninu sýnist mér aö -----------^ Þorsteinn Pálsson, ritstjóri, svarar hér opnu bréfi Gísla Jóns- sonar, menntaskóla- kennara, sem birtist i Vísi í síðustu viku, en tilefni þess var for- ystugrein, sem Þor- steinn skrifaði í Vísi um skoðanir Gunnars Thoroddsen á rit- stjórnarstefnu Vísis. I þessu svarbréfi segir Þorsteinn meðal annars: „Blöð mega gjarnan hafa fastmót- aðar skoðanir en rit- stjórar þeirra eiga ekki að lúta boðvaldi flokk- stjórna né heldur út- gefenda". ^ j V r Geir og dr. Gunnar séu ekki alveg á sama máli (þaö kemur vist fyr- ir). Ég man ekki til þess aö Geir hafi skellt allri skuldinni á blööin, þó veit ég aö hann hefur veriö meira en litiö óánægöur meö póli- tikina á Visi. Stjórnmála- foringjarnir mega aö sjálfsögöu skamma blööin og gagnrýna þau (þaö er hollt fyrir blööin). En þau eiga ekki aö lúta boövaldi þeirra. Þar komum viö aö ályktunum dr. Gunnars. Hanntaldi, aö Sjálf- stæöisflokkurinn ætti aö bregöast við ósigrinum meö þvi aö kref jast þess af eigendum Morgunblaös- ins og Visis, aö þeir sæju svo um, aöblöö þeirra styddu Sjálfstæöis- flokkinn undanbragöalaust. Aö- spurður sagöisthann einnig vera reiöubúinn til aö vinna aö því, aö Dagblaöiö yröi málgagn Sjálf- stæöisflokksins. t þvi sambandi var eitthvaö minnst á, aö formað- ur útgáfustjórnar þess blaös á sæti i miöstjórn Sjálfstæöis- flokksins eins og reyndar formaö- ur útgáfustjórnar Morgunblaös- ins. Dr. Gunnar gat þess, aö I borgarstjóratið hans sjálfs heföi jafnan veriö séö til þess eins og hann komst aö oröi, aö Morgun- blaðiö færi i gang nægjanlega snemma til þess aö koma kosningastarfinu i fullan gang fyrir kjördag. Ég skildi þessi um- mæli svo, aö dr. Gunnar heföi meö þeim veriö aö segja, aö Morgunblaöiö heföi lotið boövaldi hans á þeim tima. Um þaö veit ég aö sjálfsögöu ekkert þvi þá var ég strákpjakkur austur á Selfossi. Éghef áhinn bóginn ekki áhuga á aö kallast ritstjóri á blaöi, er þannig lýtur boövaldi flokksfor- ingja, hverju nafni, sem þeir nefnast. Blöö mega gjarnan hafa fast- mótaðar skoöanir, en ritstjórar þeirra eiga ekki aö lúta boðvaldi flokksstjórna né heldur útgef- enda. Uppá þau býti var ég ráð- inn, þegar Sveinn Eyjólfsson nú- verandi framkvæmdastjóri Dag- blaðsins og Ingimundur i Heklu fengu mig i mesta bróöerni aö Visi fyrir þremur árum til þess aö taka viö starfi Jónasar Kristjáns- sonar. Eins og þú manst Gisli gat dr. Gunnar ekkifellt sig viö þessa sameiginlegu ákvöröun Sveins og Ingimundar. Uppúr þvi blossuöu aftur upp átök milli hluthafa I út- gáfufélagi VIsis, sem höföu kom- íst aö formlegum sáttum um lausn sinna deilumála. Eitthvað kom Albertþar viö sögu auk dr. Gunnars og fleiri góöra manna. BORGARAFLOKKARNIR EIGA LEIKINN Þá stendur fyrir dyrum átak borgaraflokkanna til myndun- ar stjórnar,sem heföi fjörutiu og sex þingmenn á bak viö sig, og sést á þvi aö sameinaöir hafa þeir ekki tapaö miklu af þingfylgi sinu. Þrátt fyrir mikinn þingstyrk horfir þunglega um þessa stjórnarmyndun borgaraflokk- anna, og ræður þar kannski mestu, aö forustumenn þeirra hafa langt um of miklaö hinn svo- kallaöa „vanda” fyrir lands- mönnum. Hann er i sjálfu sér hvorki meiri né minni en hann hefur veriö langtimum saman, nema hvaö krónan hefur minnkaö meira en góöu hófi gegnir og hraðar en skynsamlegt getur tal- izt. Vandinn og reikni- meistararnir Aöur hefur veriö minnzt á þaö i þessum greinum aö stór hluti „vandans” lægi m.a. i hrikalegu innflutningsveröi á ýmsum nauö- synjavörum, sem stafar öörum þræöi af þvi, aö rikiö hefur sivax- andi tekjur af þessum innflutn- ingi, og á þannig beinan þátt I aö gera f jölda fólks erfitt fyrir um aö afla viöurværis. Viöurværis- kostnaöur hér stafar auövitaö ekki allur af háu veröi á innflutt- um vörum, en sá hluti hans, sem er aðeins skattheimta, ætti aö geta veriö viöráðanlegur. Og ekki fer vel á þvi aö vera óöamála um verðbólgu i þessari stjórnarráös- skrifstofu, en efla hana eftir mætti I þeirri næstu meö óhófleg- um skattaálögum á matvörur og annan neyzluvarning. Þá erumeðaltöl reiknimeistara varhugaverö, eins og fram hefur komiö af fjölmörgum dæmum, sem vegna gefinna forsenda virö- ast alveg óleysanleg, af þvi þaö vill gleymast aö atvinnuvegir eru reknir af fólki en ekki tölvum. A þetta viöbæöi um sjávarútveg og landbúnaö, en þar hafa meðaltöl- in fariö þannig meö atvinnuveg- ina, aö árlega, og stundum oftar en einu sinni á hverju ári, þarf efnahagslif þjóðarinnar aö taka sérstakar dýfur þessum atvinnu- vegum til bjargar. Þetta er raun- ar sá „vandi” sem stjórnmála- mönnum er kærastur, og þreytast þeir seint á aö vitna til talna, sem þeir eru fóöraöir á, sem sýna ótvirætt aö fyrrgreindir atvinnu- vegir eru á hausnum meöaltals- lega séö, svona annaö slagiö. Meðaltalsbúið og tölvu- stýringin Þótt viö t.d. geröum ekkert annaö I þessu landi en velta fyrir okkur „vanda” landbúnaðarins, mundi hann seint veröa leystur ef við værum stööugt reyrö i rangar forskriftir, sem byggöu á þvi aö hvertogeitt rýröarkotskyldi gefa góöan arð svo þaö héldist I byggö. Meöaltalsbúið er of litiö i út- reikningum og þess vegna gengur seint og illa aö samræma kaup- getu í þéttbýli og uppgefinn, tölvustýröan tilkostnaö I landbún- aði. Þaö er auövitaö sárt aö sjá sæmilegar jarðir fara i eyöi, og sárast aö eigandinn skuli fá litið sem ekkert fyrir þær. En erfiö- leikarnir stafa fyrst og fremst af þvi aö ekki er viöurkennt aö véla- búskapur i dag meö heyvinnu- tækjum og tankvæðingu, og hvaö þaö nú heitir, er svo fjárfrek at- vinnugrein, aö einungis stór ræktarlönd standa undir tilkostn- aöi. Af smábúskapnum leiöir svo, aö veriö er aö meta vinnu bænda og búaiiös til jafns viö tekjur af- markaörar dagvinnu verka- manna. Þannig hika ekki for- ráöamenn bænda viö aö skipa þeim á bás meö láglaunafólki ef þaö mætti veröa til aö bjarga smábúinu. Aukin tækni I landbún- aði heföi átt að vera búin að færa okkur hagkvæmnina á diskinn fyrir löngu. Rikisrekinn kapitalismi Sama meöaltalsreglan gildir einnig í frystiiönaðinum. Sama fyrirtæki á kannski þrjú frysti- hús. Tvö þeirra rekur þaö meö rokkrutapi. A einu þeirra græöir þaö. Tapfrystihúsin eru siöan lát- in ráöa feröinni hvaö snertir alla útreikninga. Svo eru frystihús rekin á stórum landssvæöum, þar sem ekkert tap er að finna. Þaö er af þvi aö þau standa ofan við upp- gefið meöaltal og þá tölvufóörun

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.