Vísir - 11.08.1978, Blaðsíða 12
Föstudagur 11. ágúst 1978 vXSlR
12
Selfoss sýninga- og
r framtíðarinnor?
— Margt bendir til þess og bœjarstjórnin stefnir að því
að það geti orðið
meö i ráðum um framtiöarþró-
un bæjarins. Jafnframt þessu
hefur verið leitast viö að hafa
alltaf nægilegt framboö bæöi á
ibúöar og iðnaöarlóöum, en
byggingarland á Selfossi er yf-
irleitt mjög gott.
Fyrir margra hluta sakir er
Selfoss tilvalin héraðsmiöstöö,
bæði hvaö viðvikur menntun,
atvinnu, ráöstefnuhaldi og þjón-
ustu og það er stefna bæjaryfir-
valda að greiöa eftir föngum
götu allra þeirra sem þangaö
vilja koma til lengri eða
skemmri dvalar, eða nýta þá
þjónustu sem bærinn hefur uppá
að bjóða.
iþrottamannvírki á Sel-
fossi.
A undanförnum árum hafa
risið margvisleg iþróttamann-
virki á Selfossi, og henta þau
mjög vel til hvers konar iþrótta-
iðkana. Hafa Selfyssingar fullan
hug á þvi að fá landsleiki og
aðra stórviðburði á sviði iþrótt-
anna til Selfoss, og má segja að
fyrsta skrefið i þá átt hafi verið
stigið með landsmóti U.M.F.t. i
sumar.
Þá henta iþróttamannvirkin
og skólahúsnæðið einnig mjög
vel til hvers konar sýningar-
halds, og hefur það meðal ann-
ars verið haft i huga við bygg-
ingu nýja húss Gagnfræðaskól-
ans.
Núna eru eftirtalin iþrótta-
mannvirki á Selfossi:
tþróttahús: A Selfossi eru i
dag tvö iþróttahús. Iþróttahús
Barnaskólans er hefur gólfflöt
8x19 metra. Það hús hefur verið
nýtt af skólum til kl. 18.00 alla
daga, en af frjálsum iþrótta-
félögum fram til kl. 11.00 öll
kvöld og allar helgar. Þetta hús
hefur ekki fullnægt þeirri þörf
sem er á iþróttahúsnæði á Sel-
fossi fyrir utan það hversu stærð
þess er óhentug fyrir iðkan
flestra iþrótta. Iþróttahús
Gagnfræðaskólans: A vetri
komanda verður tekið i notkun
nýtt iþróttahús við Gagnfræða-
skóla Selfoss. Þetta iþróttahús
hefur gólfflöt 22x44 m. ásamt
rúmgóðum áhorfendapöllum.
Þetta nýja hús er mjög fullkom-
ið og mun gjörbreyta allri að-
stöðu til iþróttaiðkana hér á Sel-
fossi, jafnframt þvi sem húsið
mun nýtasttilannarra þátta s.s.
sýninga eins og hér eru i sumar
og margskonar félagsstarfs.
Sundlaugar: Hér eru nú tvær
sundlaugar. Annars vegar inni-
laug 16 2/3 að lengd, með gufu-
baðstofu og likamsrækt. Hins
vegar útilaug 25 metra löng og
' þar er einnig útisvæði fyrir
boltaiþróttir, heit ker og tveir
heitir pottar, ásamt búningsað-
stöðu og útisturtum.
Iþróttavellir: A Selfossi eru
tveir iþróttavellir: Grasvöllur
með fullkomnum knattspyrnu-
velli, hlaupabrautum umhverfis
og aðstöðu fyrir stökk, köst og
aðrar greinar frjálsra iþrótta.
Malarvöllur sem einungis er
notaður fyrir knattspyrnu. Vell-
irnir fullnægja eftirspurn
iþróttafélaganna eftir aðstöðu.
Astand vallarsvæðisins nú er
gott.
Golfvöllur: Hér er litill 6 holu
golfvöllur og golfvellinum er vel
við haldið, en þó háir stærð hans
golfspilurum, enda golfvöllur
ekki góður fyrr en hann nær 18
holu stærð.
Landbúnaðarsýningin
Landbúnaðarsýningin hefst i
dag sem kunnugt er, og má þvi
búast við miklum fjölda ferða-
manna á Selfossi næstu daga, en
ef marka má reynsluna frá ung-
mennafélagsmótinu, þá verður
Selfyssingum ekki skotaskuld
úr þvi að leysa öll þau vandamál
sem upp kunna að koma á svo
umfangsmikilli sýningu.
Reynslan af þessum tveimur
stórviðburðum mun svo vænt-
anlega skera úr um það hvort
Selfyssingar vilja halda áfram á
sömu braut, og hvort hinir ýmsu
aðilar hafa áhuga á Selfossi sem
framtiðar sýningarbæ af þessu
tagi. Eins og er bendir allt til
þess að sú verði þróunin, að sýn-
ingar, iþróttamót og ráðstefnur
hvers konar fari i æ rikari mæli
fram á Selfossi.
—AH
Þeir óku með blaðamenn um bæinn, og sögðu frá þvi markverðasta sem þar er að gerast. Talið frá
vinstri: Þorgeir Sigurðsson, Jón B. Stefánsson, Sigurjón Erlingsson, Erlendur Hálfdánarson og Haf-
steinn Þorvaldsson. A myndina vantar þá Gest Ólafsson og Óla Þ. Guðbjartsson, sem einnig voru á
kynningarfundinum með blaðamönnum.
Bæjarstjórn Selfosskaupstaö-
ar boðaði blaðamenn á sinn fund
i fyrradag, til að kynna þá
stefnu bæjaryfirvalda að vinna
að þvi að Selfoss verði i framtið-
inni miöstöð sýninga og sam-
komuhaids. Var fundurinn með-
al annars boðaöur vegna þess aö
i dag verður landbúnaðarsýn-
ingin opnuð, og vegna þess að i
sumar var landsmót U.M.F.l.
haldið á Selfossi.
or fólksf jölgun á Selfossi
A undanförnum árum hefur
Selfoss vaxiö mjög hratt. Arið
1970, þegar gengið var frá nýju
aðalskipulagi af bænum, var
ibúafjöldi 2,397 manns, en 1.
des. 1977 voru ibúar Selfoss
3,123. Með þessu skipulagi var i
grundvallaratriðum leitast við
að mynda þéttan bæjarkjarna
umhverfis miðstöð stofnana og
skóla — þar sem Landbúnaðar-
sýningin er haldin nú.. Þetta
skipulag er nú i endurskoðun, en
þó er i meginatriðum fylgt
þeirri stefnu, sem grundvölluð
var 1970. Við gerð aðalskipulags
Selfoss frá 1970 var gerð fyrsta
félagskönnun i sambandi við
skipulag bæjar hér á landi, en
áhersla hefur ætið verið lögð á
að hafa sem flesta ibúa Selfoss
Tugir unglinga hafa isumar unnið á vegum vinnuskóla Selfossbæj-
ar, og hafa krakkarnir unnið mjög gott starf, að sögn Jóns B.
Stefánssonar, æskulýðsfulltrúa. Hér er verið að þekja blettinn fyrir
framan Gagnfræðaskólann, og ekki er annað að sjá en duglega sé
tekið tii höndum!
Listaverkasýning veröur i Safnahúsinu á Selfossi þá daga sem land-
búnaöarsýningin stendur. Hér er Sigurður M. Sólmundarson frá
Hverageröi meö eitt verka sinna sem hann var að bera inn I sýn-
ingarsalinn.
Selfyssingar hafa verið heppnir með veður I sumar, og vonandi verður svo að minnsta kosti fram vf-
ir landbúnaðarsýninguna. Hér láta nokkrir ibúar yngsta kaupstaðarins fara vel um sig i heita pottinum
við sundlaugin.