Vísir - 11.08.1978, Page 19
VISIR Föstudagur 11. ágúst 1978
23
Skeið-
keppni
í Víði-
dal
Skeiöfélagiö og Hestamanna-
félagiö Fákur gangast fyrir kapp-
reiöum á Fáksvellinum Viöidal i
Reykjavik á morgun klukkan tvö
eftir hádegi. Eru þetta aörar
kappreiöar, sem Skeiöfélagiö
stendur aö, og er aöaláhersla iögö
á sem bestan árangur i skeiöi.
Keppt verður í 250 metra skeiöi,
150 metra nýliöaskeiöi, 250 metra
folahlaupi, 350 metra stökki, 800
mstra stökki og 800 metra brokki.
150 metra nýliöaskeiöiö var tekiö
upp á siöustu kappreiöum Skeiö-
félagsins og mæltist mjög vel fýr-
ir sem góö keppnisgrein fyrir litt
reynda hesta.
Veglegir verölaunagripir eru
fyrir þrjá efstu hesta i hverri
grein og sérstakir verðlaunagrip-
ir fyrir metárangur. Tveir
farandbikarar veröa veittir, I 250
metra skeiöi veröur keppt um
farandbikar, sem Höröur G. Al-
bertsson gefur, og i 150 metra
skeiöi veröur keppt um farand-
bikar frá Arna Höskuldsyni. Flest
af þekktustu hrossum landsins
mætatilkeppni, þar á meðal met-
hafar i þeim greinum, sem keppt
veröur i, svo aö biiast má viö
mjög spennandi keppni. Tekiö er
á móti skráningum i sima 82362.
AHO
Þessi keppti i skeiði á Norður-
landamótinu, sem haldið var ný-
lega i Noregi
Frá blaðamannafundi forráðamanna Flugleiða vegna fimm ára af imelis félagsins. Sigurður Helgason forstjóri sýnir skjöid sem ferða-
málaráðherra Bahama veitti dótturfyrirtæki Flugleiða, Air Bahama, fyrir tiu ára starf í þágu ferðaiðnaðar þar i landi. Meö Sie-
urði eru á myndinni Svein'n Sæmundsson, blaöafulltrúi, Martin Petersen framkvæmdastjóri og örn O. Johnson, forstjóri.
Visismynd: JA
„Sameiningin hefur ekki
gengið með ollu ótakalaust"
Örn 0. Johnson á fimm ára afmœli Flugleiða:
// Flugsamgöngurnar
hér á landi hafa byggst
upp algerlega án rikis-
styrkja. Islensku flug-
félögin, Flugfélag Is-
lands og Loftleiðir hafa
aldrei þegið bein fjár-
framlög frá opinberum
aðilum. Þau hafa leitað
eftir og fengið ríkis-
ábyrgðir fyrir erlendum
lánum og algerlega staðið
við skuldbindingar sínar í
þeim efnum. Sum þess-
ara lána eru að fullu end-
urgreidd en afborganir af
öðrum eru samkvæmt
áætlun"/ sagði Sigurður
Helgason, einn af for-
stjórum Flugleiða á
blaðamannafundi í gær.
En um þessar mundir eru
Flugleiðir fimm ára.
// Ekki gengið
átaka laust"
örn O. Johnson sagöi aö þvi
væri ekki aö leyna aö samein-
ingin hafi ekki veriö meö öllu
átakalaus. Sumir af starfs-
mönnum félaganna heföu veriö
tregir til samstarfsins, þá ekki
sist flugmennirnir.
Við þessu heföi þó mátt búast
þar sem félögin tvö hefðu um
langan aldur veriö i harðri sam-
keppni. Þetta væru viðkvæm
mál sem erfitt væri að ræða
opinberlega en stöðugt væri
unnið að þvi aö leysa þessa
byrjunaröröugleika i samstarfi
félaganna.
1 ræöum forstjóra Flugleiöa á
fundinum kom þaö einnig fram
að nú starfar hundraöasti hver
Islendingur hjá félaginu. Auk
þeirra fjölmargir sem starfa
óbeint i tengslum við félagiö.
Þannig eru Flugleiöir meöal
stærstu atvinnuveitenda lands-
ins, jafnframt þvi aö vera ein
helsta gjaldeyristekjulind
landsmanna. En tekjur af er-
lendum ferðamönnum voru um
6.2 milljarðar á siöasta ári, en
þaö eru rúm 6% heildarverö-
mætis útflutningsins.
Samanburöur leiöir þaö i ljós
að gjaldeyristekjur vegna
ferðamanna voru i fjóröa sæti á
eftir sjávarafurðum, áli og ál-
melmi, og iðnaðarvörum. Þá
má geta þess aö samkvæmt
skattskrá Reykjavikur eru
Flugleiöir þriöji hæsti gjaldandi
i borginni, meö 138,8 milljónir i
gjöld. Skatta-og útsvarsgreiðsl-
ur starfsmanna F.lugleiöa á Is-
landi nema 780 milljónum króna
á þessu ári.
,/Sanngjörn fargjöld"
Þá kóm það fram i máli for-
ráðamanna Flugleiöa að
islensku flugfélögin og siöar
Flugleiðir hafa merkvisst unniö
aö markaösrannsóknum og i
kjölfar þeirra sett upp mismun-
andi fargjöld, svokölluö sérfar-
gjöld, sem gilda bæöi austur um
haf og til Ameriku.
1 athugun sem nýlega var
gerö á fargjöldum milli nokk-
urra borga I Evrópu kom i ljós
að fargjöld Flugleiöa voru mun
lægri en fargjöld annarra flug-
félaga á svipuðum leiöum.
Samanburöur á innanlandsfar-
gjöldum milli landa leiöir hiö
sama i ljós, en fargjöld á innan-
landsleiöum annarsstaöar á
Noröurlöndunum leiöir i ljós aö
þau eru allt aö 288.7% hærri en
hér.
„Dagamunur ítilefni
afmælisins"
A fundinum kom fram aö
Flugleiðir hyggjast i tilefni af-
mælisins, efna til getrauna-
keppni þar sem þrenn fyrstu
verðlaun veröa veitt og tuttugu
aukaverölaun. Auk þess sem
öllum Islendingum veröur boöiö
aö gerast þátttakendur i starfi
Flugleiöa meö þvi aö gerast
hluthafar. Nú þegar eru 2300
hluthafar i Flugleiðum en til
sölu veröa á næstu dögum hluta-
bréf fyrir um 300 milljónir, en
það mun vera þvi sem næst 10%
hlutafjáraukning.
Þess má aö lokum geta aö siö-
an 1975 hafa Flugleiöir veriö
reknir með hagnaði og töldu for-
stjórarnir þaö vera þvi aö þakka
aö ekki er um rikisfyrirtæki aö
ræöa.
—HL
Bfl var ekið út af veginum skammt frá Brúará f Grfmsnesi t
fyrradag. Þar voru á feröinni tveir Frakkar sem misstu vald á bfln-
um I lausamöl með þeim afleiðingum að hann hafnaði I skurði sem
þarna er við veginn.
Bill Frakkanna skemmdist mikiö en sjálfir sluppu þeir óskaddaö-
ir. A myndinni sést hvar veriö er að hifa bil Frakkanna upp úr
skurðinum. Visismynd: Eiríkur Jónsson.
ASÍ neitaði ekki viðrœðum
5 fá úthlut-
að á Hlemmi
Leiguaðstöðu á áningarstað
SVR á Hlemmi hefur verið út-
hlutað til fimm aðila af þeim
átta sem fá þar leigt, en niundi
rekstraraðili þar veröur SVR
sem rekur sjálft sælgætissöl-
una.
Borgarráð samþykkti eftir-
talda leigutaka:
Dóru Petersen, Hraunbæ 116
og Hönnu Hofsdal, Geitastekk 6.
Snyrti- og hreinlætisvörur.
Guðrúnu Jóhannesdóttur,
Hrisateig 43 og Valdisi Daniels-
dóttur, Grímshaga 8. Blóm og
gjafavörur.
Guömund H. Sigmundsson,
Bláskógum 5. Blöð og bækur.
M jólkursamsöluna,
Laugavegi 162. Issala.
Einar Guömundsson o.fl,
Grenimel 40. Veitingar.
^ —KS
Hólahátíð
Hólahátfð verður haldin að
Hólum I Hjaltadal n.k. sunnu-
dag, 13. ágúst.
Meöal dagskráratriöa er
hátiðarguösþjónusta og siöar
um daginn samkoma i
Dómkirkjunni. Hljómlistarfólk
frá Akureyri leikur þar og
Kristján frá Djúpalæk flytur
ræöu. —KS
f skyndi
Fargjaldahœkkun
tíl Hafnarfjarðar
Verölagsstjóri hefur heimilað
hækkun á fargjaldi Landleiöa á
Hafnarfjaröarleiö og nemur
hækkunin 12,4% aö meöaltali.
Almennt gjald hækkar úr 105 kr.
i 120 kr.
• — KS
Ný rœkjumið
Ný rækjumið hafa fundist um 70
milur norður af Horni. Rækju-
báturinn Arnarborg frá Dalvik
fékk þar ni'u tonnaf rækjueftir 4
daga.
Þetta var stór óg góö rækja aö
sögn. £
Berjasprett-
an léleg
Berjasprettan ætlar að veröa
léleg i ár og segja þeir sem til
þekkja að kuldarnir i vor hafi
ráðið þar mestu um. Eitthvaö
virðist þó hafa rætst úr siðustu
vikurnar, en eftir þvi sem Visir
hefur fregnaö frá nokkrum
berjasvæðum, verður að öllum
likindum litið um ber i ár.
—KS
Allar staöhæfingar um að
Alþýðusamband islands hafi
neitað viðræðum viö flokkana,
sem stóöu i stjórnarmyndunar-
viðræðum um vinstri stjórn, eru
alrangar, segir i bréfi sem mið-
stjórn Alþýðusambands islands
hefur sent Visi.
t bréfinu segir að af gefnu
tilefni vegna blaðaskrifa skuli
það tekið fram, aö miðstjórn
ASI hafi borist tilmæli frá
formanni Alþýöuflokksins fyrir
hönd þeirra flokka, sem stóöu
að stjórnarmyndunarviöræö-
um, um það að ASl tilnefndi
nefnd til viöræðna viö fulltrúa
frá flokkunum þrem.
„Erindi þetta var tekið fyrir á
miöstjórnarfundi þann 27. júli
siöastliðinn”, segir i bréfinu.
„Þar var samþykkt samhljóða
að verða við þessum tilmælum
og kosin sex manna nefnd til aö
annast þessar viðræöur fyrir
hönd Alþýðusambands Islands.
Fundur haföi verið ákveöinn
með aðilum laugardaginn 29.
júli, en áöur en til þess kom aö
hann yrði haldinn, aflýsti Bene-
dikt Gröndal honum fyrir hönd
flokkanna”.
Aðalfundur Nausts
á Fáskrúðsfirði
Náttúruverndarsamtök
Austurlands (NAUST) halda
árlegan aðalfund sinn að þessu
sinni á Fáskrúðsfirði 20. ágúst,
en undanfari fundarins er skoö-
unarferö laugardaginn 19.
ágúst, og veröur fariöaö morgni
frá Egilsstööum um Breiödal og
Stöövarfjörö til Fáskrúösfjarö-
ar, undir leiösögn jaröfræöinga
og fleiri fróðleiksmanna. Sveinn
Sigurbjarnarson sérleyfishafi á
Eskifirði tekur viö óskum um
far i þessa ferö (simi 6299) og
skráir þátttakendur.
Aö kvöldi laugardagsins er
kvöldvaka fyrir almenningmeö
fjölbreyttu efni i félagsheimil-
inu Skrúð og á sunnudag er auk
aöalfundarstarfa opinn
umræðufundur með Jakobi
Jakobssyni fiskifræðingi um
ástand og verndun fiskstofna og
nýjungar i fiskveiðum. Hefst
hann i Skrúö kl. 13.30 og er öll-
um opinn. Eru útvegsmenn og
áhugamenn um sjávarútveg
sérstaklega hvattir til aö koma
og hlýöa á erindi Jakobs, sem
einnig mun svara fyrirspurn-
um.
Fyrir fundinn veröur náttúru-
verndarsýningu NAUST komiö
upp i anddyri félagsheimilsins
og veröur hún þar til sýnis
fundardagana. Væntir stjórn
samtakanna aö sem flestir líti
þar inn og sæki umrædda dag-
skrárliöi.
>